Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Freyja Þórisdóttir skrifar 1. maí 2026 14:40 Slysið varð þann 5. mars en í dag er Finnur Alexander Lazar Sorinsson farinn að geta gengið og hreyft sig en hann á enn langt í land með að ná fullum bata. Hann segist heppinn að hafa verið sterkur og hraustur fyrir slysið og það muni mikið um það í bataferlinu. Aðsend Finnur Alexander er nýorðinn tuttugu og eins árs gamall en þann 5. mars þessa árs lenti hann í slysi sem umturnaði lífi hans. Í dag gengur hann um á hækjum, er á leið í sjöundu aðgerðina á nánast jafn mörgum vikum og hefur þurft að láta af daglegum venjum. Þrátt fyrir lífsgæðaskerðinguna er Finnur jákvæður og hefur tekist á við aðstæður með húmorinn að vopni. „
Ég var nýbúinn að skutla systur minni niður í miðbæ Reykjavíkur og var á leiðinni í Hafnarfjörð þegar ég sá bíl með hazardljósin á úti í vinstri kanti. Þá ákvað ég að stöðva bílinn minn og aðstoða ökumennina sem höfðu sprengt dekk,“ byrjar frásögn Finns en atburðarrásin tók krappa U-beygju þegar árekstur varð þar sem jeppi keyrði aftan á bílana tvo. „Mér finnst ekkert mál að hjálpa fólki og er vanur því sjálfur að gera við bíla. Þannig að ég fór strax að finna til tjakk og þegar það stoppaði annar konar og bauðst til að hjálpa sagðist ég geta séð um þetta bara,“ segir Finnur en fyrir slysið var hann að stefna á flugskólann. Varð fyrir bílnum Finnur var búinn að fara í sitt fyrsta kynnisflug en hann var að stefna á flugnám áður en slysið skeði.aðsend Finnur, sem stóð utan við bílana þegar áreksturinn varð, kastaðist heila sex metra og lenti svo harkalega á jörðinni. „Þegar bíllinn klessti á mig þá keyrði hann inn í hægri hlið líkamans sem endaði þannig að hægri mjöðmin, lærið og sköflungurinn brotnuðu á fimm mismunandi stöðum, lærleggurinn brotnaði alveg í tvennt og beinbrotið á sköflungnum var opið,“ segir Finnur. Hann þarf á þessum tímapunkti að taka hlé á samtalinu við blaðamann, orðinn of verkjaður til að halda áfram í bili. Hann segist alltaf finna fyrir verkjum. Var með meðvitund allan tímann Áverkarnir voru alvarlegir, Finnur margbrotnaði á hægri fótlegg við lendingu á hörðu malbikinu og meðal áverka var opið beinbrot á sköflung. Hægri lærleggur og mjaðmagrind brotnuðu einnig en þannig var þvagrásin rifin til og hefur Finnur þurft að vera með þvaglegg frá því að slysið varð. Hann var fluttur hið snarasta á slysadeild Landspítalans en þar lá hann inni í tæpan mánuð. Finnur var helaumur og marinn upp eftir öllu bakinu en í raun fór mögulega aðeins betur en á horfðist. „Ég var vakandi allan tímann, þegar ég lá þarna á jörðinni. Þegar ég reyndi að hreyfa neðri hluta líkamans gerðist ekkert,“ segir Finnur og útskýrir að vinstri fóturinn hafi farið miklu betur út úr slysinu en að hann hafi á þessu augnabliki talið að hann hefði lamast. Finnur útskrifaðist í fyrra frá Fjölbrautaskóla Norðurlands Vestra (FNV) en þar var hann í rafvirkjanámi.aðsend „En það er víst þannig að þegar mjöðmin brotnar svona illa er ekki hægt að hreyfa fæturna. Ég var samt með meðvitund og gat sagt kennitöluna mína, nafnið mitt og hver nánasti aðstandandi var,“ segir Finnur frá en hann er enn þá í endurhæfingu og fer von bráðar í sjöundu aðgerðina síðan slysið varð. Getur ekki lengur gengið óstuddur Hann var fluttur af slysadeildinni yfir á endurhæfingardeild Landspítalans á Grensás. Fyrst um sinn gat Finnur ekki gengið nema með því að styðjast algjörlega við göngugrind. „Þvagrásin og þvagleggurinn ollu því að ég mátti ekki setja neinn þunga í fæturna, eða bara um fimm kíló, þannig að ég þurfti að nota göngugrind til að geta gengið um,“ segir Finnur og rifjar upp að fyrir slysið hafi hann farið nánast daglega út í göngutúra með hundinn sinn, schnauzerinn Svala. Finnur er uppalinn á Sauðárkróki og útskrifaðist í fyrra úr rafvirkjanámi við Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra. Í dag er Finnur ekki fær um að vinna líkt og hann gerði áður. Eftirköstin margs konar Hann getur ekki enn setið venjulega og hefur ítrekað fengið sýkingar vegna notkunarinnar á þvagleggnum. Það hafa myndast steinar í þvaginu sem stífluðu þvaglegginn. Þá urðu jafnframt eftirköst í opna beinbrotinu en hann fékk sýkingu í það og endaði á því að þurfa að fara í sýklalyf. Tekin var húð af lærinu og hún notuð til að loka beinbrotinu. Á myndinni má sjá Finn spila á Laufskálaréttarballi með hljómsveit pabba síns sem ber heitið Von.Aðsend „Ég er hjá sjúkraþjálfara núna en það er takmarkað hversu mikið af æfingum ég má gera fyrr en þvagleggurinn er tekinn. Það á vonandi að gerast í maí. En það voru settir naglar í lærlegginn og sköflunginn af því að gifs hefði ekki dugað til. Naglarnir verða vonandi teknir næsta vor,“ segir Finnur og segir frá því að hann hafi lést verulega og sé í dag 49 kíló. Hann er á sterkum verkjalyfjum sem að hans sögn hafa orðið til þess að hann dreymir illa en af og til fær hann hroll við tilhugsun um áfallið. Andleg líðan hafi farið versnandi en hann hafi bara nýlega byrjað að sofa ágætlega og byrjað að hreyfa sig eitthvað af viti. Á að ná fullum bata „Ég ætti að geta hreyft mig að fullu eftir um ár en ég er búinn að fara í sex aðgerðir hingað til og á eina eftir. Flestar voru þannig að ég var svæfður,“ segir Finnur en sjúkrasaga þessa unga manns er ansi óvenjuleg og hefur hann alls fjórum sinnum verið lagður inn á gjörgæslu. „Viku áður en slysið varð var ég loksins að jafna mig á sýkingu í barkakýlinu og ári áður, á útskriftardaginn minn, var ég lagður inn á gjörgæslu vegna þess að ég fékk sepsis, lífshættulega blóðsýkingu,“ segir Finnur. Hann hefur því fengið sinn skerf af óhöppum og vonar að því fari að linna. „Mig langar svo að koma sögunni minni út svo að fólk átti sig á því að lífið getur verið tekið í burtu af þeim,“ segir Finnur og ítrekar að slysin geri ekki boð á undan sér.
Tímamót Samgönguslys Bílar Mest lesið Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Fleiri fréttir Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Sjá meira