Viðskipti innlent

Dóttur­fé­lagið úr­skurðað gjald­þrota

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Valgeir Magnússon stjórnarformaður Pipar\TBWA, Silja M. Storhaug, þáverandi framkvæmdastjóri SDG og Nicolay Jernberg, framkvæmdastjóri SDG í dag. Myndin var tekin þegar Pipar\TBWA festi kaup á SDG.
Valgeir Magnússon stjórnarformaður Pipar\TBWA, Silja M. Storhaug, þáverandi framkvæmdastjóri SDG og Nicolay Jernberg, framkvæmdastjóri SDG í dag. Myndin var tekin þegar Pipar\TBWA festi kaup á SDG. Pipar

SDG Design Studios, dótturfélag auglýsingastofunnar Pipar\TBW, hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Það sem eftir var af starfseminni sameinaðist annarri starfsemi Pipar\TBWA í Noregi undir merkjum SDG.

„Félagið var úrskurðað gjaldþrota í janúar fyrir ári síðan,“ segir Valgeir Magnússon, starfandi stjórnarformaður Pipar\TBWA. 

Hann tekur fram að þegar félagið fór í þrot hafi verið búið að greiða allar skuldir félagsins nema skuldir til þeirra sjálfra. Tekin var ákvörðun um að úrskurða félagið gjaldþrota til að losna við skuldbindingar félagsins til framtíðar, við fyrri eigendur þess og slíkt að sögn Valgeirs.

„Þetta var ekki sett í þrot til að losna úr skuldum heldur voru framtíðarvandamál svo mikil að það var betra að setja það í þrot,“ segir hann.

Rekstur félagsins hafi gengið afar illa og hafi félagið verið í verri stöðu þegar Pipar\TBWA keypti það heldur en gert var ráð fyrir.

„Það var búið að ganga mjög illa í mjög mörg ár áður en við tókum við.“

Kanarífuglinn í hagkerfinu

Valgeir segir auglýsingamarkaðinn í Noregi afar erfiðan. SDG sé ein af þekktustu hönnunarstofum Norðurlandanna en þrátt fyrir það hafi rekstur félagsins verið illa settur. Hins vegar eigi Pipar\TBWA annað fyrirtæki að nafni Cider sem er auglýsingastofa á öllum Norðurlöndunum og rekstur þess gangi vel.

„Okkar bransi er oft kanarífuglinn í hagkerfinu, þannig að ef hagkerfið kólnar erum við eitt af fyrirtækjunum sem finnum fyrst fyrir því og þá sérstaklega hönnunarhlutinn,“ segir Valgeir.

„Það var þannig árin 2024 og 2025 í Noregi að það fóru ein til tvær hönnunarstofur á hausinn í hverjum mánuði.“

Staðan sé ekki eins á Íslandi þar sem olíukreppan og hærra verð á rafmagni í Evrópu hefur ekki eins mikil áhrif hér á landi líkt og í Noregi. Rekstur SDG Design Group gengur því brösulega í dag og er lítill sem enginn hagnaður.

„Það gekk rosalega vel fyrir tveimur árum síðan en núna erum við að halda sjó þar,“ segir hann.

„Tækifærin eru samt alltaf mjög mikil þannig að allt í einu kemur eitt stórt verkefni og þá er allt geðveikt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×