Fengu Dern í stað Bonham Carter Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 29. apríl 2026 16:25 Laura Dern fer með hlutverk í nýrri þáttaröð The White Lotus í stað Helenu Bonham Carter. Samsett/Getty Laura Dern hefur tekið við hlutverki Helenu Bonaham Carter í nýjustu þáttaröðinni af vinsælu þáttunum The White Lotus. Hlutverkið var ekki talið fara Bonham Carter.
Fyrr í vikunni var greint frá því að Bonaham Carter færi ekki lengur með hlutverk í þáttunum sem hafa hingað til notið gífurlegra vinsælda og fengið fimmtán Emmy-verðlaun. Þættirnir eru í leikstjórn Mike White. „Þegar tökur á fjórðu þáttaröð The White Lotus voru nýhafnar kom í ljós að persónan sem Mike White skapaði fyrir Helenu Bonham Carter passaði ekki þegar á tökustað var komið,“ sagði í yfirlýsingu frá HBO, framleiðendum þáttanna. „Hlutverkið hefur í kjölfarið verið endurhugsað, verið er að endurskrifa og verður endurráðið í á næstu vikum. HBO, framleiðendur og Mike White harma að fá ekki að vinna með henni en eru áfram miklir aðdáendur og vonast innilega til að fá að vinna með þessari goðsagnakenndu leikkonu að í öðru verkefni fljótlega.“ Bonham Carter, sem er hvað þekktust fyrir leik sinn í Harry Potter, The King's Speech og The Crown, verður því ekki hluti af hópnum í Frakklandi. Í hennar stað kemur leikkonan Laura Dern sem lék til að mynda í Jurrasic Park, Little Women og þáttaröðinni Big Little Lies. Hver þáttaröð The White Lotus fjallar um fólk sem dvelur á mismunandi lúxushótelum víðs vegar um heim og eru því nýir leikarar í hverri þáttaröð. Síðustu þáttaraðir gerðust á Havaí-eyju, Ítalíu og í Taílandi. Í næstu þáttaröð verða teknir fyrir gestir á lúxushóteli í Frakklandi á meðan Cannes kvikmyndahátíðin fer fram. Í hópi leikaranna eru Steve Coogan, Kumail Nanjiani, Sandra Bernhard, Heather Graham og Vincent Cassel.
Hollywood Bíó og sjónvarp Frakkland Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Hinsegin ást í loftinu Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Arnór Sig kominn á fast Lífið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Fleiri fréttir Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“