Þegar óttinn verður að röksemd Gunnar Ármannsson skrifar 30. apríl 2026 10:00 Um hræðslustjórnun í umræðu um Evrópusambandsaðild Það er áhugavert að fylgjast með því hvernig málflutningur Evrópusambandssinna hefur verið að þróast á síðustu vikum. Í stað þess að byggja mál sitt á yfirveguðum rökum og heiðarlegri umræðu virðist sífellt oftar gripið til einfaldasta bragðsins í bókinni; að hræða fólk til samþykkis. Ef marka má umræðu þeirra er Ísland stöðugt á barmi einhvers konar efnahagslegrar glötunar; nema þjóðin segi já við aðild að Evrópusambandinu. Krónan er sögð vera veikburða og vonlaus, verðbólga óviðráðanleg og framtíðin utan ESB allt að því ógnvænleg vegna hættunnar sem að okkur steðjar, bæði úr austri og vestri. Og ekki má gleyma þeirri fullyrðingu að Ísland sé í raun valdalaust gagnvart Evrópu nema það „sé við borðið“. Þetta er endurtekið aftur og aftur, þar til það á að festast í huga fólks sem óumflýjanleg staðreynd. Þessi framsetning byggir á einfaldri blekkingu; að valið standi á milli stöðugleika innan ESB eða óvissu utan þess. En veruleikinn er flóknari en svo. Aðildarríki Evrópusambandsins hafa sjálf ítrekað glímt við efnahagslegar og pólitískar áskoranir. Skuldavandi, hægur hagvöxtur, innri togstreita milli ríkja og spillingarmál eru áberandi. Sumir málsmetandi aðilar innan ESB hafa viðrað þá skoðun sína að ganga eigi lengra og gera ESB að Sambandsríki og þurrka út í meira mæli sérstök einkenni núverandi þjóðríkja. Þetta eru raunveruleg vandamál innan sambandsins. Að halda því fram að aðild tryggi stöðugleika er því ekki bara einföldun heldur beinlínis rangfærsla. Áróður. Íslendingar standa ekki frammi fyrir einföldu „já eða nei“ við stöðugleika. Þeir standa frammi fyrir flóknu vali sem krefst heildstæðrar og heiðarlegrar umræðu en ekki upphrópana og hræðsluáróðurs. Kannski er alvarlegasti þátturinn í þessari nálgun sú undirliggjandi afstaða til almennings að með því að byggja umræðuna á ótta sé hægt að hræða þá til að taka „rétta“ ákvörðun. Slík nálgun er ekki aðeins óheiðarleg heldur er hún er vanvirðing við þá sem eiga að taka ákvörðunina. Kjósendur eiga rétt á heiðarlegum upplýsingum um kosti og galla aðildar. Þeir eiga rétt á umræðu um fullveldi, efnahagslega hagsmuni og langtímaáhrif án þess að vera sífellt minntir á yfirvofandi „hörmungar“ ef þeir eru ekki sammála ákveðinni niðurstöðu. Sumir pistlahöfundar, sem skrifa reglulega um málið, virðast eiga erfitt með að losna úr eigin óttaheimi. Nú beinist hann ekki lengur bara að meintum hræðsluáróðri andstæðinga ESB, heldur að heilu stjórnmálaafli og kjósendum þess. Þar er aftur sama mynstrið; talað niður til fólks, dregnar upp einfaldar og þægilegar skýringar og síðan ályktað að allir sem eru ósammála hljóti að vera annaðhvort illa upplýstir eða drifnir áfram af ótta. Þetta heitir að snúa hlutunum á haus. Það er nefnilega merkilegt hvernig sumir vilja tala um þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún á að fara fram en niðurstaðan virðist helst þurfa að vera „rétt“. Þegar líkur eru taldar á já-i er talað um skynsemi, framfarir og samvinnu. En ef minnsti möguleiki er á nei-i breytist tónninn. Þá er farið að tala um afturhald, einangrun og jafnvel vanþekkingu. Þetta er ekki trú á lýðræði. Þetta er ótti við lýðræði. Og forsætisráðherrann tekur þátt í þessu. Ef þjóðin segir já í fyrri umferð og „samningur“ lítur dagsins ljós þá þarf „samningurinn“ að standast hennar mat til að þjóðin fái aftur að kjósa. Geri hann það ekki verður „samningurinn“ ekki aftur borinn undir þjóðina. Ég myndi reyndar sætta mig vel við þá niðurstöðu en það er ekkert sérlega lýðræðisleg aðferð og ekki í samræmi við það sem hefur verið kynnt. Að líkja „samningaviðræðum“ um aðild að ESB við kjarasamningsgerð er afvegaleiðing umræðunnar. Það er fátt líkt með þessu tvennu. Kjarasamningsviðræður fara fram innan kerfis þar sem báðir aðilar hafa úrræði til að knýja fram niðurstöðu, annars vegar með verkföllum og hins vegar með verkbönnum. Markmiðið er í raun alltaf að ná samningi, enda byggir vinnumarkaðskerfið á því að niðurstaða fáist að lokum. Viðræður um aðild að ESB eru annars eðlis. Þar er enginn réttur eða skylda til að niðurstaðan verði að „samningi“. Hvorugur aðili hefur úrræði til að þvinga hinn til samkomulags og það er fullkomlega raunhæf niðurstaða að viðræðum ljúki án „samnings“ ef hagsmunir eða afstaða aðila fara ekki saman. Aðildarviðræður snúast því ekki um að „landa samningi hvað sem það kostar“, heldur um að kanna hvort sameiginlegur grundvöllur fyrir aðild sé yfirhöfuð til staðar. Að segja nei 29. ágúst nk. felur ekki í sér nein Ragnarök. Ísland verður áfram eitt besta samfélag heims til að búa í, líkt og alþjóðlegir mælikvarðar á lífskjör, öryggi og velferð sýna ár eftir ár. Kosningarnar snúast því um val á framtíðarsýn en ekki um það hvort landið standi eða falli. Það má segja nei í kosningunum 29. ágúst nk. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Ármannsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Þegar gróðureldar verða að samfélagsógn Snorri Birgisson Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson skrifar Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvað kostar léleg umsýsla ríkissjóðs okkur í raun? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar gróðureldar verða að samfélagsógn Snorri Birgisson skrifar Skoðun Flestir nota gervigreind eins og leitarvél Þórdís Inga Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar