Hvað hefur gerst í leikskólamálum á kjörtímabilinu? Finnbjörn Hermannsson og Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifa 8. maí 2026 11:20 Leikskólamál eru eitt af stóru málunum í komandi sveitarstjórnarkosningum. Leikskólinn er fyrsta skólastigið, sinnir lykilþjónustu við börn og fjölskyldur og er ein af forsendum þess að foreldrar, ekki síst mæður, geti tekið virkan þátt á vinnumarkaði. Frá því að uppbygging leikskólakerfisins hófst af alvöru hefur hlutverk þess vaxið jafnt og þétt. Leikskólinn er ekki lengur hugsaður sem gæsluúrræði heldur sem mennta- og velferðarstofnun sem jafnar tækifæri barna, styður við þroska þeirra og gerir foreldrum kleift að samræma fjölskylduábyrgð og atvinnuþátttöku. Í gegnum tíðina hefur verið mikil ánægja með leikskólakerfið og í alþjóðlegum samanburði þykir það gott en á undanförnum árum hefur hallað undan fæti. Það er óumdeilt að staða leikskólanna er víða erfið. Skortur er á starfsfólki, álag er mikið, húsnæði er sums staðar ófullnægjandi og styrkja þarf starfsumhverfið. Starfsfólk leikskóla á skilið betri starfsaðstæður, fullnægjandi mönnun, öruggt húsnæði og kjör sem endurspegla mikilvægi starfsins. ASÍ og BSRB hafa tekið saman yfirlit um þróun leikskólaþjónustu í fjölmennustu sveitarfélögum landsins á kjörtímabilinu 2022–2026. Samantektin sýnir skýra þróun: Víða hefur þjónustan orðið kostnaðarsamari og flóknari fyrir barnafjölskyldur. Foreldrar standa frammi fyrir styttri opnunartíma, fleiri lokunardögum, nýjum gjaldtökuformum, flóknari afsláttarkerfum og hærri gjöldum fyrir fulla vistun. Áskoranir leikskólans kalla á raunverulegar lausnir. Þær verða ekki leystar með því að skerða þjónustu við börn og fjölskyldur eða velta kostnaðinum yfir á foreldra. Þrátt fyrir það hafa mörg sveitarfélög gripið til slíkra úrræða á kjörtímabilinu. Verulegar gjaldskrárhækkanir í mörgum sveitarfélögum Gjaldskrár hafa víða tekið miklum breytingum. Leikskólagjöld fyrir fulla vistun, 8–8,5 tíma á dag, hafa í mörgum sveitarfélögum hækkað verulega á kjörtímabilinu, eða um allt að 85%. Í þeim stærstu kostar 8 tíma vistun víða um 50.000 krónur á mánuði og 8,5 tíma vistun allt að 68.000 krónur. Afsláttarkerfin hafa líka breyst. Víða hafa afslættir fyrir tiltekna hópa, svo sem námsfólk, einstæða foreldra og fólk með örorku, verið felldir niður og tekjutengingar teknar upp í staðinn. Tekjumörk eru lág og stærstur hluti fullvinnandi foreldra fellur utan afslátta. Í tengslum við gerð kjarasamninga vorið 2024 lýstu sveitarfélögin yfir vilja til að stilla gjaldskrárhækkunum í hóf á samningstímanum og átti þar sérstaklega að horfa til gjaldskráa er varða barnafólk og fólk í viðkvæmri stöðu. Þessar hækkanir eru því þvert á gefin loforð. Hópurinn sem gjaldskrárhækkanir og skert þjónusta bitnar helst á eru foreldrar í ósveigjanlegum störfum eða sem eiga lítið sem ekkert bakland. Hækkanirnar bætast ofan á þunga stöðu margra heimila eftir tímabil mikillar verðbólgu og hárra vaxta. Skerðing á þjónustu Í mörgum sveitarfélögum hefur opnunartími leikskóla og hámarksdvalartími barna verið skertur. Dæmi eru um styttri opnunartíma á föstudögum, 40 klukkustunda hámarksvistun á viku og jafnvel