Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 6. maí 2026 17:12 Arion banki hefur birt afkomuna á fyrsta ársfjórðungi. Vísir/Vilhelm Arion banki skilaði hluthöfum sínum hagnaði upp á 7,3 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi. Það er tæpum milljarði meira en á fyrsta ársfjórðungi á síðasta ári.
Það gerði hagnað á hlut 5,33 krónur samanborið við 4,59 krónur fyrir ári síðan. Hreinar þjónustutekjur bankanslækkuðu hins vegar milli ára, í lok fyrsta ársfjórðungs 2026 eru þær 3,9 milljarðar króna en voru 4,5 milljarðar króna í lok fyrsta ársfjórðungs 2025. „Afkoma bankans á fyrsta ársfjórðungi er í samræmi við væntingar og markmið. Tekjur Arion samstæðunnar byggja á fjölbreyttum stoðum sem hefur sveiflujafnandi áhrif og eykur áhættudreifingu. Áfram er samstæðan fjárhagslega sterk og með góða eigin- og lausafjárstöðu sem gerir okkur kleift að efla þjónustu við viðskiptavini enn frekar en einnig takast á við þær margvíslegu áskoranir sem eru í ytra umhverfi,“ er haft eftir Benedikt Gíslasyni, bankastjóra Arion banka, í tilkynningu. Einnig jukust lán til viðskiptavina um 23,2 milljónir króna eða 1,7 prósent á fjórðungnum á meðan kaup eigin hlutabréfa og arðgreiðslur námu 20,7 milljörðum króna. „Vegna hárra vaxta hefur undanfarin misseri verið mikil eftirspurn eftir verðtryggðum íbúðalánum og var nokkur vöxtur í lánum til einstaklinga á ársfjórðungnum. Fyrir bankann fylgir sá ókostur verðtryggðum íbúðalánum að þau eru að miklu leyti fjármögnuð með óverðtryggðum hætti, til dæmis í gegnum innlán viðskiptavina. Það leiðir til ójöfnuðar í efnahag bankans, þar sem verðtryggðar eignir eru umtalsvert meiri en verðtryggðar skuldir, og sveiflna í tekjum í takt við verðbólgu og verðbætur. Reiknaðar verðbætur voru umtalsverðar á fyrsta ársfjórðungi enda verðbólga óvenju mikil á tímabilinu,“ segir Benedikt. Rekstur Varðar skilaði 100 milljóna króna tapi, samanborði við sex hundruð milljóna króna tapi fyrir ári síðan. Kjarnatekjur, það er hreinar vaxta-, þóknana- og tryggingatekjur án rekstrarkostnaðar tryggingastarfseminnar, jukustu um rúm tuttugu prósent í samanburði við fyrsta ársfjórðung 2025.
Arion banki Uppgjör og ársreikningar Fjármálafyrirtæki Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira