Skoðun

Tími undan­bragða er liðinn – Mætir ráð­herra með svör?

Hjálmar Hallgrímsson skrifar

Það var mikill hiti og sterk samstaða á fjölmennum íbúafundi Grindvíkinga þann 22. apríl. Fólk er orðið langþreytt á óvissunni og þeirri forræðishyggju sem stjórnvöld hafa sýnt af sér í málefnum bæjarins. Það voru því mikil vonbrigði að forsætisráðherra skyldi ekki sjá sér fært að mæta á þennan mikilvæga fund til að hlusta og svara ákalli íbúanna milliliðalaust.

Ályktun íbúafundarins var afdráttarlaus: Grindvíkingum er algjörlega treystandi til að taka ákvarðanir um eigið líf. Við krefjumst þess að jafnræði verði tryggt í húsnæðismálum og að öllum, óháð fjölskyldugerð, verði gert kleift að flytja heim aftur án mismununar. Hugmyndir um annað eru óásættanlegar atlögur að tilvistarrétti bæjarins.

Forsætisráðherra hefur nú boðað komu sína á fund hjá íbúasamtökunum Járngerði í næstu viku. Við þurfum ekki innantómar yfirlýsingar um samkennd, en við höfum fullar væntingar um að hún mæti með tilbúin svör. Það er lágmarkskrafa okkar að hún komi með útfærð plön Þórkötlu í farteskinu og tryggi að jafnræðisreglan verði virt. Við þurfum svör til að geta tekið ákvarðanir um næsta haust og okkar framtíð. Tími undanbragða er liðinn.

Höfundur er bæjarfulltrúi í Grindavík.




Skoðun

Sjá meira


×