skemmri vistun fyrir yngstu börnin. Slíkar breytingar geta haft raunverulegar afleiðingar á líf margra fjölskyldna. Þær þrengja svigrúm foreldra til að vinna fullan vinnudag, sinna störfum með óreglulegum vinnutíma eða samræma atvinnu og fjölskyldulíf án þess að treysta á bakland, sem ekki allir hafa aðgang að. Samhliða þessu hafa svokallaðir skráningardagar verið teknir upp í mörgum sveitarfélögum. Þetta eru almennir vinnudagar, t.d. á milli jóla og nýárs og í dymbilviku. Þeir eru oftast á bilinu 5–20 á ári og gjald fyrir hvern nýttan dag er almennt 2.500–5.000 krónur. Þetta eru dagar sem áður voru hluti af almennri leikskólaþjónustu en eru nú orðnir sérstakur kostnaðarliður. Leikskólagjöldin ráðast því í auknum mæli af því hvaða daga foreldrar þurfa að nýta þjónustuna, hvernig vinnutíma þeirra er háttað og tekjum foreldra, vegna tekjutengdra afsláttarkerfa. Leikskólar eru líka víða lokaðir fleiri almenna vinnudaga en áður. Þegar sumarleyfislokun, starfsdagar, skráningardagar og aðrir lokunardagar eru lagðir saman eru dagarnir á bilinu 30–46 á ári. Til samanburðar á launafólk almennt 24–30 orlofsdaga á ári. Það þarf ekki mikla útreikninga til að sjá að þetta gengur ekki upp fyrir mörg heimili. Foreldrar þurfa annaðhvort að kaupa sér aðstoð, reiða sig á ættingja, taka launalaust leyfi eða minnka við sig vinnu. Ábyrgð sveitarfélaga að tryggja góðar starfsaðstæður og góða þjónustu Stefna sem byggir á aukinni gjaldtöku og skerðingu á þjónustu grefur undan grundvallargildum velferðarsamfélagsins sem við viljum búa í. Sveitarstjórnir hafa margar hverjar gert grundvallarbreytingar á leikskólakerfinu án mikillar pólitískrar umræðu og starfsfólki leikskóla og foreldrum hefur verið stillt upp sem tveimur andstæðum hópum. Kjarni málsins er sá að sveitarfélög bera ábyrgð á hagsmunum beggja hópa og stefnumótun þarf að taka mið af því. Leikskólaþjónusta stendur og fellur með starfsfólkinu. Ný skýrsla Vörðu, rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins sem nær til leikskólastarfsfólks í aðildarfélögum ASÍ og BSRB, sýnir að fjárhagsstaða og heilsa starfsfólks í leikskólum er mikið áhyggjuefni. Samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar gætu 49% leikskólastarfsfólks ekki mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum án þess að stofna til skulda, 34% búa við félags- og efnislegan skort og 38% mælast með slæma andlega heilsu. Það er á ábyrgð sveitarfélaga að starfsfólk búi við mannsæmandi kjör, öruggt starfsumhverfi og viðunandi álag. Sveitarfélögin þurfa jafnframt að tryggja að foreldrar geti treyst á þjónustuna og að hún taki mið af raunverulegri stöðu foreldra á vinnumarkaði. Leikskólakerfið verður ekki styrkt með niðurskurði, með því að hækka gjöld á foreldra eða láta starfsfólk bera kerfislægan vanda á sínum herðum. Það verður styrkt með bættri fjármögnun og mönnun, bættum starfsaðstæðum og skýrri langtímastefnu. Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Finnbjörn A. Hermannsson Sonja Ýr Þorbergsdóttir Sveitarstjórnarkosningar 2026 Leikskólar Mest lesið Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Skoðun Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun