Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Agnar Már Másson skrifar 9. maí 2026 20:05 Viðbragðsaðilar við vettvang árásarinnar í dag. AP Þrátt fyrir að vopnahlé eigi að gilda halda átök áfram milli Ísraels og Hezbolla í Líbanon. Hið minnsta sjö féllu í loftárás Ísraels í Saksakiyeh í dag. Á meðan bíða Bandaríkjamenn eftir því að Íranir bregðist við friðartillögum sínum.
Hið minnsta sjö féllu, þar á meðal eitt barn, í flugskeytaárás Ísraelshers í Saksakiyeh í Suður-Líbanon, að sögn líbanskra heilbrigðisyfirvalda. Þá hafi fimmtán særst til viðbótar. Ísraelsmenn höfðu gefið út rýmingartilmæli fyrir fjölda bæja í Líbanon, en Saksakiyeh var ekki meðal þeirra. Ísraelski herinn heldur því fram að vígamenn Hezbollah hafi verið skotmörk árásarinnar og að meintir vígamenn hafi haldið úti hernaði í byggingunni. Frá Saksakiyeh í dag.AP Hezbollah og Ísraelsmenn hafa á undanförnum vikum skipst á árásum sín á milli þrátt fyrir að vopnahlé eigi að vera í gildi sem samþykkt var 16. apríl. Á síðustu vikum hafa Bandaríkin haldið tvennar samningaviðræður milli fulltrúa Líbanon og Ísraels í Washington. Reuters hefur eftir heimildarmönnum í bandaríska utanríkisráðuneytinu að frekari viðræður muni eiga sér stað á fimmtudag og föstudag. Enn ekkert svar Bandaríkjamenn bíða nú eftir viðbrögðum Írana við friðartillögum sínum. Bandaríski utanríkisráðherrann Marco Rubio sagði í gærkvöldi að búist yrði við viðbrögðum á komandi klukkustundum en enn hefur ekkert heyrst frá Íran. Martco Rubio segir að markmiðum hafi verið náð í Íran.Vísir/EPA Samkomulagið gengur út á það að binda enda á stríð Bandaríkjanna og Íran og að gengið yrði aftur að samningaborðinu til að ræða framtíð kjarnorkuvopnaframleiðslu Írans. Slíkar viðræður stóðu þegar yfir þegar Bandaríkjamenn og Ísraelsmenn hófu árásir sínar á Íran í lok febrúar. Katarskt olíuflutningaskip stefnir nú í gegnum Hormússund til Pakistan, en Reuters hefur eftir heimildarmönnum að Íran hafi heimilað siglingu skipsins um sundið í von um að byggja traust við Katar og Pakistan, en þetta er fyrsta katarska olíuflutningaskipið sem fer um sundið frá því að stríðið hófst fyrir rúmum tveimur mánuðum.
Líbanon Ísrael Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða miðjuna saman Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira