Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Árni Sæberg skrifar 4. maí 2026 10:38 Runólfur Ólafsson er framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB. Vísir/Ívar Fannar Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda segir lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti hafa að mestu skilað sér til neytenda. Ein undantekning sé þó á því, enda hafi Costco lækkað verð á dælum um 17 krónur en ekki 21 eða 22 krónur.
Virðisaukaskattur á bensín og dísil hefur verið lækkaður úr 24 prósentum í 11 prósent og verður það út sumarið eða til 31. ágúst samkvæmt tímabundinni heimild sem gefin var í lögum sem samþykkt voru á Alþingi fyrir helgi. Samkeppniseftirlitinu hefur verið falið að fylgjast með því að lækkunin skili sér að fullu til neytenda en eftirlitið hefur ekki verið útfært. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, var gestur Bítisins á Bylgjunni í morgun, þar sem umræðuefnið var lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti. Skiptir ekki máli þótt olían sé frá Noregi Hann sagði að félagið hefði séð að lækkun hefði skilað sér að fullu til neytenda en það með einni undantekningu, Costco. Hvað vantar mikið upp á þar? „Það má eiginlega segja að miðað við eðlilega verðmyndun þá hefði eldsneytisverð hjá Costco átt að vera að lækka um 21, 22 krónur en var að lækka um tæpar 17 krónur. En svo aftur á móti veit ég ekki hvernig Costco kaupir. Þeir eru, að því er best við vitum, að kaupa eldsneytið af Skeljungi og öll íslensku félögin kaupa af Equinor í Noregi.“ Heimsmarkaðsverð á olíu ráði þó verðinu hér á landi, þrátt fyrir að allt eldsneyti sé keypt frá Noregi. Því hafi átök í Persaflóa áhrif á verðið hér þrátt fyrir að þau hafi engin áhrif á olíuframleiðslu Norðmanna. Fagnar eftirlitinu Þá sagði Runólfur að það hefði verið jákvætt innlegg af hálfu ríkisstjórnarinnar að lækka virðisaukaskattinn tímabundið. „En ég fagna því líka, sem ýmsir hafa kvartað yfir, að það séu auknar valdheimildir til Samkeppniseftirlitsins að hafa eftirlit með þessu. Og þetta er bara svona að fenginni reynslu. Við kvörtuðum yfir því um áramót þegar skattabreytingarnar miklu áttu sér stað, þegar olíugjöld og bensíngjöld voru tekin út og í staðinn kom kílómetragjald. Þá höfðu olíufélögin verið að halda verðinu svolítið háu fram að áramótum og hafði í rauninni verið hagstætt ástand á heimsmarkaði, þannig að það hefði verið tilefni til lækkunar sem ekki var verið að skila.“ Viðtal við Runólf má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan:
Bensín og olía Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skattar, tollar og gjöld Verslun Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira