„Þá verðum við á góðum stað“ Valur Páll Eiríksson skrifar 8. maí 2026 12:45 Rúnar Kristinsson hefur getað brosað yfir flottri byrjun Fram á mótinu. Vísir / Hulda Margrét „Mér líst vel á þetta. Það er skemmtilegt verkefni fram undan og alltaf spennandi að spila við Val,“ segir Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, fyrir leik liðsins við Val í Úlfarsárdal í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld.
Fram hefur byrjað leiktíðina vel. Að undanskildu svekkjandi tapi fyrir Þór norðan heiða hefur liðinu gengið glimrandi vel og er með tíu stig eftir fimm leiki. Það hefur unnið síðustu tvo leiki 5-1 gegn ÍBV og 4-3 gegn FH. Koma þeir ekki á fínustu siglingu inn í leik kvöldsins? „Ef siglingu skyldi kalla. Við erum búnir að vinna tvo í röð og það er eitthvað sem maður vill gera oftar, að tengja saman sigra. Nú er tækifæri að reyna aðeins að lengja í því og sjá hvort við getum tekið næsta skref og unnið þriðja leikinn. Það er alltaf markmiðið, við förum í alla leiki til að vinna þá, og það er eitt sem við höfum í huga í kvöld og það er að reyna að vinna leikinn,“ segir Rúnar og bætir við: „Það koma dagar þar sem allt gengur ekki upp eins og á Akureyri. Miðað við gang leiksins hefðum við ef til vill átt að vinna, en svona er þetta bara. Þú vinnur einhverja og tapar einhverjum og færð ekki alltaf allt sem þú átt skilið.“ Framarar séu á fínum stað í upphafi móts. „En við metum stöðuna þannig að við erum með tvö stig að meðaltali í leik. Sem er bara mjög gott meðaltal og ef við getum haldið því út leiktíðina þá verðum við á góðum stað. Við höfum farið vel af stað, það er mjög jákvætt. Þetta hefur byrjað betur en í fyrra og í hitteðfyrra. Þetta er allt í réttu áttina hjá okkur.“ Valur er mótherji kvöldsins en Valsmenn töpuðu fyrir KR í síðasta leik eftir þrjá sigra í röð þar á undan. Valsmenn sættu gagnrýni í upphafi móts þar sem liðið tapaði fyrir KR í bikarnum og svo Þór heima í fyrsta leik í deild. Rúnar segir liðið þó hafa sýnt styrk sinn og sé á réttri leið. „Eins og Hermann kom inn á eftir bikarleikinn við KR að þeir voru í miklum meiðslum í vetur og náðu ekki að fastmóta sitt lið. En þetta er allt að smella hjá þeim og það sést á þessari þriggja leikja hrinu, með þrjá sigra í röð. Þeir eru vaxandi inn í þetta mót og verður áhugavert að sjá hvernig þeir mæta til leiks í kvöld,“ segir Rúnar sem býst við fínasta leik. „Þetta hafa verið ágætis leikir hjá okkur á Lambhagavellinum. Okkur hefur gengið vel að spila við þá heima og eins og alltaf reynum við að pressa aðeins á þá. Ég vona að þetta verðir skemmtilegur leikur. Við höfum skorað mikið í byrjun móts og vonandi höldum við því áfram.“ Leikur Fram og Vals hefst klukkan 19:15 og verður sýndur beint á Sýn Sport 6. Honum verður einnig fylgt eftir í Subway-messunni ásamt öðrum leikjum kvöldsins en alls eru fimm leikir í Bestu deild karla þennan föstudaginn. Leikir dagsins í Bestu deild karla: 17:30 Víkingur R. - Þór Ak. (Sýn Sport Ísland) 19:00 Subway messan (Sýn Sport Ísland 2) 19:15 Breiðablik - FH (Sýn Sport Ísland 3) 19:15 Stjarnan - KR (Sýn Sport Ísland 4) 19:15 ÍA - Keflavík (Sýn Sport Ísland 5) 19:15 Fram - Valur (Sýn Sport 6)
Fram Valur Besta deild karla Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira