Þegar sálfélagsleg áhætta verður rekstraráhætta Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar 28. apríl 2026 09:31 Sálfélagsleg áhætta í vinnu hefur bein áhrif á heilsu og líðan fólks. Í dag, 28.apríl, er alþjóðlegur dagur vinnuverndar og í tilefni þess gaf Alþjóðavinnumálastofnunin (ILO) út skýrslu um sálfélagslegt vinnuumhverfi. Skilaboðin eru skýr: samkvæmt nýlegu alþjóðlegu mati ILO má rekja um 840.000 dauðsföll á ári til sálfélagslegra áhættuþátta í vinnu, einkum vegna hjarta- og æðasjúkdóma og geðraskana, aðallega þunglyndi. Jafnframt er áætlað að þessi áhætta kosti hagkerfi heimsins um 1,37% af vergri landsframleiðslu á hverju ári. Þessar tölur gefa til kynna að sálfélagsleg áhætta sé sannarlega lýðheilsu- og rekstraráhætta. Þegar lausnin lagar ekki vandann Sálfélagslegir áhættuþættir eru þeir þættir í félagslegu starfsumhverfi, skipulagi og stjórnun sem geta valdið starfsfólki skaða. Hér er ekki átt við einstaklingsbundin atriði heldur þætti á borð við of mikið vinnuálag, óskýr hlutverk, lítið sjálfræði, misræmi í stjórnun, óöryggi í starfi, einelti og áreitni. Þegar þessum þáttum er ekki sinnt skapast ójafnvægi sem getur leitt til heilsubrests hjá starfsfólki. Gott er að hafa í huga að það gerist ekki vegna þess að starfsfólki skortir þrautseigju eða þol heldur vegna þess að starfsumhverfið er þannig uppbyggt að með tímanum hefur það neikvæð áhrif á heilsu fólks. Mikilvæg áherslubreyting í skýrslu ILO er að færa sjónarhornið og ábyrgðina frá einstaklingnum yfir í það hvernig vinnan er skipulögð og framkvæmd. Lengi hefur tilhneigingin verið sú að bregðast við streitu og álagi með námskeiðum fyrir starfshópa eða með einstaklingsbundum úrræðum. Slíkar aðgerðir geta verið gagnlegar en þær meðhöndla einungis einkenninn en ekki vandann. Að senda starfsmann á námskeið í streitustjórn vegna óhóflegs álags er sambærilegt því að gefa starfsmanni eyrnatappa í stað þess að takast á við það sem veldur hávaða á vinnustað. Það leysir ekki vandann heldur dregur athyglina frá því sem raunverulega þarf að breyta. Hvað er hægt að gera strax? Hvernig ættu vinnustaðir að bregðast við þessari þróun? Skýrslan dregur fram nokkur lykilatriði sem rannsóknir sýna að skili árangri og sem stjórnendur geta byrjað að vinna með strax. Hér eru dæmi um nokkur þeirra: Í fyrsta lagi þarf að framkvæma sálfélagslegt áhættumat með reglulegu millibili og með viðurkenndum mælitækjum. Slíkt mat er ekki einföld starfsánægjukönnun, heldur greining á því hvernig vinnan er skipulögð: hvernig álag dreifist, hvernig hlutverk eru skilgreind, hvernig samskipti fara fram og hvernig ákvarðanir eru teknar.Skýrslan bendir auk þess á að lágt hlutfall athugasemda eða kvartana sé ekki áreiðanleg vísbending um lága áhættu. Sálfélagsleg áhætta er oft vanmetin því fólk veigrar sér við að láta vita af ótta við afleiðingar eða óvissu um hvað telst þess virði að láta vita af. Í öðru lagi þarf að endurskilgreina forgangsröðun þegar kemur að forvörnum. Beina þarf sjónum að orsökum vandans og vinna á þeim með markvissum aðgerðum. Það felur í sér að draga úr eða koma í veg fyrir aðstæður sem valda ógagnlegu álagi eða skaðlegri hegðun og samhliða því, styrkja starfsumhverfið. Það getur þýtt að endurskoða þurfi verkferla, mönnun, ábyrgð og vinnutíma, en jafnframt leggja