Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar 1. maí 2026 13:00 Það er auðvelt að taka þeim réttindum sem við eigum sem sjálfsögðum hlut, svo sem að vinna á mannsæmandi launum, að eiga rétt á fríi og að geta treyst á veikindarétt, fæðingarorlof, atvinnuleysisbætur eða stuðning þegar lífið fer úr skorðum. En ekkert af þessu varð til af sjálfu sér, heldur er þetta afrakstur langrar og oft harðrar verkalýðsbaráttu. Ég finn það sterkt á 1. maí hve mikilvægt það er að muna þetta. Ekki bara til að horfa til baka, heldur til að átta okkur á því að þessi barátta er ekki búin. Verkalýðsbaráttan snýst um mig og þig, raunverulegt fólk og raunverulegar aðstæður. Baráttan snýst um fólk sem nær ekki endum saman, fólk sem þarf að velja á milli þess að borga leigu eða kaupa mat, fólk sem lendir í áföllum og þarf kerfi sem grípur það í stað þess að skilja það eftir. Áskoranir ungs fólks Ungt fólk í dag stendur frammi fyrir áskorunum sem ættu ekki að vera eðlilegar. Ungt fólk í dag stendur frammi fyrir því að þurfa að leggja út í miklar skuldbindingar á mjög stuttum tíma. Fólk er að mennta sig, stofna fjölskyldu, koma undir sig húsnæði, koma inn á vinnumarkaðinn og á eftir að vinna sig upp launastigann. Samhliða þessu eru kerfin sem eiga að mæta ungu fólki ekki að virka fyrir það; Tekjufall í fæðingarorlofi, brúun bilsins frá fæðingarorlofi til leikskólavistar, styttri dvöl í leikskólum en vinnudagur foreldranna er, dýr húsaleiga sem gerir næstum ókleift að safna fyrir eigin húsnæði og svo mætti lengi telja. Kerfin okkar verða að létta undir með ungu fólki svo hægt sé að réttlæta að við greiðum hærri skatta þegar við eldumst. Verkalýðsbarátta dagsins í dag Kjarni verkalýðsbaráttu í dag snýst nefninlega ekki bara um laun, heldur lífsskilyrði. Það að fólkið okkar þurfi ekki að skuldsetja sig til að lifa af. Það er ástæðan fyrir því að ég er stolt af því að vera hluti af þessari hreyfingu. Ekki því að baráttan hefur skilað fullkomnum afrakstri, heldur því að hér er kraftur sem hefur raunverulega breytt samfélaginu til hins betra. Kraftur sem getur haldið áfram að gera samfélagið okkar betra ef við stöndum saman. Við getum litið á 1. maí sem táknrænan dag, dag sem við þurfum að taka alvarlega. Dag sem er áminning til okkar um þau réttindi sem tapast ef þau eru ekki varin og að framfarir verði ekki nema einhver berjist fyrir þeim. Munum að slæmir hlutir gerast af sjálfu sér, góðum hlutum er stýrt. Baráttan heldur áfram og ég vel að vera hluti af henni. Sýnum samstöðu í dag og mætum í kröfugöngur verkalýðsfélaganna. Höfundur er formaður ASÍ-UNG og oddviti á lista Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Verkalýðsdagurinn Samfylkingin Ísafjarðarbær Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar