Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 26. apríl 2026 16:40 Sindri S. Kristjánsson er oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri. Oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri segist þakklátur fyrir meðbyr sem hann hafi fundið fyrir að undanförnu og segir að verði flokkurinn stærstur að loknum kosningum muni hann eðli málsins samkvæmt gera kröfu um sæti í meirihluta. „
Við erum fyrst og síðast ofboðslega þakklát að sjá og heyra að okkar góði framboðslisti og okkar málefni og þær áherslur sem við erum að leggja fram leggist svona vel í bæjarbúa. Þetta er auðvitað bara ein mæling og mælingin sem öllu máli skiptir eru kosningarnar þann 16. maí næstkomandi,“ segir Sindri S. Kristjánsson oddviti Samfylkingarinnar í samtali við Vísi. Líkt og greint var frá í morgun yrði Samfylkingin stærsti flokkurinn í bæjarstjórn ef marka má nýja könnun Maskínu sem gerð var fyrir DV. Samfylkingin fengi 18,4 prósenta fylgi og þrjá bæjarfulltrúa, myndi þannig bæta við sig tveimur frá síðustu kosningum. „Við höldum ótrauð áfram að tala við bæjarbúa næstu þrjár vikurnar og erum bara mjög spennt fyrir framhaldinu,“ segir Sindri. Miðað við könnun Maskínu verður ekki hægt að mynda óbreyttan meirihluta L-lista, Sjálfstæðisflokks og Miðflokks. Þú væntanlega gerir kröfu um það að Samfylkingin verði í meirihluta? „Já, auðvitað ef það eru niðurstaðan að við erum stærsti flokkurinn þegar talið verður upp úr kjörkössunum á laugardag eftir þrjár vikur þá vitanlega munum við gera þá kröfu.“ Sérðu eitthvað fyrir þér í þeim efnum, hvað varðar samstarfsflokka? „Nei, auðvitað er ekkert útséð með það núna. Það eru náttúrulega ýmis mynstur í boði miðað við þessa könnun en við þurfum bara að bíða og sjá hvernig bæjarbúar greiða atkvæði og við erum bara tilbúin í samstarf við alla flokka að því gefnu að þeir deili okkar sýn á það hvernig bærinn okkar á að halda áfram að vaxa og dafna.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Akureyri Samfylkingin Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Skuldar ekkert Innlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Fleiri fréttir Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sjá meira