Almannarómur um gervigreind Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 27. apríl 2026 08:00 Á örfáum árum hefur gervigreind þróast úr því að vera tiltölulega afmarkað viðfangsefni fræðimanna og tæknisérfræðinga yfir í eitt mest umbreytandi afl samtímans. Þróunin hefur verið ævintýralega hröð og sífellt fleiri átta sig á því að gervigreind, eins og hún birtist okkur í dag, muni ekki aðeins breyta einstökum verkferlum innan fyrirtækja eða eðli ákveðinna starfa, heldur líklega kalla á endurmat á því hvernig við skipuleggjum samfélagið, byggjum upp hæfni, styðjum við íslenska tungu og nýtum best þau nýju tækifæri sem tækninni fylgja til raunverulegrar verðmætasköpunar. Umræða um þessi mál hófst raunar fyrr hér á landi en margir gera sér grein fyrir. Forsætisráðuneytið kom til að mynda af stað greiningu á áhrifum gervigreindar á íslenskan vinnumarkað og samfélag árið 2018, þá undir formerkjum hugtaksins fjórðu iðnbyltingarinnar. Fáir nota hugtakið í dag, það hefur vikið fyrir gervigreindarbyltingunni. En ætli skólabækur framtíðarinnar muni ekki grípa til fyrra hugtaksins til að lýsa þeim umbrotatímum sem við lifum nú? Í greiningu forsætisráðuneytisins var reynt að horfa fram á veginn og búa íslenskt samfélag undir þróun sem þá var rétt farin að skjóta rótum en hefur sannarlega tekið stakkaskiptum síðan. Máltækni skapar sterkan grunn Samhliða þessari umræðu hófu stjórnvöld stórátak í íslenskri máltækni með það að markmiði að tryggja stafræna framtíð tungumálsins. Með máltækniáætlunum stjórnvalda var ráðist í mikla uppbyggingu á stórum gagnasöfnum fyrir tungumálið og ýmiss konar hugbúnaður búinn til hér innanlands til að taka betur mið af íslenskri tungu. Það starf gekk vonum framar og er ein skýrasta velgengnissaga íslenskrar tækniuppbyggingar á síðustu árum sem hefur vakið athygli langt út fyrir landsteinana. Á þeim tíma var ekki endilega ljóst hversu nátengd þessi uppbygging yrði gervigreind síðar meir. Þróunin síðustu ár hefur þó leitt í ljós að í litlu málsamfélagi verður staða tækninnar varla skilin frá stöðu tungumálsins. Eftir því sem gervigreind, ekki síst mállíkön, verður fyrirferðameiri verður sífellt ljósara að málaflokkar máltækni og gervigreindar lifa hlið við hlið og haldast í hendur að mestu leyti. Máltækniáætlanir, sem áður voru fyrst og fremst hugsaðar sem barátta fyrir vernd íslenskrar tungu gagnvart hröðum tæknibreytingum og þróun í alþjóðamálum, hafa því jafnframt orðið lykilforsenda þess að Ísland geti tekið þátt í gervigreindarbyltingunni á eigin forsendum. Almannarómur þróast með tækninni Þarna liggur einnig kjarninn í starfi Almannaróms. Frá árinu 2014 hefur Almannarómur – miðstöð máltækni unnið að því annars vegar að tryggja að íslenskan eigi sér framtíð í stafrænum heimi og hins vegar að gera nýjustu og bestu tækni aðgengilega og nothæfa fyrir íslenskan almenning, fyrirtæki og stofnanir. Þetta höfum við gert með stuðningi íslenskra stjórnvalda sem hafa fjárfest ríkulega í stafrænni framtíð íslenskrar tungu. Á síðustu árum hefur sú vinna í vaxandi mæli færst inn á svið gervigreindar, nánast óhjákvæmilega, enda er tungumálið sjálft orðið eitt helsta tólið sem nýtist til gervigreindarþróunar. En þótt verkefnin hafi tekið breytingum og sviðið breikkað, hefur grunnurinn haldist sá sami. Markmiðið er alltaf að byggja upp aðstæður þar sem ný tækni nýtist íslensku samfélagi; tækni sem virkar á íslensku og virkar við þær íslensku aðstæður sem hún verður notuð í. Í þessu samhengi hefur Almannarómur nýlega hafið þátttöku í þremur stórum verkefnum á sviði gervigreindar og gerst stofnaðili að nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð, New Nordics AI, ásamt gervigreindarmiðstöðvum af hinum Norðurlöndunum. Sú þátttaka endurspeglar hvernig stofnunin hefur þróast með tækninni sjálfri. Í starfi Almannaróms hefur þannig á undanförnum árum byggst upp dýrmæt reynsla, þekking og sýn á gervigreind sem við teljum mikilvægt að miðla áfram á vandaðan, traustan og hlutlægan hátt. Staða gervigreindar á Íslandi 2026 Upplýsingar um raunverulega notkun, innleiðingu, nálgun fyrirtækja, áhrif á störf og viðhorf almennings á Íslandi til gervigreindar hafa verið takmarkaðar. Á undanförnum mánuðum hefur þó bæst þar úr. Nýjar og gagnlegar kannanir hafa komið fram, sem mæla bæði notkun og viðhorf almennings og sérfræðinga innan fyrirtækja til gervigreindar og nýlega birti Hagstofan niðurstöður úr könnun sem hafði einnig verið lögð fyrir önnur Evrópuríki, sem gefur okkur góðan samanburð við þau. Ný skýrsla Almannaróms, Staða gervigreindar á Íslandi 2026 sem nálgast má á vefslóðinni stadagervigreindar.is, tekur saman þessar niðurstöður, ber þær saman við gögn nágrannaþjóðanna og setur þær í víðtækara samhengi. Auk þess koma þar fram nýjar greiningar frá Almannarómi; viðtöl við sérfræðinga á sviði gervigreindar, stjórnendur úr íslensku atvinnulífi auk hagnýtra ráðlegginga og skrifa starfsfólks Almannaróms, sem glímir daglega við helstu áskoranir og tækifæri sem vinna í kringum gervigreind hefur í för með sér. Einnig má þar finna nýja vinnumarkaðsgreiningu Almannaróms, sem metur möguleg áhrif gervigreindar á íslenskan vinnumarkað. Við gerum okkur fulla grein fyrir því að með þessari fyrstu útgáfu mistakist okkur áreiðanlega að svara öllum þeim spurningum sem brenna á fólki og fyrirtækjum um málefni gervigreindar í dag og að við snertum hér á færri sviðum gervigreindar en við helst vildum. Markmiðið með fyrstu útgáfu skýrslunnar er fyrst og fremst að beina sjónum okkar að hagnýtingu gervigreindar og raunverulegri notkun hennar í samfélaginu. Skýrslan er hugsuð fyrir ólíka lesendur með ólíkar þarfir. Þar er farið yfir vítt svið; stefnu stjórnvalda, stöðu Íslands í samanburði við önnur ríki, hagnýt atriði fyrir fyrirtæki sem vilja hefja innleiðingu á gervigreind og gagnaöryggi, svo eitthvað sé nefnt. Jafnframt verður horft sérstaklega til einstaklingsins og þess hvernig fólk sem hefur jafnvel enn ekki þorað að stíga sín fyrstu skref í notkun gervigreindar getur komið sér af stað. Lifandi skjal fyrir lifandi málaflokk Hugmyndin er að gera skýrsluna að lifandi skjali sem veitir ávallt bestu upplýsingar um stöðu gervigreindar á Íslandi á hverjum tímapunkti. Í ljósi þess hve kvikur málaflokkurinn er verður skýrslan uppfærð ársfjórðungslega til að byrja með, þar sem má búast við nýjum köflum og endurskoðun eldra efnis þegar sérstakt tilefni þykir til. Þar má til að mynda búast við nýjum köflum um gervigreind og menntun, íslenskum rannsóknum í gervigreind og stöðu hennar innan íslenskra háskóla, gervigreind og orkumál, áhrif og innleiðingu gervigreindarreglugerðar Evrópusambandsins auk sérstakrar umfjöllunar um fullveldisgervigreind, sem varð nokkuð óvænt að hitamáli hér á landi rétt fyrir útgáfu skýrslunnar. Von okkar er sú að þessi skýrsla reynist gagnlegt, upplýsandi og uppbyggilegt innlegg í umræðuna um gervigreind á Íslandi. Það er hagur okkar allra að Ísland nálgist þessa tækni af ábyrgð, metnaði og raunsæi, en þó með nægum hraða og ákveðni til að tryggja að hægt verði að nýta hana sem best fyrir samfélagið allt. Höfundur er yfirmaður stefnu, samhæfingar og alþjóðamála hjá Almannarómi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gervigreind Íslensk tunga Mest lesið Halldór 15.08.2026 Halldór Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir Skoðun Meira en bara reglur og byrðar Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Engar varnir gegn dýrasjúkdómum – Óafturkræft slys Halldór Runólfsson Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann Skoðun Loddaralist í aðdraganda 29. ágúst Daði Freyr Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Lífsgæði og samheldni íslenskrar þjóðar Bjarni Herrera skrifar Skoðun Loddaralist í aðdraganda 29. ágúst Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen skrifar Skoðun Dánaraðstoð án laga, en ekki án veruleika Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Meira en bara reglur og byrðar Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Eftir almyrkvann – þakklæti og stolt Gerður B. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann skrifar Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson skrifar Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Árangur íslenskra stjórnmálamanna Steinn Kári Ragnarsson skrifar Skoðun Já, vegna allra Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Brandari dagsins Einar Helgason skrifar Skoðun Það sem aldrei hefur gerst getur hæglega gerst aftur! Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver er raunveruleg hætta fyrir íslenskar veiðiheimildir við ESB-aðild? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Af hverju sjómenn mættu mögulega segja „já“ Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Vélin verður sífellt klárari. En ekkert greindari. Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ég ætlaði bara að reyna skilja hvað ég væri að kjósa um Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um fullveldi og framsal þess Axel Kristinsson skrifar Skoðun Ævilangt ástarsamband við bláber Björg Árnadóttir skrifar Skoðun Engar varnir gegn dýrasjúkdómum – Óafturkræft slys Halldór Runólfsson skrifar Skoðun Við eigum að þora að sjá hvað aðildarsamningur gæti falið í sér Halldóra Sigríður Sveinsdóttir skrifar Skoðun Veljum að vita meira Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri sem kemur ekki aftur Árni Gunnarsson skrifar Skoðun Hættum að giska: Fáum svörin á borðið Stefán Pettersson skrifar Skoðun Það sem AGS tilgreindi en Dagur dregur ekki fram Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson skrifar Skoðun Universities should not punish students for bureaucratic incompetence Colin Fisher skrifar Sjá meira
Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Hver er raunveruleg hætta fyrir íslenskar veiðiheimildir við ESB-aðild? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Við eigum að þora að sjá hvað aðildarsamningur gæti falið í sér Halldóra Sigríður Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Seðlabankinn uppfærði matið: Það nýja hentar ekki sögunni sem stjórnvöld vilja segja Jón Helgi Egilsson skrifar
Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir Skoðun