„Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. maí 2026 20:50 Björn Brynjúlfur og Unnar Geir. Samsett Orð framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs, sem sagði verkalýðsfélög úrelt, hafa fallið í grýttan jarðveg hjá fulltrúum félaganna. Þau telja samanburð framkvæmdastjórans á kjörum í Sviss og Portúgal villandi.
Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, var meðal gesta í nýjasta þætti hlaðvarpsins Þjóðmál sem kom út í gær. Aðspurður hvort dagurinn, 1. maí, hafi einhverja sérstaka þýðingu fyrir þau segir Björn daginn vera ákveðna tímaskekkju. Hann bætti því við að honum fyndist „verkalýðsfélög vera hugmyndafræðilegt fyrirbæri sem séu bara orðin svolítið úrelt“. Unnar Geir Unnarsson, sem situr í stjórn Visku stéttarfélags, er einn þeirra sem hafa tjáð sig um málið í skoðanagrein á Vísi. „Það er heldur sérstakt að heyra framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs halda því fram að verkalýðsfélög séu „tímaskekkja“ og þau hefði bara átt að leggja niður um aldamótin. Svona yfirlýsingar eru í besta falli misskilningur eða í versta falli alvarleg forréttindablinda,“ segir Unnar Geir. „Gott starf verkalýðshreyfingarinnar er ástæða þess að við búum við þau réttindi sem mörg taka sem sjálfsögðum hlut í dag: stytting vinnuvikunnar, orlof, veikindarétt, lágmarkslaun og öryggi á vinnustað. Ekkert af þessu kom af sjálfu sér, þetta eru áunnin réttindi sem fólk barðist fyrir.“ Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir, varaformaður ASÍ-UNG, segir ummæli Björns kalla á viðbrögð. „Þessi sjónarmið eru kannski ekki ný á nálinni en þau draga upp mynd sem stenst illa raunveruleikann á íslenskum og alþjóðlegum vinnumarkaði.“ Villandi samanburður Í hlaðvarpinu sagði Björn frá nýlegu ferðalagi sínu til bæði Sviss og Portúgal og að þrátt fyrir að í því síðarnefnda séu „miklu sterkari réttindi verkafólks“ þá sé miklu betra að vera launþegi í Sviss. Verkalýðsfélögin hafi vissulega gert góða hluti á 20. öldinni en væru óþörf í dag. Unnar Geir segir að halda því fram að verkalýðsbaráttan sé skyndilega orðin óþörf ekki einungis rangt heldur hættulegt. „Því veruleikinn er sá að valdaójafnvægið milli launafólks og atvinnurekenda hefur ekki horfið, það birtist bara með öðrum hætti en áður. Í heimi alþjóðavæðingar, gigg-hagkerfis og aukinnar samþjöppunar auðs hefur þörfin fyrir skipulagt mótvægi líklega aldrei verið meiri,“ segir hann. Þá sé það varhugavert og yfirborðskennt að bera saman kjör fólks í Sviss og Portúgal þar sem lífskjör ráðist af fleiri þáttum heldur en styrk verkalýðsfélaga. Elsa Hrönn tjáir sig einnig á sömu nótunum og segir samanburðinn villandi. „Lífskjör og staða vinnumarkaðar ræðst ekki einungis af tilvist verkalýðsfélaga heldur einnig af framleiðni, menntun, atvinnugreinum og efnahagsstefnu. Það er því ósanngjarnt að setja fram þá ályktun að veikari verkalýðsfélög leiði til betri kjara, því vinnumarkaðurinn byggir á samspili margra þátta og það að reyna að einfalda hann og merkja við einn þátt er einfaldlega rangt,“ segir hún. Elsa Hrönn spyr hvað myndi gerast ef verkalýðsfélögin hyrfu. „Því miður er staðan sú að einstaklingurinn stæði einn gagnvart vinnuveitanda sínum. Í einhverjum tilfellum gæti það gengið upp til skemmri tíma, en fyrir flesta myndi það þýða veikari samningsstaða, minni vernd og aukin óvissa. Sagan sýnir okkur það að réttindi launafólks eru ekki sjálfgefin.“
Stéttarfélög Kjaramál Vinnumarkaður Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Sjá meira