áherslu á virðingarík samskipti, stuðning og þátttöku starfsfólks þegar kemur að skipulagi á vinnu. Einstaklingsmiðuð úrræði líkt og streitustjórnun og handleiðsla, eiga að koma til viðbótar en ekki í staðinn fyrir kerfisbundnar breytingar. Þessi forgangsröðun skiptir máli því oft fjárfesta vinnustaðir því miður í því sem er einfaldast að gera en ekki því sem hefur mest áhrif. Í þriðja lagi þarf að fjárfesta í stjórnendum. Rannsóknir sýna að munur á líðan milli teyma innan sama vinnustaðar má að verulegu leyti rekja til stjórnunarhátta. Stjórnendur hafa áhrif á daglegt álag, forgangsröðun verkefna, hvernig endurgjöf er veitt og hvort fólk upplifi öryggi og virðingu.Mikilvægt er að hafa í huga að hæfni í stjórnun er ekki persónueinkenni, heldur færni sem þarf að þjálfa. Leiðtogaþjálfun sem snýr að daglegum ákvörðunum og athöfnum, forgangsröðun og samskiptum er ein hagkvæmasta fjárfesting sem vinnustaðir geta lagt í þegar kemur að sálfélagslegu öryggi. Í fjórða lagi þarf að tengja vinnuvernd við rekstur. Sálfélagsleg áhætta birtist í fjarvistum, starfsmannaveltu, minni framleiðni og lakari þjónustu. Rannsóknir benda að auki til þess að einelti og áreitni tengist verulegu framleiðslutapi á heimsvísu. Jafnframt sýna þær að starfsfólk sem upplifir andlega vanlíðan er að jafnaði oftar fjarverandi. Alþjóðlegar kannanir benda einnig til þess að stór hluti starfsfólks íhugi að hætta eða hætti störfum vegna óheilbrigðra aðstæðna í starfsumhverfi eða vegna krefjandi samskipta á vinnustað.Þetta eru tölur sem rekstraraðilar og stjórnendur tengja við. Ef vinnuvernd er ekki hluti af rekstrarumræðu þá fær hún sjaldan það vægi sem hún þarf. ,,Reddum þessu” Íslenskir vinnustaðir deila mörgum af þeim styrkleikum sem einkenna Norðurlöndin en þar eru traust og þátttaka starfsfólks lykilþættir. Reynsla Auðnast síðastliðinn áratug bendir þó til þess að sálfélagslegir áhættuþættir hér á Íslandi birtast oft með ákveðnum hætti. Þar má meðal annars nefna smæð vinnustaða og tengsl, óljós mörk í ábyrgð og hlutverkum, óformleg stjórnun, mikill sveigjanleiki sem getur orðið að stöðugu aðgengi og menningu þar sem gert er ráð fyrir að fólk ,,reddi þessu” þótt að álag sé orðið mikið. Mikilvægt er að vinna markvisst að þeim gildum sem liggja til grundvallar að heilbrigðu starfumhverfi: öryggi, réttlæti, trausti, sanngirni og virðingu. Slík gildi verða ekki til af sjálfu sér heldur mótast í daglegum ákvörðunum, samskiptum og því hvernig farið er með ábyrgð og vald í starfsumhverfinu. Á Íslandi er skýrt regluverk þegar kemur að sálfélagslegu umhverfi. Áskorunin er ekki aðeins að greina áhættuna, heldur fylgja niðurstöðum eftir í framkvæmd. Alþjóðlegur dagur vinnuverndar er því ekki aðeins áminning um áhættu, heldur tækifæri til að staldra við og endurmeta hvernig við hugsum um starfsumhverfið: hvernig það er skipulagt og hvernig við mótum aðstæður sem hafa bein áhrif á líðan og árangur. Höfundur er sérfræðingur í vinnuvernd, klínískur sálfræðingur og eigandi Auðnast. Heimildir International Labour Organization. (2026). The psychosocial working environment: Global developments and pathways for action. Geneva: International Labour Office. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vinnustaðurinn Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun