Eurovision fer fram í vikunni en hlustunartölur hríðfalla Freyja Þórisdóttir skrifar 10. maí 2026 11:55 Finnska tvíeykið Linda Lampenius og Pete Parkkonen er talið sigurstranglegt í ár þrátt fyrir að Ísraelum hafi verið spáð sigri marga mánuði fram í tímann. Getty Eurovison, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, fer fram 70. skiptið í ár en keppnin verður haldin í höfuðborg Austurríkis, Vín, og hefst á þriðjudaginn, þann 12. maí. Tölurnar sýna greinilega að lög þess árs ná ekki til áhorfenda á sama stigi og undanfarin ár en spilunartölur Eurovision á Spotify hafa nánast helmingast.
Vinsælasta lag keppninnar árið 2024 var „Europapa“ sem Joost Klein flutti í undanúrslitum keppninnar fyrir hönd Hollands og var umdeilanlega vísað úr keppni eftir undanúrslitin. Það hafði í aprílmánuði einum saman verið spilað 13,6 milljón sinnum á Spotify. Nú í apríl þessa árs var lag Ítalíu það vinsælasta. „Per Sempre Sì“ með Sal Da Vinci og fékk það 6,6 milljónir spilana. Frá þessu er greint í umfjöllun norska fjölmiðilsins VG en þar segir einnig að í ár séu 35 þátttakendur, samanborið við 37 undanfarin tvö ár. Það skýri þó ekki eitt og sér hvers vegna spilunartölur Eurovision á Spotify hafi nánast helmingast. Þá er því bætt við að tölur þessa árs blikni enn frekar í samanburði við árið 2023. Eurovision-lög þess árs voru spiluð 18,8 milljón sinnum bara fyrstu vikuna í apríl. Keppnin haldin í skugga deilna Þátttaka Ísraels hefur vakið deilur síðan stjórnvöld þar í landi hófu umfangsmikla hernaðaraðgerð á Gasa í október 2023. Í síðustu Eurovision-keppnum sem fram fóru í Malmö í Svíþjóð árið 2024, og svo í Basel í Sviss á síðasta ári fylltu andstæðingar ísraelskra stjórnvalda göturnar og þátttakendur frá Ísrael fengu vopnaða verði. BBC fjallar um málið í frétt á vef sínum og þar kemur fram að fimm reglulegir þátttakendur verði fjarverandi í ár en Írland, Holland, Slóvenía og Spánn sniðganga öll viðburðinn sem og Ísland. Á síðasta ári sagði Yuval Raphael, sem lifði af árásirnar 7. október, við BBC að hún hefði „æft sig í að láta púa á sig“ á æfingum. Í úrslitunum reyndu tveir mótmælendur að ryðjast upp á svið á meðan hún flutti lag sitt, New Day Will Rise. Sýna frá keppninni hér heima Þá verður úrslitakvöldið, sunnudaginn 16. maí, sýnt í beinni á Rúv 2 vegna kosningavöku sveitarstjórnarkosninganna en undankvöldin tvö, 12. og 14. maí, verða sýnd á Rúv. Framkvæmdastjóri Eurovision, Martin Green, ræddi um sniðgöngu landanna fimm síðasta sunnudag í viðtali við hollenska miðilinn NOS. „Við viljum fá þau aftur, svo auðvitað söknum við þeirra, við höfum sagt við öll fimm: Hvernig getum við fundið leið til baka,“ segir Green. Í frétt VG segir að það sé einn „sem finni ekki leiðina til baka“ en þá er átt við írsku Eurovision-goðsögnina Johnny Logan, fyrsta listamanninn til að vinna keppnina tvisvar, árin 1980 og 1987 – og sem samdi sigurlagið árið 1992. Í samtali við írska miðilinn Extra segir Logan að hann hafi verið beðinn þrisvar til fjórum sinnum um að koma fram í Vín í vikunni, en að hann hafi afþakkað þar sem hann styður ákvörðun írsku ríkisstjórnarinnar og ríkisútvarpsins um að taka ekki þátt. Sigurstrangleg í ár Finnlandi er spáð sigri eins og staðan er í dag en þau Linda Lampeniur og Pete Parkkonen keppa fyrir hönd Finna með lagið „Liekinheitin“ en í næstu sæti raðast Grikkir, Danir, Frakkar og Ástralir ef veðbankarnir reynast sannspáir. Í dag, þann 10. maí 2026, tæpri viku fyrir úrslitakvöldið, er atriðið sem keppir fyrir hönd Finnlands efst á lista veðbanka yfir sigurvegara Eurovision, með 37 prósent líkur á að vinna keppnina. Tvíeykið syngur um „eldvarparann“ og leikur Linda á fiðlu í atriðinu en lagið verður flutt á finnsku en ekki ensku eins og mörg hinna framlaganna.
Eurovision 2026 Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Palestína Finnland Austurríki Eurovision Tónlist Spotify Mest lesið Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Tíska og hönnun Hvað veistu um… textana hans Bubba? Lífið Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Lífið Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Lífið Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Menning South Park verður South America Lífið Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Gagnrýni Sögufrægt verslunarhús til sölu Lífið Kappsmál sett á ís Lífið Lúpína verði fyrsta stopp fyrir veisluna eða afmælið Tíska og hönnun Fleiri fréttir Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Highway 61 Revisited fagnar 61 árs afmæli Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Kanye treður upp í Rússlandi Hip-hop sveitin Tha Alkaholiks í Iðnó í október Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Heiður að endurvekja falda perlu Palla Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Suki dásamar Laufeyju Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Sjá meira