Deildi rúmi með pabba og fékk stuðning veikrar mömmu til að ná á toppinn Sindri Sverrisson skrifar 5. maí 2026 10:01 Wu Yize með heimsmeistarabikarinn sem hann þurfti að hafa svo mikið fyrir að vinna. Getty/Tai Chengzhe Hinn 22 ára gamli Kínverji Wu Yize er nýr heimsmeistari í snóker eftir að hafa unnið Shaun Murphy í úrslitaleik í Sheffield í gærkvöld, 18-17. Hann þurfti að færa miklar fórnir til að komast á toppinn.
Yize flutti frá heimaborg sinni Lanzhou alla leið til Bretlands fyrir sex árum, þegar hann var aðeins 16 ára, ásamt pabba sínum í von um að láta drauma sína rætast í snókerheiminum. Móðir hans varð hins vegar eftir heima og var Yize himinlifandi í gær með að hafa unnið heimsmeistaratitilinn með báða foreldra á svæðinu. „Mamma mín var mjög lengi ekki við góða heilsu. Þegar við vorum í Sheffield þá var hún mikið á spítalanum. Hún er eilíf uppspretta styrks fyrir mig,“ sagði Yize eftir sigurinn í gær, samkvæmt BBC. „Henni líður mikið betur núna. Þetta er aðeins í annað sinn sem að hún heimsækir mig til Bretlands. Ég held að í framtíðinni fái ég hana til að vera oftar mér við hlið hérna. Hún fórnaði öllu fyrir mig. Á sínum tíma sagði hún við mig: „Ekki koma aftur heim, ég get séð um allt hérna.“ Þá var ég á öðru ári í spilamennsku hérna í Bretlandi. Á þeim tíma var ég svo lágt skrifaður að það var alveg nauðsynlegt fyrir mig að spila og ná góðum úrslitum til þess að fá að halda áfram í atvinnumennskunni. Hún er mér allt,“ sagði Yize. Gæti drottnað yfir íþróttinni næstu árin Á blaðamannafundinum í gær sagði hann einnig frá því að þegar þeir feðgar hefðu flutt til Sheffield hefðu þeir þurft að deila rúmi í gluggalausri íbúð. Nú er Yize orðinn sá besti í heimi og það kemur þeim sem fylgst hafa með ferli hans ekki á óvart. „Þessi strákur er algjörlega framúrskarandi. Ég hef þekkt Wu í nokkur ár, þekkt pabba hans í mörg ár, og séð baráttuna fyrir því að komast á þennan stall,“ sagði Jason Ferguson, formaður alþjóða snókersambandsins, sem hefur mikla trú á að Yize verði goðsögn í íþróttinni. „Þú trúir ekki hvað það þýðir fyrir þessa fjölskyldu að vera í raun og veru á þessum vettvangi og halda á þessum bikar. Þetta er alveg ótrúleg stund. Við erum að sjá straumhvörf og þau verða að eiga sér stað. Wu er núna raunverulega að ganga inn í það tímabil að verða einn af þeim bestu, þar sem hann getur haldið áfram og sigrað, sigrað og sigrað,“ sagði Ferguson.
Snóker Mest lesið Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Körfubolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Íslenski boltinn Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Íslenski boltinn Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Íslenski boltinn Magnað mark dugði fyrir sigri Enski boltinn „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sigurganga Börsunga heldur áfram Svekkjandi tíu manna janftefli hjá Frey Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum „Við ætlum að vinna rest“ Fram - KR | Hörð barátta um annað sætið Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Fiskaði rautt spjald í sigri Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Henderson í stuði í stórsigri Enn með fullt hús Mikael lagði upp og meiddist en Logi í basli gegn Salah ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram Magnað mark dugði fyrir sigri Óvænt truflun í Njarðvík „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ Fór fram úr Verstappen og svo fram úr sér „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Bakgarðsáskorunin: Íslandsmeistarinn einbeittur Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Býður við skrifunum: „Ég er Satan“ Dagskráin í dag: Risa leikir strax eftir landsleikjahlé Tap í heimalandinu reyndist síðasti naglinn í kistuna Sjá meira