Betri svefngæði með bambus Lín Design 12. maí 2026 09:19 „Það er ekki lengur bara spurning um hvernig rúmið lítur út heldur hvernig þér líður þegar þú vaknar.“ Ágústa hjá Lín Design segir bambusrúmfatnað njóta mikilla vinsælda vegna eiginleika sinna. Góður svefn er ein af grunnstoðum vellíðunar og það sem við sofum við skiptir meira máli en margir gera sér grein fyrir. Ágústa Gísladóttir, annar eigenda Lín Design, segir að aukin vitund um svefngæði hafi leitt til mikillar eftirspurnar eftir bambusrúmfötum. Á undanförnum árum hefur Heimaey bambuslínan orðið ein af vinsælustu vörulínum Lín Design. „
Viðskiptavinir okkar lýsa verulegri breytingu á svefngæðum eftir að hafa skipt yfir í bambus. Fólk vaknar sjaldnar yfir nóttina, svitnar minna og nær betri hvíld yfir nóttina. Margir lýsa því að þeim líði betur yfir daginn eftir að hafa sofið í bambusrúmfatnaði,“ segir Ágústa en Lín Design býður línuna Heimaey, rúmföt fyrir alla fjölskylduna úr 400 þráða bambus. Bambus er afar léttur og fólki verður síður of heitt og sefur því betur. Einn helsti kostur bambus er hitastjórnunin. Efnið hjálpar til við að halda jöfnu hitastigi yfir nóttina, sem getur skipt miklu fyrir þá sem upplifa nætursvita eða eiga erfitt með að finna þægilegt hitastig í rúminu. „Margir lýsa því að þeir svitni minna og sofi rólegar. Efnið er einstaklega mjúkt viðkomu, nánast eins og silki, og margir segja að það auðveldi þeim að snúa sér í rúminu,“ segir Ágústa. Bambuslökin eru ótrúlega mjúk og auðvelt að snúa sér á þeim. Svefninn fylgir okkur inn í daginn „Fólk er farið að hugsa um svefngæði sem hluta af almennri líðan og við breytingu á því hvernig fólk velur sér rúmföt. Svefninn er svo stór hluti af líðan okkar og þá skipta efni, loftun, vottanir og gæði miklu máli. Fólk vill vita í hverju það sefur. Bambus er náttúrulegt efni, mjúkt og andar vel,“ segir Ágústa. Sænginni er haldið í réttum skorðum í verinu með böndum í hornunum. Sniðug hönnun Í bambusrúmfötum frá Lín Design eru bönd í hornum sængurveranna til að binda sængina við og halda henni betur á sínum stað. „Bambus er svo mjúkur að sængin getur hreyfst inni í verinu. Þetta eru lítil smáatriði sem gera mikinn mun í daglegri notkun,“ segir Ágústa Bambusrúmfötin fást í hlýlegum litum. Fyrir alla fjölskylduna Heimaey línan frá Lín Design hefur vaxið hratt síðustu ár og inniheldur í dag rúmföt, lök, koddaver og augngrímur fyrir bæði börn og fullorðna. Línan er OEKO-TEX® vottuð og nýjustu línurnar koma einnig með GOTS-vottun. Rúmfatnaður fyrir þau allara minnstu er líka fáanlegur úr bambus hjá Lín Design. „Augngrímurnar úr bambus hafa einnig notið mikilla vinsælda að undanförnu, sérstaklega meðal fólks sem vill skapa meiri ró og betri svefnaðstæður. Þær hafa jafnframt verið vinsælar sem fyrirtækjagjafir yfir bjartari mánuðina,“ segir Ágústa. Að sögn Ágústu er markmið Lín Design ekki aðeins að selja falleg rúmföt heldur að skapa betri svefnupplifun.„Við upplifum að fólk sé farið að hugsa meira um svefngæði sem hluta af almennri vellíðan. Það er ekki lengur bara spurning um hvernig rúmið lítur út heldur hvernig þér líður þegar þú vaknar.“ Umsagnir viðskiptavina
Hús og heimili Svefn Tíska og hönnun Heilsa Mest lesið „Við flytjum aldrei héðan“ Lífið Tíundi bekkur slys í heild sinni Tíska og hönnun Tíminn stóð í stað í bílveltunni Menning Oddvitar sameinuðust í „We are the world“ Lífið Tala við pabba sinn þvert á fullyrðingar slúðurmiðla Lífið Stjörnulífið: Áslaug Arna málaði New York rauða Lífið Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Lífið samstarf Oddvitaáskorun: Mistök að byrja með manni með jeppadellu þó hún elski hann Lífið Hulda í hópi fjörutíu bestu undir fertugu Lífið Betri svefngæði með bambus Lífið samstarf Fleiri fréttir Betri svefngæði með bambus Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Þetta hefur gefið mér nýtt líf Húð- og feldumhirðuvörur sem draga úr ofnæmisvöldum frá hundum og köttum Hárlos hjá körlum: Hvað veldur og hvernig er hægt að grípa inn í? Nýr rafbíll BMW afhjúpaður í Hörpu Tannhjálp sinnir nauðsynlegri neyðarþjónustu tannlækna Nú er rétti tíminn til að huga að útisvæðinu „Sumarið byrjar hjá okkur“ Eva Laufey segir Hagkaup tilbúið í björtustu dagana Gerðu pallinn og svalirnar að uppáhaldsstað sumarsins! Hvernig tannlæknar leysa algeng útlitsvandamál Kaldir pottar eru orðnir hluti af daglegri rútínu margra landsmanna Nespresso 40 ára: Afmælishátíð með vinningum að verðmæti milljón króna Golfvöllurinn í Eyjum tilnefndur sem sá besti í Evrópu Opnir fræðslufundir fyrir almenning um lífeyrismál Situr þú eins og rækja? Góð líkamsstaða byrjar á réttum stól Skóspark og Krakkadagar hjá Icewear: Gengið inn í vorið E.T. sýnd við lifandi undirleik Sinfó í Hörpu Infraklefar og sánur eru heilsutrendið sem allir eru að tala um Hugarafl er staður þar sem karlmenn fella niður grímuna Tryggðu þér sæti í sólinni áður en sumarið fyllist Pungrakvélin hefur slegið í gegn hjá Chad Grooming Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Íslenskt heiðalamb frá Kjarnafæði í nýjum páskaumbúðum Galdurinn á bak við hinn fullkomna ljóma Sjá meira