Hildur með pálmann í höndunum Agnar Már Másson skrifar 17. maí 2026 06:34 Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, á væntanlega von á mörgum símtölum á næstunni. Vísir/Vilhelm Sjálfstæðisflokkurinn situr í bílstjórasætinu eftir borgarstjórnarkosningar í Reykjavík í gær og getur ýmist myndað hægri meirihluta með Miðflokknum eða miðju hægri meirihluta með Framsókn og Viðreisn. Samfylkingin hefur aldrei fengið eins dræma kosningu í höfuðborginni og vinstri meirihluti er útilokaður.
Sjálfstæðisflokkurinn hrósaði sigri víða um land í sveitarstjórnarkosningunum en hvergi var betur fagnað en í gamla Sjálfstæðissalnum við Austurvöll þegar Hildur Björnsdóttir oddviti gekk inn sigri hrósandi eftir að fyrstu tölur bentu til þess að flokkurinn næði níu mönnum inn í borgarstjórn. Lokatölur innsigluðu þá niðurstöðu. Meirihlutinn er fallinn og uppi stendur Hildur sem sigurvegari með pálmann í höndunum. Flokkurinn hefur ekki hlotið betri kosningu í Reykjavík síðan 2010. Hildur Björnsdóttir í sigurvímu eftir sigur Sjálfstæðisflokksins.Vísir/Vilhelm Í borgarstórn Reykjavíkur sitja 23 borgarfulltrúar og þarf því tólf manns til að mynda meirihluta. Tvær líklegar sviðsmyndir hafa teiknast upp um meirihluta í borginni. „Nú þarf bara svolítið að vega [þær] og meta,“ sagði Hildur í viðtali við Sýn í gær. Hún viðurkenndi þar að einhverjir oddvitar væru farnir að hvísla að sér „ástarorðum“. Í kosningavakt Vísis er hægt að lesa um vendingar næturinnar í sveitarfélögum um allt land. Auk þess verða oddvitar í Reykjavík til tals í Sprengisandi kl. 10 í dag. ‹ › Hægri stjórn í höfuðborginni? Níu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins geta myndað tveggja flokka meirihluta með þremur borgarfulltrúum Miðflokksins, sem hlaut sína bestu kosningu í borginni til þessa. Það hugnast Ara Edwald, oddvita Miðflokksins, afar vel enda sagðist hann vilja mynda borgaralegan meirihluta. Oddvitar í ráðhúsinu.Vísir/Vilhelm „Það væri okkar fyrsti kostur að mynda meirihluta til hægri,“ sagði Ari þegar hann brást við fyrstu tölum í beinni útsendingu úr ráðhúsi Reykjavíkur. „Borgaralegan meirihluta sem færi í það að þróa borgina í samræmi við óskir gríðarlegs meirihluta borgarbúa.“ Hildur var þó ekki eins afdráttarlaus um að mynda hreinan hægri meirihluta. „Við myndum gjarnan vilja mynda sterkan meirihluta með nokkuð breiða skírskotun til fólksins í borginni,“ sagði hún við Sýn í gær. Varla verður annað túlkað úr þeim orðum en að hún velti einnig fyrir sér hinum af þessum „tveimur augljósu kostum“, eins og hún orðaði það. Ari Edwald vill mynda hægri meirihluta.Vísir/Vilhelm Bjargarvon miðjunnar Sjálfstæðisflokkurinn gæti nefnilega einnig myndað meirihluta með tveimur fulltrúum Viðreisnar og einum fulltrúa Framsóknar. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, lýsti áhuga á slíku samstarfi. Í aðdraganda kosninga höfðu skoðanakannanir bent til þess að Björg Magnúsdóttir í Viðreisn myndi enda í lykilstöðu eftir kosningarnar, þar sem því var spáð að hún gæti bæði teygt sig til vinstri og hægri. Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur fest atkvæði í höfuðborginni og á hún möguleika á að mynda meirihluta með Framókn og Viðreisn. Vísir/Vilhelm Kjörseðlarnir segja þó aðra sögu, þar sem í raun ómögulegt er orðið fyrir Viðreisn að mynda meirihluta til vinstri. Hildur situr því í bílstjórasætinu. Ný borgarstjórn Reykjavíkurvísir/hjalti Sögulegt afhroð Samfylkingarinnar Fræðilega geta Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin myndað saman fjórtán manna meirihluta en oddvitar beggja flokka hafa sagt að það sé ekki alls fyrsti kosturinn. Þó að Pétur Marteinsson, oddviti S-listans, sé nágranni Hildar er ólíklegt að vinskapur þeirra geti bætt upp fyrir þann mikla málefnaágreining í stefnu flokkanna, svo sem í leikskólamálum eða málefnum Borgarlínu. Pétur brást við fyrstu tölum í borgarstjórnarsalnum í Ráðhúsi Reykjavíkur í kvöld.Vísir/Vilhelm Þrátt fyrir mikla endurnýjun á lista — og svo ekki sé nefnt fyrirferðamikið prófkjör í janúar — tókst Samfylkingunni ekki að bæta fylgi sitt frá síðustu kosningum og dalaði það niður í 18 prósent (2022: 20,29 prósent). Samfylkingin hefur því aldrei fengið verri kosningu í Reykjavík. Flokkurinn missti þó engan fulltrúa og hefur enn fimm menn inni. Oddvitinn viðurkenndi þó: „Ég er drullusvekktur.“ Rísandi ungstirni Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalista, rétt nældi sér í sæti í borgarstjórn fyrir hönd síns flokks, með um 4,4 prósenta fylgi. Hún mætti klökk og kampakát á kosningavöku flokksins á Hverfisgötu þar sem hún féll í faðmlög við föður sinn, tónlistarmanninn Bigga veiru. „Ég er bara óendanlega þakklát fyrir alla félagana,“ sagði hún más og í spennufalli þegar fréttamaður Sýnar náði tali af henni. „Smá sjokk.“ En sem fyrr segir er nær útilokað að sósíalistinn komist í nokkurn meirihluta, þar sem vinstri flokkarnir geta ekki myndað saman meirihluta. Silja Sóley úr Sósíalistum og Kristinn Jón úr Pírötum.Vísir/Vilhelm Vinstrið, sameiginlegt framboð Vinstri grænna og Vors til vinstri, hlaut tvo borgarfulltrúa þar sem flokkurinn fékk 9,4 prósent atkvæða. Sanna Magdalena lýsti óánægju sinni í viðtölum í gær, en hún og Líf Magneudóttir úr VG skipa sæti framboðsins. Sanna kvaðst þó þakklát fyrir stuðninginn. „Ég er auðvitað drullusúr að Stebbi sé ekki inni, Stefán Pálsson,“ sagði Líf Magneudóttir einnig en Stefán skipaði þriðja sæti á lista Vinstrisins. Hafa Píratar siglt í strand? Píratar, sem höfðu nýjan mann í stafni, Kristinn Jón Ólafsson, náðu heldur ekki manni inn þar sem flokkurinn fékk aðeins 1,8 prósent atkvæða. Flokkurinn hefur því hvergi kjörna fulltrúa. Sömu sögu er að segja af Flokki fólksins, sem hlaut aðeins 3,3 prósent atkvæða sem þýðir að oddvitinn Guðmundur Ingi Þóroddsson fær ekki sæti. Guðmundur Ingi og Hildur Björnsdóttir.Vísir/Vilhelm Tvö glæný framboð litu dagsins ljós í þessum kosningum, annars vegar Okkar borg, með Sigfús Aðalsteinsson í stafni, og hins vegar Góðan daginn, sem Ingimar Þór Friðriksson leiddi. Þeir flokkar fengu báðir um 0,5 prósent atkvæða. Hvað nú? Kjörsókn var um 66 prósent og því um fimm prósentustigum betri en í síðustu borgarstjórnarkosningum. Alls greiddu 71.976 atkvæði í höfuðborginni en 108.518 voru á kjörskrá. Auðir seðlar voru 1.107 og ógildir voru 2.028. Á næstu klukkustundum mun staðan í borginni skýrast. Sprengisandur á Bylgjunni verður í kosningaham frá klukkan tíu þennan sunnudaginn eftir æsilega kosninganótt þar sem lykiloddvitar mæta í heimsókn og fara yfir stöðuna nú þegar atkvæði eru komin upp úr kjörkössunum.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Borgarstjórn Píratar Okkar borg Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Vinstrið Sósíalistaflokkurinn Góðan daginn Viðreisn Framsóknarflokkurinn Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Sjá meira