Höfum við kjark til að gefa fólki tækifæri? Jónas Ingi Jónasson skrifar 18. maí 2026 16:01 Það fylgja því gjarnan miklar sviptingar þegar niðurstöður kosninga liggja fyrir, hvort sem um ræðir sveitarstjórnir eða landsmálin. Í kjölfarið fyllast athugasemdakerfin og samfélagsmiðlar oft af svívirðingum, svartsýni og dómhörðum fullyrðingum um að allt sé á leiðinni í skrúfuna. Það virðist stundum vera sjálfgefið viðbragð að ef „mínir menn“ unnu ekki þá hljóti komandi ár að verða algjör katastrófa. En þarf breyting endilega að vera slæm? Með aldrinum og auknum þroska hefur mér hlotnast sú dýrmæta viska að átta mig á því að maður veit ekki allt. Eigin skoðanir eru ekki endilega þær einu réttu og lífið er sjaldnast svart og hvítt. Lýðræðið á ekki að vera kyrrstætt, það á að vera lifandi og hreyfanlegt ferli. Gagnrýni er nauðsynleg, en fyrir fram fordæming er hættuleg Það á auðvitað að benda á það sem illa fer, og virkt aðhald er algjörlega nauðsynlegt í hverju heilbrigðu samfélagi. En það er stór munur á málefnalegri gagnrýni og því að dæma fólk úr leik áður en það hefur jafnvel tekið við lyklunum. Þar sem enginn okkar sér inn í framtíðina getum við hreinlega ekkert fullyrt um hvernig hlutirnir munu æxlast fyrr en þar að kemur. Gott dæmi um þetta mátti sjá strax eftir seinustu alþingis kosningar og myndun nýrrar ríkisstjórnar þar sem svokallaðar Valkyrjur fara fremstar í flokki, að hópar fóru strax fram á afsögn hennar. Þar var dómurinn fallinn á fyrsta degi. En hér verður maður að staldra við og spyrja, Ef við gátum gefið hægrinu marga áratugi við stjórnvölinn á Alþingi hvers vegna getum við þá ekki sýnt þeim sem nú taka við þá lágmarksþolinmæði að leyfa þeim að sitja þessi fjögur ár og sjá svo til? Sama sagan blasir við eftir nýafstaðnar sveitastjórnarkosningar. Samfylkingin og aðrir vinstri flokkar hafa víða setið lengi, en á mörgum stöðum kaus fólk yfir sig hægri sveiflu. Strax er farið að halda því fram með miklum hamagangi að nýir meirihlutar muni keyra allt í skrúfuna. Valdaþreyta er raunveruleg ógn Saga okkar sýnir að það er einfaldlega engum holt að sitja of lengi við völd, hvort sem um ræðir flokka til hægri eða vinstri. Þegar sami flokkurinn eða sami hópurinn stýrir of lengi hættir kerfið að spyrja gagnrýninna spurninga og vinnubrögð staðna. Valdaþreyta er raunveruleg. Nýtt fólk og nýjir flokkar koma með ný sjónarhorn, ferskt loft og nýja orku og það eitt og sér getur verið gríðarlega hollt fyrir samfélagið. Er þessi hægri eða vinstri sveifla endilega slæm? Kannski á sumum sviðum, mögulega ekki á öðrum. En við vitum það hreinlega ekki ennþá. Gefum fólki tækifæri til að sanna sig Að ákveða fyrirfram að allt fari í vaskinn áður en nýtt fólk hefur yfirhöfuð fengið tækifæri til að vinna vinnuna sína er engum til góðs. Það skapar bara óþarfa eitur og sundrung í samfélagsumræðunni. Sýnum þá lýðræðislegu virðingu að gefa nýjum stjórnvöldum og nýjum meirihlutum „the benefit of the doubt “. Gefum þeim tíma og tækifæri til að sýna hvað í þeim býr. Við getum svo dæmt þau af verkum þeirra þegar þar að kemur, en ekki af fordómum okkar fyrir fram. Breytingar geta oft verið upphaf að einhverju miklu betra, ef við aðeins höfum kjark til að leyfa þeim að eiga sér stað. Höfundur er verkstjóri, nemi og aðdáandi lýðræðis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar