„Hvaða plön ertu með í sumar?“ Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar 30. apríl 2026 11:31 „Hvað ætlaru að gera í sumar?“, „Ertu með einhver skemmtileg plön?“, „Á að fara eitthvað út í sumar?“ Þessar spurningar hljóma víða í samtölum og á kaffistofum landsmanna. Sólin er komin hærra á loft og við þurfum ekki lengur að draga okkur á fætur í niðamyrkri, né heldur að koma draugfúlum og þreyttum börnum á fætur. Orkan er meiri og sum okkar hamast við að koma sér í hlaupaform fyrir utanvegahlaupin, önnur græja sig og bílinn upp fyrir veiðina og enn önnur viðra tjaldið eða fellihýsið fyrir útilegur sumarsins. Klippa runnanna, mosatæta, bera áburð á grasið, smyrja reiðhjólin, setja upp trampólínið o.fl. o.fl. Það er líka gleði hjá börnum landsins. Útivistartíminn lengist núna 1.maí og hoppubelgir landsins hafa sumir verið blásnir upp við mikinn fögnuð. Nú fer hver að verða síðastur að bóka sumarlandaferðina og staðfesta orlofsdagana á vinnustaðnum. Þetta verður geggjað!!! Samt er kannski einhver smá kvíði og spenna í skrokknum. Jafnvel depurð? „Bíddu á ég ekki að vera bara geggjað spennt/ur fyrir þessu öllu saman?“ Tja, jú eða sko... Sumrinu getur líka fylgt ýmislegt annað en sól og gleði. Því fylgir einnig ýmis konar álag, óvissa og stundum hreinlega kvíði og depurð, allt eftir stöðu og aðstæðum fólks í lífinu. Það er ýmislegt sem veldur. Það er t.d. alveg fullkomlega eðlilegt að kvíða því að vera heima eða á ferðinni með ung börn í nokkrar vikur samfleytt. Þeir foreldrar koma sennilega ekki endurnærðir til baka í vinnu. Eins getur fólki kviðið því að eiga ekki maka, félaga eða vini til að gera plön með. Þá er fjárhagsstaða fólks misjöfn og ljóst að sumarplönin geta kostað skilding sinn. Því er alveg ljóst að við hlökkum ekki öll jafn mikið til og vorin og sumrin geta reynst sumu fólki erfiður tími. Í framhaldinu vil ég þó beina sjónum mínum að fjölskyldum með börn. Mörg okkar fyllumst ýmis konar væntingum um það sem koma skal. Eftir myrkur, kulda og hríðarbyli er auðvitað fullkomlega eðlilegt að við viljum gera plön um viðburðarríkt og skemmtilegt sumar. Sá böggull fylgir þó skammrifi hjá okkur Íslendingum að við höfum ekki úr löngum tíma að moða, þar sem við vitum að haustið kemur áður en við vitum af. Já, en þá er auðvitað fyrsta mál á dagskrá hjá barnafólki að finna út úr því hvað gera eigi við börnin fram að sumarfríinu okkar foreldranna. Þar koma námskeið og sumarbúðir oft til bjargar og auðvitað ömmur, afar og aðrir aðstandendur. Það getur reynst heljarinnar mál að bóka námskeiðin sem börnin vilja helst fara á. Setið er um sum námskeið, þeim fylgir kostnaður og tímasetningin þarf auðvitað að henta, jafnvel ekki bara þínu eigin barni, heldur líka vinkonu eða vini þeirra. Tips frá mömmu og sálfræðingi! Merkja í dagatal OG setja áminningu í símann á sumardaginn fyrsta þegar opnar fyrir skráningu helstu námskeiða. VARÚÐ! Sömu tímasetningar eiga ekki við þegar bóka á sumarbúðir skáta eða sumarbúðir hjá KFUM/K. Merkja það sérstaklega! Jæja, tékk! Þá er komið að því að plana fríið sjálft. Eins og alvöru Íslendingum sæmir ætlum við ekki að verða fyrir vonbrigðum, alls ekki valda krökkunum vonbrigðum og alls, alls ekki missa af því þá gætum við fengið FOMO (e. fear of missing out)! Fyrst þarf að vísu aðeins að klára að bera á pallinn og græja garðinn, já og finna einhvern til að vökva á meðan...já og síðan fer íbúðin í leigu á Airbnb þarna um miðjan júlí. Er búið að smyrja bílinn og skipta um dekkinn, er hann með skoðun? Já síðan eru börnin líka að fara á íþrótta-/skólahljómsveita- eða skátamót! Vantar ekki eina stöng í tjaldið? Úffff.... Því getur sem sagt fylgt óhemju álag að skipuleggja og fara í langþráð sumarfrí. Það getur líka valdið streitu í samskiptum á heimilinu. Stundum eru fjölskyldumeðlimir með mjög ólíkar væntingar og því oft flókið að halda jafnvægi gagnvart óskum hvers og eins. Umræðan um sumarfrí snýr oftast að gleði og glaumi, því mikilvægt að minna okkur á að það er eðlilegt að okkur líði ekki alltaf vel á sumrin eða í sumarfríinu. Því fylgir einnig gjarnan streita, álag og fjárhagskvíði sem getur valdið okkur vanlíðan. Einnig getur því fylgt vanlíðan að vera hreinlega ekki að njóta nægilega þess sem við plönuðum. Því legg ég til nokkur ráð: 1. Spyrðu þig hvernig þú vilt koma undan sumrinu (andlega, líkamlega og fjárhagslega). 2. Ef þú ert hluti af fjölskyldu, haltu fund með fjölskyldunni og spurðu þau að því sama og um vonir og væntingar þeirra til sumarsins. 3. Gerið plön sumarsins út frá því samtali, og setjið ykkur þannig raunhæf markmið þar sem væntingum allra er stillt í hóf. Orlofsdagarnir eru okkur mikilvægir til að hlaða batteríin og endurnæra okkur. Hluti þess er að við hvílum okkur. Suma daga ættum við því kannski að gera hreinlega ekki neitt merkilegt, án samviskubits! Það má vissulega líka hvíla sig í veiði, útilegu eða með öðru móti sem krefst skipulagningar en þá skulum við einnig hafa það hugfast að skipulagið og undirbúningurinn valdi okkur ekki meiri streitu en hvíldin sem við fáum út úr ferðalaginu sjálfu. Væntingar okkar til sumarsins geta því skipt sköpum um það hvernig við upplifun fríið okkar á endanum. Séum við t.d. með væntingar um að það verði sól alla daga í júlí, er nokkuð ljóst að við verðum fyrir vonbrigðum. Vöndum okkur við að keyra ekki fram úr okkur í sumar, sýnum sjálfum okkur og öðrum mildi og leyfum okkur kannski stundum að gera bara ekki neitt! Höfundur er sálfræðingur hjá Lífi og sál, en einnig mamma, maki, og vís til að taka sér allt of mikið fyrir hendur! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Geðheilbrigði Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Sjá meira
„
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar