Menning

Sjóð­heitir lista­menn í eina lit­ríka sæng

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Elsa og Júlíanna voru að opna stúdíóið ÓRA.
Elsa og Júlíanna voru að opna stúdíóið ÓRA.

Við strendur Skerjafjarðar hefur nýtt hönnunarstúdíó litið dagsins ljós. Það ber heitið ÓRAR og er hugarfóstur og samstarfsverkefni listamannanna Elsu Jónsdóttur og Júlíönnu Ósk Hafberg. Þær fögnuðu með glæsilegri opnun á Parliament hótelinu um helgina.

Stúdíóið einbeitir sér að skúlptúrískum húsgögnum og heimilismunum, þar sem handverk, draumkennd ímyndun og organísk form mætast í leik þar sem munirnir leysa upp mörkin á milli listar, hönnunar og ímyndunar. 

Elsa og Júlíanna hafa látið til sín taka í menningarlífi Reykjavíkur síðastliðin ár. Þær hafa báðar starfað við myndlist og unnið með hina ýmsu miðla, stundað kennslu og staðið að rekstri menningarrýma svo eitthvað sé nefnt. Í ársbyrjun stóðu þær báðar á tímamótum, í leit að nýjum áskorunum og tóku þá ákvörðun að stofna ÓRA.

„Þetta hefur verið ævintýralegur leiðangur frá byrjun, við erum að skoða samskipti fólks við sitt nærumhverfi og þann norræna minímalísma sem umlykur okkur, en okkur langar gagngert að fara í gagnstæða átt við hann,“ segir Júlíanna aðspurð um tilkomu stúdíósins og bætir við: „Þetta er einhverskonar maxímalískur draumur lita og gleði.“

Stelpurnar lýsa ÓRUM sem einhvers konar maxímalískum draumi lita og gleði.Vikram Pradham

Fyrstu verkum ÓRA var fagnað með pompi og prakt á setustofu Parliament Hótel við Austurvöll. 

„Munirnir spruttu úr ljóðlínu Sigurðar Elíassonar „lækur tifar létt um máða steina“. Hangandi ljós og hægindastóll taka á sig flæðandi vatnsmynd í gegnum skúlptaðan efnivið, form sem eru í senn kunnug og óræð birtast í munum sem við öll þekkjum og notum dags daglega,“ segja stelpurnar. 

ÓRAR munu ekki láta þar kyrrt við liggja og er ýmislegt í kortunum;

„Þessi sýning er í raun fyrsta kynning merkisins en línan stækkar strax í haust með opnun jólasýningar, þar sem kemur á markað borðbúnaður, borðstofuborð og stólar svo eitthvað sé nefnt,“ segir Elsa að lokum. 

Hér má sjá vel valdar myndir frá opnun: 



Gestir virða nýja strauma hönnunar fyrir sér. Vikram Pradham
Líf, list og fjör. Vikram Pradham
Kolbrún Birna, Elsa og Júlíanna Ósk. Vikram Pradham
Stúdíóið einbeitir sér að skúlptúrískum húsgögnum og heimilismunum eins og þessu loftljósi. Vikram Pradham
Fjölbreytt flóra gesta leit við. Vikram Pradham
Elsa ásamt syni sínum. Vikram Pradham
Litríkur og líflegur stóll.Júlíanna Ósk Hafberg
Lifandi jazz og listrænir heimilismunir.Hlynur Helgi Hallgrímsson
Elsa og Júlíanna í skýjunum með viðburðinn.Aðsend
Grænn og glæsilegur.Júlíanna Ósk Hafberg
ÓRAR segja sögur í gegnum efni og form.Júlíanna Ósk Hafberg
Sýningin var fyrsta kynningin á ÓRUM en stelpurnar ætla sér stóra hluti. Júlíanna Ósk Hafberg





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.