Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Bjarki Sigurðsson skrifar 29. apríl 2026 13:07 Bergþóra Baldursdóttir, hagfræðingur hjá Íslandsbanka. Vísir/Anton Brink Verðbólga hjaðnaði um 0,2 prósentustig milli mánaða og mælist nú 5,2 prósent. Hagfræðingur Íslandsbanka segir jákvæð teikn á lofti en telur litlar líkur á að mælingin verði til þess að Seðlabankinn hækki ekki stýrivexti í næsta mánuði.
Mest áhrif á vísitöluna hafði hækkun kostnaðar vegna búsetu í eigin húsnæði, verð á bensíni, verð á dísil og verð á flugfargjöldum. Þetta er í fyrsta sinn í hálft ár sem verðbólga hjaðnar. Hún mældist 3,7 prósent í nóvember á síðasta ári en hefur aukist jafnt og þétt síðan þá. Spurningin frekar hversu mikið vextir verða hækkaðir Peningastefnunefnd Seðlabankans kynnir stýrivaxtaákvörðun 20. maí svo þetta er síðasta verðbólgumælingin fram að því. Greiningardeildir landsins eru sammála um að stýrivextir verði hækkaðir og telur Bergþóra Baldursdóttir hjá Íslandsbanka mælinguna ekki breyta miklu. „Við megum ekki gleyma því að verðbólga er samt sem áður mjög há og hefur í langan tíma verið yfir markmiðinu. Við teljum líklegt að vextir verði hækkaðir og það sé frekar spurning hversu mikið,“ segir Bergþóra. Ástandið í heimsmálum hafi mikil áhrif á verðbólgu hér „Eins og peningastefnunefndin ræddi á síðasta fundi, hún hefur miklar áhyggjur af ástandinu úti í heimi. Við séum að fara að flytja inn meiri verðbólgu næstu mánuði. Það veltur á því líka. En það er líklegt að peningastefnunefndin hækki stýrivexti í maí,“ segir Bergþóra. Innfluttu vörurnar séu ekki að hækka mikið í verði og verðbólguþrýstingur sé ekki að aukast miðað við þessar tölur. Það komi á óvart og sé jákvætt. „Það gæti verið að það sé að myndast einhver stemning fyrir því að fyrirtæki lækki verð hjá sér eða haldi verði óbreyttu,“ segir Bergþóra.
Verðlag Seðlabankinn Íslandsbanki Fjármál heimilisins Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Sjá meira