Allt að tólf stiga hiti í dag og gæti náð sextán stigum á morgun Lovísa Arnardóttir skrifar 19. maí 2026 07:12 Það má búast við því að fólk skelli sér í pottinn í dag og á morgun suðvestantil á landinu. Vísir/Vilhelm Fremur hæg norðaustlæg eða breytileg átt í dag. Þokusúld eða dálítil rigning austanlands, annars bjart með köflum en skúrir á stöku stað. Hiti 4 til 12 stig að deginum, svalast fyrir austan. Á morgun verður nokkuð blautt austan lands en hlýtt og bjart suðvestantil á landinu.
Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að lægðasvæði vestur af Bretlandseyjum beini til okkar norðaustlægri eða breytilegri átt, yfirleitt fremur hægur vindur í dag og þokusúld eða dálítil rigning austanlands. Í öðrum landshlutum verði þó bjart með köflum en þó gætu skúrir látið á sér kræla á stöku stað. Hiti 4 til 12 stig að deginum, svalast fyrir austan. Á morgun segir veðurfræðingur að lægðin nálgist enn og vindur verði norðlægari, víða gola eða kaldi. Rigning eða súld á austanverðu landinu og þokuloft við norðurströndina með hita 3 til 9 stig. Í öðrum landshlutum verður hins vegar bjart að mestu samkvæmt spá og nokkuð hlýrra, einkum suðvestanlands þar sem hiti gæti allvíða farið yfir 15 stig og einhvers staðar 16 stig. Á fimmtudag er svo útlit fyrir fremur hæga breytilega átt með súld eða lítilsháttar rigningu norðan- og austantil, en áfram þurrt og milt á Vesturlandi. Nánar á vef Veðurstofu. Nokkuð greiðfært er um landið allt en þó holur víða í veginum og framkvæmdir. Gott er að fylgjast með á vef Vegagerðar hvar er unnið hverju sinni. Í dag er sem dæmi unnið á Hringvegi austan hringtorgs við Hveragerði. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðaustan og norðan 3-10 m/s, en strekkingur austast fram eftir degi. Rigning eða súld á Norðaustur- og Austurlandi og við norðurströndina með hita 3 til 9 stig. Bjart að mestu annars staðar og hiti 9 til 16 stig að deginum. Á fimmtudag: Norðaustlæg eða breytileg átt 3-10. Skýjað og dálítil súld norðaustanlands og við norðurströndina, annars þurrt, en líkur á síðdegisskúrum sunnantil. Hiti breytist lítið. Á föstudag: Austlæg átt 5-13 og dálítil rigning með köflum, en hægari og súld austantil. Yfirleitt þurrt á Norður- og Norðvesturlandi. Hiti 4 til 14 stig, mildast suðvestanlands. Á laugardag: Suðaustan- og sunnanátt og rigning með köflum, hiti 7 til 12 stig. Lengst af þurrt um landið norðaustanvert með hita að 17 stigum. Á sunnudag (hvítasunnudagur): Suðvestanátt og rigning eða skúrir, en úrkomulítið á Norðaustur- og Austurlandi. Heldur kólnandi. Á mánudag (annar í hvítasunnu): Austlæg eða breytileg átt og líkur á vætu víða um land.
Sund Veður Færð á vegum Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Sjá meira