Takk hjúkrunarfræðingar! Siv Friðleifsdóttir skrifar 28. apríl 2026 00:00 Hjúkrunarfræðingar eru öflug fagstétt sem sinnir fjölbreyttum og mikilvægum störfum í heilbrigðisþjónustu hér á landi. Störf hjúkrunarfræðinga eru einn grundvallarþátta velferðarsamfélagsins sem við erum svo lánsöm að búa í og hafa mikið samfélagslegt gildi. Hjúkrunarfræðingar á Íslandi eru skörungar og láta til sín taka við dagleg störf. Þeir eru líka ósparir á að miðla af fagþekkingu sinni í þeim tilgangi að hafa áhrif á stefnumótun til framtíðar. Allt er þetta þakkarvert. Nú nýlega veitti Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) umsögn um Drög að stefnu í áfengis- og vímuvarnarmálum til ársins 2035, sem heilbrigðisráðuneytið birti í samráðsgátt stjórnvalda. Tala fyrir lýðheilsu og almannahagsmuni en gegn sérhagsmunum Umsögnin er afar góð og sýnir að hjúkrunarfræðingar hika ekki við að benda á sannleikann og halda á lofti þeirri afturför sem orðið hefur í forvörnum með auknu aðgengi að áfengi s.s. með áfengisnetverslunum og sölu áfengis á íþróttaviðburðum. Hjúkrunarfræðingar hika ekki heldur við að tala gegn sérhagsmunum og draga fram að lýðheilsa og almannahagsmunir eigi að vega þyngra en fjárhagslegur ávinningur einkaaðila. Fíh talar skýrt fyrir almannahagsmuni en gegn sérhagsmunum. Takk hjúkrunarfræðingar! Í umsögn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir m.a. “Á undanförnum árum hefur orðið bakslag í forvörnum í áfengis- og vímuvarnarmálum á Íslandi. Þar má meðal annars nefna aukið aðgengi að áfengi, svo sem með netverslunum og á íþróttaviðburðum, auk þess sem dæmi eru um að áfengi sé boðið fram við tilefni á borð við fermingarveislur og barnaafmæli. Jafnframt eru vísbendingar um að neysla áfengis meðal ungs fólks í framhaldsskólum sé á uppleið sem og neysla ávanabindandi efna og áfengis í efri bekkjum grunnskóla Sem samfélag megum við ekki sofna á verðinum í forvarnarstarfi á sviði áfengis- og vímuvarna. Lýðheilsa og almannahagsmunir verða að vega þyngra en fjárhagslegur ávinningur einkaaðila. Afstaða Fíh byggir á faglegum heilindum og hefur velferð samfélagsins að leiðarljósi, en ekki sérhagsmuni. Þá styðst félagið við heimildir byggða á vísindalegum grunni sem sýna að aukið aðgengi að t.d áfengi leiðir til aukinnar sjúkdómsbyrði, hærri samfélagskostnaðar og aukinnar þjáningar.“ Undir þessa faglegu og góðu umsögn ritar Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hjúkrunarfræðingar, aðrar heilbrigðisstéttir og forvarnarsamtök standa saman Hjúkrunarfræðingar hafa ásamt öðrum heilbrigðisstéttum og forvarnar- og foreldrasamtökum hvatt stjórnvöld og almenning til að sofna ekki á verðinum í forvarnarstarfi heldur verja lýðheilsu af öllum mætti. Tvívegis hafa þessir aðilar sent stjórnvöldum sérstakar áskoranir vegna þeirrar netsölu áfengis sem hefur rutt sér rúms á Íslandi á síðustu árum og var dæmd ólögmæt í héraðsdómi nú apríl. Þann 26. ágúst 2024 var send Áskorun breiðfylkingar félaga heilbrigðisstétta, forvarnarsamtaka og fleiri til yfirvalda um að bregðast við yfirstandandi lýðheilsuógn vegna stóraukinnar netsölu áfengis. Í janúar 2025 var stjórnvöldum sent sparnaðarráðið Verum hagsýn í ríkisrekstri – sparnaðarráð frá breiðfylkingu heilbrigðisstétta, forvarnasamtaka ofl. í samráðsgátt 21. janúar 2025. Þar kemur fram að allar rannsóknir sýna að áfengisneysla hefur neikvæð áhrif á lýðheilsu og mikinn samfélagslegan kostnaði í för með sér. Þær sýna einnig að öll aukning í sölu áfengis, m.a. vegna aukins aðgengis að áfengi, veldur tilheyrandi aukningu á áfengistengdum skaða og samfélagslegum kostnaði. Það felst því mikill sparnaður í því að hvika í engu frá samþykktri lýðheilsustefnu til ársins 2030 og markmiðum gildandi laga um einkasölu ÁTVR á áfengi. Sá sparnaður hleypur á milljörðum króna á ári. Alþingi og önnur stjórnvöld ættu að hlusta á hjúkrunarfræðinga, aðrar heilbrigðisstéttir og forvarnarsamtök nú þegar stefnan í áfengis- og vímuvörnum er í mótun. Við höfum ekki efni á öðru. Takk hjúkrunarfræðingar, fyrir ykkar faglega framlag í lýðheilsubaráttunni. Ykkar rödd er sterk og vegur þungt! Höfundur er félagi í Fræðslu og forvörnum – félagi áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu og fyrrum heilbrigðisráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Siv Friðleifsdóttir Heilbrigðismál Mest lesið Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson Skoðun Skoðun Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar