Ákæran á hendur Írisi Helgu: Sakaði menn um barnaníð, laug upp á börn og lét maka saur Árni Sæberg skrifar 12. maí 2026 15:25 Íris Helga ræddi málið frá sínum bæjardyrum séð í viðtali við Brotkast nýverið. Grafík/Brotkast Íris Helga Jónatansdóttir hefur verið ákærð fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, börnum tveggja þeirra, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu sambýliskonunnar. Hún er meðal annars ákærð fyrir að væna fólkið opinberlega um barnaníð, ljúga kynferðisbroti upp á þrjá skólabræður dóttur eins mannanna og fá mann sem hún var í slagtogi við til að maka saur á hurðarhúna heimilis og bíls eins mannanna. Sá er einnig ákærður í málinu. Þá hefur hún játað að hafa logið nauðgun upp á einn mannanna.
Talsvert hefur verið fjallað um málefni Írisar Helgu síðustu misseri, þar sem hún hefur ýmist verið nafngreind eða ekki, en fjöldi manna hefur kært hana fyrir umsátursofbeldi. Til að mynda vakti mikla athygli þegar greint var frá því á dögunum að hún hefði verið handtekin fyrir að birta falska dánartilkynningu um mann í Morgunblaðinu. Farið var fram á gæsluvarðhald yfir henni vegna málsins en héraðsdómari hafnaði kröfum lögreglu þess efnis. Mætti með krukku sem hún sagði innihalda fóstur Lögreglustjórinn á Suðurnesjum gaf út ákæru á hendur Írisi Helgu þann 7. apríl síðastliðinn, þremur dögum áður en hún var handtekin í tengslum við dánartilkynninguna fölsku. Í fyrsta hluta ákærunnar, sem Vísir hefur undir höndum, er hún ákærð fyrir umsáturseinelti, sem hafi einnig falið í sér rangar sakargiftir, skjalafals, ærumeiðingar og barnaverndarlagabrot, með því að hafa á árunum 2022 til 2024 endurtekið sett sig í samband við, fylgst með, hótað og á annan sambærilegan hátt setið um fyrrverandi kærasta sinn og kærustu og síðar sambýliskonu hans, og með þeirri háttsemi sinni valdið þeim hræðslu og kvíða. Meðal þess sem hún er sökuð um að hafa gert er að hafa komið að heimili mannsins með krukku sem hún sagði að innihéldi fóstur sem hún hefði misst. Ítrekaðar hótanir og brigsl um barnaníð Þá er hún sögð hafa ítrekað sent sambýlisfólkinu skilaboð af hinum ýmsu samfélagsmiðlareikningum, þar sem hún hótaði þeim til að mynda að fremja skemmdarverk á bíl mannsins, eitra fyrir hundinum hans, kveikja í húsi konunnar og að þau fengju aldrei frið framar í lífinu. Hún hafi einnig sent syni mannsins skilaboð, þar sem hún viðhafði niðrandi ummæli um föður hans og sagði að fylgst væri með honum og heimili hans. Þá hafi hún útbúið og dreift miðum í póstlúgur og póstkassa í heimabæ fólksins, þar sem hún sagði manninn áreita ungar konur og hafa mikið magn barnaníðsefnis í vörslum sínum. Einnig hafi hún hengt upp miða við verslun Bónuss í bænum þar sem fram kom að maðurinn væri að auglýsa eftir börnum til að passa hundinn hans, á meðan hann „sinnti kærustunni sinni“. Einnig hafi komið fram að hann gæti sótt börnin. Makaði saur á hurðarhúna Íris Helga er einnig ákærð fyrir að hafa farið þess á leit við þrjá menn að maðurinn yrði beittur ofbeldi. Þá er hún ákærð fyrir að hafa fengið mann til þess að fara að sameiginlegu heimili fólksins og maka saur á hurðarhún heimilisins og rúmum mánuði síðar snúa aftur að heimilinu og maka saur á hurðarhún bifreiðar þeirra. Maðurinn er ákærður fyrir hlutdeild í þeim hluta málsins. Ákæran er ógnarlöng og meint brot Írisar Helgu gagnvart sambýlisfólkinu og öðrum verða hvergi nærri tæmandi talin í fréttinni. Hótaði foreldrum konunnar Í öðrum hluta ákærunnar er Íris Helga ákærð fyrir umsáturseinelti í garð foreldra sambýliskonunnar og bróður hennar. Hún hafi til að mynda hótað foreldrunum að eitthvað myndi henda dóttur þeirra og barnabörn og að kveikt yrði í íbúð þeirra. Þá hafi hún gert fjölskyldunni grein fyrir því að sambýliskonan myndi aldrei fá frið á meðan hún væri með fyrrverandi kærasta hennar. Laug því að hún væri enn ófrísk eftir Sölva Í þriðja kafla ákærunnar er Íris Helga ákærð fyrir umsáturseinelti í garð Sölva Guðmundarsonar, mannsins sem hún tilkynnti ranglega að væri látinn, og dóttur hans á táningsaldri, um nokkurra mánaða skeið á árunum 2024 og 2025. Dánartilkynningin umtalaða er ekki meðal þess sem ákært er fyrir, enda var ákæra gefin út áður en hún var handtekin vegna tilkynningarinnar. Hún hafi meðal annars ítrekað sett sig í samband við dóttur Sölva og viðhaft niðrandi ummæli um hana, föður hennar og móður hennar, auk þess að halda því fram að yngri bróðir hennar væri rangfeðraður. Hún hafi sent Sölva skilaboð þess efnis að hún væri ófrísk eftir hann og að hann myndi ekki koma til með að umgangast barn þeirra. Þá hafi hún sent dóttur hans sambærileg skilaboð: „Hæ. Ég sagði ekki satt með fóstrið. Þorði því ekki. Enn ég ætla að halda því og gera þetta ein án ykkar allra. Er skráð 28 september. Ekki hafa samband við okkur. Ég er ad loka þessu símanúmeri. Gangi þér vel.“ Sakaði dótturina um að áreita drengi Íris Helga hafi einnig búið til reikning á samfélagsmiðlinum TikTok þar sem hún birti myndir af Sölva, kallaði hann barnaperrann í heimabæ hans og hvatti til þess að hann yrði hrakinn úr bænum. Þá hafi hún sent tölvubréf á framhaldsskóla dóttur hans, þar sem dóttirin er ranglega sökuð um að áreita drengi innan skólans, að hafa tekið og dreift viðkvæmum myndum af öðrum nemanda skólans auk þess sem í póstinum kom ranglega fram að ákæra á hendur dótturinni væri á borði lögreglu, hún kæmi úr brotinni fjölskyldu og mikil drykkja, neysla og framhjáhöld væru á báðum heimilum foreldra hennar. „Kallið mig pabba“ Loks er Íris Helga ákærð fyrir umsáturseinelti í garð Garps I. Elísabetarsonar og unglingsdóttur hans á rúmlega ári á tímabilinu 2024 til 2025. Garpur steig fram í viðtali á Vísi í fyrra, ásamt áðurnefndum Sölva. Hún hafi meðal annars útbúið reikning á TikTok þar sem hún nafngreindi Garp og dóttur hans og birti niðrandi og ósæmileg ummæli um Garp. „Call me Daddy. Garpur Ingason Elísabetarson“, „Kallið mig pabba“ og „DM ef þið viljið kynlífsmyndbönd af honum“ eru á meðal ummælanna sem ákært er fyrir. Þá er hún ákærð fyrir að væna Garp ítrekað um ofbeldi í garð kvenna á TikTok. Laug nauðgun upp á hann Hún sætir einnig ákæru fyrir að hafa sent inn rafrænt um beiðni um tíma hjá kærumóttöku lögreglu og óskað eftir því að kæra Garp fyrir nauðgun. „Ákærða viðurkenndi síðar að ásakanir hennar um nauðgun hafi verið rangar og að beiðnina hafi hún sent inn í hefndarskyni, þar sem Garpur hafði kært hana til lögreglu fyrir umsáturseinelti og ærumeiðingar. Með háttsemi sinni leitaðist ákærða eftir því að saklaus maður, þ.e. Garpur, yrði sakaður um eða dæmdur fyrir refsiverðan verknað.“ Skólastjórnendur tóku mál til skoðunar byggt á uppspuna Íris Helga er einnig ákærð fyrir að hafa í starfi sínu sem kennari í grunnskóla greint samkennurum sínum og nemendum ranglega frá því að Garpur væri kærasti hennar og dóttir hans dóttir eða stjúpdóttir hennar. Þessi háttsemi hennar hafi komist til vitundar Garps og dóttur hans fyrir tilstilli starfsmanna og nemenda skólans. Þá hafi hún einnig greint samkennurum sínum ranglega frá því að þrír drengir, nemendur við skólann, hafi sent dóttur Garps óviðeigandi myndir. Þetta hafi orðið til þess að skólastjórnendur tóku málið til skoðunar og ræddu við umrædda drengi, en fullyrðingar Írisar Helgu hafi ekki átt við nein rök að styðjast. Rúmlega níu milljóna króna bótakröfur Í ákærunni segir að þess sé krafist að Íris Helga og hlutdeildarmaðurinn verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Ákvæði almennra hegningarlaga um umsáturseinelti varðar allt að fjögurra ára fangelsisvist. Fyrir hönd þeirra sem Íris Helga er ákærð fyrir að brjóta á eru gerðar skaða- og miskabótakröfur upp á alls 9,25 milljónir króna. Þá er maðurinn sem ákærður er fyrir hlutdeild í hluta brota hennar krafinn um alls eina milljón króna.
Lögreglumál Dómsmál Kynferðisofbeldi Stafrænt ofbeldi Mál Írisar Helgu Jónatansdóttur Tengdar fréttir Gera ekki aðra atlögu Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ætlar ekki að kæra niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness sem hafnaði kröfu um fjögurra daga gæsluvarðhald yfir grunuðum eltihrelli á laugardaginn. Íris Helga Jónatansdóttir er sökuð um að hafa keypt dánartilkynningu um lifandi karlmann og fengið hana birta í Morgunblaðinu síðastliðinn föstudag. 13. apríl 2026 13:47 Mest lesið Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Sjá meira
Gera ekki aðra atlögu Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ætlar ekki að kæra niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness sem hafnaði kröfu um fjögurra daga gæsluvarðhald yfir grunuðum eltihrelli á laugardaginn. Íris Helga Jónatansdóttir er sökuð um að hafa keypt dánartilkynningu um lifandi karlmann og fengið hana birta í Morgunblaðinu síðastliðinn föstudag. 13. apríl 2026 13:47