„Við verðum að fá fólk heim aftur“ Birgir Olgeirsson skrifar 27. apríl 2026 21:00 Jón Gunnar Margeirsson, framkvæmdastjóri og annar af eigendum fyrirtækisins Jón og Margeir. Lýður Grindvískt fjölskyldufyrirtæki vinnur nú að því að fylla upp í allt að 15 metra djúpa sprungu við íþróttahúsið í Grindavík. Framkvæmdastjórinn segir verkið snúast um að gera bæinn öruggan á ný fyrir börn og fjölskyldur. „
Við verðum að fá fólk heim aftur. Börn og barnabörnsem við ætlum að hafa hérna og byggja bæinn upp. Þess vegna erum við að þessu,“ segir Jón Gunnar Margeirsson, annar eigenda og framkvæmdastjóri Jóns og Margeirs. Fyrirtækið hefur unnið að jarðvinnu í Grindavík eftir jarðhræringarnar og er nú að störfum við íþróttahúsið, þar sem sprunga og misgengi liggja um svæðið. „Við erum að fylla í sprunguna hérna við íþróttahúsið. Við gröfum hana niður, svona tólf til fimmtán metra, fleygum inn í botninn, gerum við hann og byggjum þetta svo allt upp aftur,“ segir Jón Gunnar. Björgin brotin niður og notuð aftur Efnið sem fer í fyllinguna kemur að stórum hluta úr sprungunni sjálfri. Stór björg eru brotin niður, lögð aftur ofan í og svæðið síðan byggt upp að yfirborði. Frá framkvæmdunum í Grindavík í dag. Lýður „Við höfum mokað upp úr þessu. Það komu stór björg upp úr. Þeim er fleygt niður í þrjátíu til fimmtíu sentímetra steina, þeim raðað niður aftur og svo er þetta dúkað efst, svona einum og hálfum metra undir yfirborði.“ Jón Gunnar segir verkið ganga vel og vonast til að þessum áfanga ljúki í næstu viku. „Ekkert verið neitt alvarlegt“ Hann segir að áður en farið sé ofan í sprungurnar séu þær skoðaðar og opnaðar eftir þörfum til að tryggja að öruggt sé að athafna sig. Þótt víða hafi þurft að grípa inn í hafi ekkert komið í ljós sem breyti verklaginu. „Við erum búin að skoða botninn inn undir og opna sprungur hér uppi í bænum hingað og þangað. Það hefur ekkert verið neitt alvarlegt. Ef það opnast auga þá opnum við, fleygum niður, gerum við og fyllum í.“ Verkefnið við íþróttahúsið er aðeins einn hluti af stærri viðgerðum í bænum. Annars staðar hefur þurft að fjarlægja hús til að komast að skemmdum undir þeim. „Þetta er auðvitað hellingsverk. Það er svo sem ekki búið að bjóða þetta allt út. Það er verið að taka þetta eina og eina. Samhliða því hefur verið verið að fella hús og fjarlægja hús svo hægt sé að gera við sprungurnar undir þeim. Með þessu áframhaldi, ef þetta verður boðið út jafnt og þétt, held ég að þetta gæti verið búið í sumar,“ segir Jón Gunnar. Heitasta „Town-ið" Umbrotið í Grindavík hefur vakið mikla athygli utan landsteinanna. Jón Gunnar segir erlenda tökuliða og fjölmiðlafólk hafa verið áberandi í bænum. „Það er gríðarlega mikill áhugi á öllu hérna. Bærinn er fullur túristum alla daga. Það er alveg lygilegur fjöldi sem er hérna. Enda er ég ekki hissa, þetta er heitasta „town-ið".“
Grindavík Eldgos á Reykjanesskaga Almannavarnir Mest lesið Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Erlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Innlent „Svaraðu spurningunni“ Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Innlent Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Innlent Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Innlent Fleiri fréttir Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Taka L-listann með sér í meirihluta Óumflýjanlegt að atvinnuleysi aukist Sjá meira