Samfylkingin kveinkar sér undan stórskotahríð Viðreisnar Jakob Bjarnar skrifar 11. maí 2026 15:20 Loks brast þolinmæðin og Regína Ástvaldsdóttir ritaði grein þar sem hún vill snúa vörn í sókn, Regína Ásvaldsdóttir svarar látlausum árásum Viðreisnar á Samfylkinguna. vísir Samfylkingarfólk hefur ekki alveg vitað hvaðan á sig stendur veðrið en flokkurinn hefur sætt gegndarlausri gagnrýni og skensi frá … Viðreisn, samstarfsflokki sínum í ríkisstjórn.
Vitaskuld vilja flokkarnir aðgreina sig en öllu má ofgera. Stígur Helgason, sem hefur umsjá með kosningasjónvarpi Ríkissjónvarpsins, sagði nýverið í hlaðvarpi Þórhalls Gunnarssonar að ef kosningastefnuskrá þessara flokka væri skoðuð þá mætti spyrja sig hvers vegna þetta fólk væri ekki bara í sama flokknum, svo lítill væri munurinn. En minna má gagn gera. Benedikt Jóhannesson er stofnandi Viðreisnar og hann er kominn á stjá núna í aðdraganda kosninga. Í alllöngum pistli sem hann setur á Facebook-síðu sína er hann býsna afgerandi varðandi Samfylkinguna: „Niðurstaða mín er sú að eina leiðin til þess að tryggja að Samfylkingin fari frá sé að kjósa Viðreisn þannig að flokkurinn fái fjóra borgarfulltrúa. Ég veit að fulltrúar flokksins eru harðákveðnir í því að snúa rekstrinum við þannig að borgin þurfi ekki að berjast í bökkum (eða bönkum).“ Ekki vænlegir samstarfsmenn í meirihluta Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar og Þorbjörg Sigríður Gunnalaugsdóttir dómsmálaráðherra eru meðal þeirra sem læka færslu Benedikts. Oddviti Viðreisnar hefur heldur ekki dregið af sér. Björg Magnúsdóttir, oddviti flokksins í borginni, er afdráttarlaus í Vísisfrétt þar sem rætt er við hana og Ara Edwald um hugsanlegt meirihlutasamstarf í borginni: Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar telur að ef einhver vilji breytingar í Reykjavík þá séu Pétur og Heiða kannski ekki líklegasta dúóið til að vinna með.vísir/einar „En ef maður lítur aðeins yfir sviðið og horfir til vinstri er þar meirihluti sem hefur fallið oftar en einu sinni í kosningum og Pétur og Heiðar eru kannski ekki svona líklegasta dúóið til að vinna með ef þú vilt knýja fram stórar breytingar,“ segir Björg sem á greinilega erfitt með að horfa til vinstri sem hægri. En menn spá því, og sú er staðan ef litið er til skoðanakannana, að Viðreisn verði í lykilstöðu eftir kosningar. Að stæra sig af því að vinna krakka í hlaupi Guðmundur Jörundsson, sem er hægri hönd Bjargar Magnúsdóttur, er með hráslagalegan húmor og hann beinist ekki síst að Samfylkingarfólki. Til að mynda fær nafni hans Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, það óþvegið hjá honum en Guðmundi Jör þykir ekki mikið leggjast fyrir kappann að stæra sig af því að hafa unnið börn í Neshlaupinu. Allt þetta rennir stoðum undir kenningar þess efnis að Viðreisn, hvað sem líður ríkisstjórnarsamstarfi, horfin frekar til hægri en vinstri þegar meirihlutasamstarf í borginni er undir, að loknum kosningum. Myglaður málflutningur Viðreisnar Samfylkingarfólk hefur verið seinþreytt til vandræða en í morgun dró loks til tíðinda þegar Regína Ásvaldsdóttir, sem er í sjöunda sæti á lista Samfylkingarinnar í borginni, ritaði grein á Vísi þar sem henni var greinilega nóg boðið og reynir að bera hönd yfir höfuð sér og Samfylkingarinnar: Regínu var nóg boðið en hún segir Viðreisn vilja kenna Samfylkingu um allt sem aflaga hefur farið.vísir/vilhelm „Viðreisn hefur farið mikinn í kosningabaráttunni og kennt Samfylkingunni um allt sem aflaga hefur farið. Nýjasta útspilið er umfjöllun um myglu í skólum og leikskólum,“ segir Regína í upphafi pistils síns sem ber yfirskriftina „Myglaður málflutningur Viðreisnar“. Regína segir myglu ekki fara eftir flokkspólitískum línum á Íslandi. Ein skýringa sé skortur á viðhaldi en það voru teknar pólitískar ákvarðanir um niðurskurð í viðhaldsverkefnum eftir efnahagshrunið árið 2008. Þá voru Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn við völd í borginni „og frá 2010–2014 voru það Besti flokkurinn og Samfylking og var sá fyrrnefndi með borgarstjórann,“ segir Regína með vísan til þess að Viðreisn er óskilgetið afkvæmi Besta flokksins.
Fréttaskýringar Viðreisn Samfylkingin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira