Sigríður hjólar í Hönnu Katrínu: Eini ráðherrann sem vill hvorki sjá né heyra af atvinnulífinu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 8. maí 2026 08:41 Sigríði þykir Hanna Katrín gera úlfalda úr mýflugu varðandi málið í Eyjum og segir hana draga Miðflokkinn inn í málið að ósekju. Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, fer hörðum orðum um Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra á Facebook og segir hana „eina ráðherra málaflokksins sem vill helst hvorki sjá né heyra af atvinnulífinu“.
Tilefni skrifa Sigríðar er færsla sem Hanna Katrín birti á Facebook, þar sem hún tengdi ljót orð stuðningsmanns ÍBV um markmann Vals í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta kvenna við „innflutta fordóma“ Miðflokksins í garð hinsegin fólks. Í færslu sinni sakaði Hanna Katrín Miðflokkinn um að vilja hverfa aftur til þess tíma þegar hinsegin fólki var „haldið í skugganum“ og sagði meðal annars: „Ein uppáhaldsiðja Miðflokksmanna er að misnota íslenska fánann í fordómafullri orðræðu sinni um málefni hinsegin fólks. Þess vegna er rétt að draga fram að sem afrekskona í íþrótt sinni, landsliðskona sem hefur borið hróður Íslands víða, hefur Hafdís Renötudóttir gert margfalt meira til að heiðra íslenska fánann en allir Miðflokksmenn til samans.“ „Eyjamenn eru ekki gengnir af göflunum“ Sigríður sakar Hönnu Katrínu um að seilast langt í gagnrýni sinni á stuðningsmenn ÍBV og bendir á að í ljós hafi komið að um hafi verið að ræða einn einstakling, sem beindi spjótum sínum að kynhneigð Hafdísar, eins og áður hefur fram komið. „Ef ekki hefði verið fyrir umferðaröngþveitið sem Viðreisn hefur staðið vörð um í borgarstjórn síðasta tæpa áratug hefði ég mögulega keyrt út af þegar ég heyrði fréttaþul vísa áfram í yfirlýsingu atvinnuvegaráðherrans, þessa um atvikið á leik ÍBV og Vals, en nú var Miðflokkurinn kominn í aðalhlutverk í allsherjar samsæriskenningu ráðherrans um aðför að samkynhneigðum,“ segir Sigríður, sem var föst í umferð í Reykjavík þegar hún heyrði fréttir af færslu Hönnu Katrínar. Sigríður sakar ráðherra um fordóma og ósannindi í garð Miðflokksins vegna „óvandaðrar uppákomu“ af hálfu eins manns á íþróttakappleik. Þá fer hún hörðum orðum um Hönnu Katrínu. „Hún hefur látið sér fátt um finnast um áhrif skattaherferðar ríkisstjórnarinnar á smærri byggðarlög og atvinnulífið. Hún virðist líta á undirstöðu íslensk efnahagslífs, sjávarútveginn, sem vandamál sem þurfi að minnka en ekki stækka.“ Sigríður segir Hönnu Katrínu heldur eiga að nýta vinnutíma sinn í að láta sig varða samgöngur til Eyja, fremur en vangaveltur um eina boltabullu. „Eyjamenn eru ekki gengnir af göflunum. Þó hafa þeir sömu ástæðu til þess eins og ég og aðrir landsmenn, sem er: Ráðherrar sem valda ekki verkefninu sem snýr að efnahag landsins og kjörum landsmanna,“ segir hún að endingu.
Hinsegin Viðreisn Miðflokkurinn Vestmannaeyjar Mest lesið Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent Ekið á hjólreiðamann Innlent Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi Innlent Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Erlent Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Erlent „Ég elska þennan flugvöll“ Innlent Babb í bátinn enn eina ferðina Innlent „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Innlent „Þverhausar“ komi í veg fyrir umræðu um sameiningu fyrir vestan Innlent Svona gekk að flytja vindmyllurnar Innlent Fleiri fréttir Leikskólagjöld fyrir fulla vistun hækkað um allt að 85 prósent Ekið á hjólreiðamann Sigríður hjólar í Hönnu Katrínu: Eini ráðherrann „sem vill hvorki sjá né heyra af atvinnulífinu“ Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi „Þverhausar“ komi í veg fyrir umræðu um sameiningu fyrir vestan Fjölga stæðum fyrir deilibíla og rafhlaupahjól í Reykjavík Einn öskrandi og til ama og annar sofandi á gatnamótum Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka „Ég elska þennan flugvöll“ „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Svona gekk að flytja vindmyllurnar Babb í bátinn enn eina ferðina „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Tveggja bíla árekstur á Reykjavíkurvegi „Við erum bara að mótmæla“ Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgarstjóra en Björgu Milljónum í reiðufé stolið Milljóna þjófnaður úr spilakössum, flóknar meirihlutaviðræður og lóð gróðrarstöðvar til Víkings Bein útsending: Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Kylfingar í Mosó geta farið að dusta rykið af golfdóti sínu Hnökrar í innleiðingu á gjaldfrjálsum strætó fyrir reykvísk ungmenni Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur hækkuðu um 37 prósent milli ára Tryggja rekstur Hjálparsímans til tveggja ára Bréf ríkisendurskoðanda á borði forsætisnefndar Beygjur og hringtorg mesta áskorunin fyrir vindmyllulestina Vextir tífaldast eftir að Menntasjóður námsmanna tók við af LÍN Hafnar því að hafa gengið nakinn um sameignina Ársæll fékk aftur nei við vitnaleiðslubeiðni Kosningaspá Vísis: Baráttan færist á aftari sætin og sótt að Miðflokki og Samfylkingu Sjá meira