Frábær fjöl eða fúin? Svava Pétursdóttir skrifar 18. maí 2026 14:47 Um þessar mundir eru þau sem ljúka framhaldsskóla að huga að næsta skrefi í lífinu. Kannski ætla einhverjir að koma til okkar á Menntavísindasvið í kennaranám. Eða hvað? Það er umhugsunarvert hverjir vilji leggja það fyrir sig þegar umræða í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum gagnvart skólum og kennurum er eins óvægin og raun ber vitni. En á sama tíma er tvennt ljóst. Í fyrsta lagi, okkur vantar kennara. Þeim sem starfa við kennslu í grunnskólum hefur skv. tölum Hagstofunnar, fjölgað frá því að vera 4045 árið 1998 til að vera 5911 árið 2023. En af þessum 5911 voru 1106 leiðbeinendur. Í öðru lagi, kennsla er frábært starf. TALIS, stór alþjóðleg rannsókn á kennurum, skólastjórnendum og kennsluháttum sýndi að 94% kennara eru ánægðir í starfi og 72% ánægð með starfsaðstæður. Sjálf vissi ég alltaf að ég ætlaði að verða kennari. Kannski vissi ég það því ég er elst sex systkina og vön að vera með börn. Flestir nemar okkar í kennaranáminu hafa reynslu af starfi með ungmennum, í íþróttafélögum, skátum, kirkju eða sem stuðningsfulltrúar. Þau velja starf sem gefur þeim þessa ánægjulegu reynslu að móta æsku og framtíð barna og ungmenna. Kannski vildi ég verða kennari vegna fræða og þekkingar, mér gekk vel í skóla og leið vel þar. En það er ekki saga allra. Margir nemenda okkar koma í námið með þá sýn að mæta öllum nemendum, mynda gott skólastarf og jákvæðan skólabrag, gera heiminn betri en þann sem mætti þeim og leggja sig svo öll fram við það. Fyrirmyndir skipta líka miklu máli við starfsval, við höfum öll gengið í skóla og þetta er starf sem við þekkjum af afspurn, en hún sýnir ekki margar jákvæðustu hliðar starfsins. Þar má nefna hve starfið er síbreytilegt, nýir nemendur, nýtt námsefni og ný hlutverk. Að starfa með fólki, hafa áhrif, að vinna að jöfnuði og að vera fyrirmynd eru allt þekktar ástæður til að verða. En svo eru líka hagnýtar ástæður eins og, sjálfræði, sveigjanleiki og starfsöryggi, sem skiptir ekki litlu máli þar sem það er nokkuð tryggt, það vantar alltaf kennara. Þá vil ég nefna það ð hópurinn sem kemur í kennaranám eftir að hafa lokið BA eða BS grein í annarri grein í en kennslu, fer sístækkandi. Sá hópur er dýrmætur og kemur með marga kosti að borðinu. En það er samt umhugsunarvert að lesa í greinagerðum þeirra hvers vegna þau eru komin í kennaranám. Þar má aðallega lesa tvö stef, annars vegar að ungt fólk velji stundum ekki samkvæmt sannfæringu sinni í upphafi, heldur velji það sem foreldrar ýttu að þeim, eða eltu vinina eða sögur um gull og græna skóga. Hitt stefið er að hafa ekki einu sinni hugleitt kennslustarfið en „lentu“ svo í að fara í kennarastarf í leik- eða grunnskóla og fundu þá sína fjöl. Mikið vildi ég að öll þau sem eiga heima á þessari fínu fjöl sem kennarastarfið er myndu finna hana fyrr, hún er sko ekki fúin þó að á ýmsu gangi í skólasamfélaginu. Við ættum öll að hvetja ungt fólk til að skoða kennarastarfið með opnum huga strax að loknum framhaldskóla. Höfundur er dósent í kennslufræði Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Þegar gróðureldar verða að samfélagsógn Snorri Birgisson Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson skrifar Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvað kostar léleg umsýsla ríkissjóðs okkur í raun? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar gróðureldar verða að samfélagsógn Snorri Birgisson skrifar Skoðun Flestir nota gervigreind eins og leitarvél Þórdís Inga Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar