„Er forsætisráðherra ánægð með hagstjórnina?“ Jakob Bjarnar skrifar 20. maí 2026 17:01 Minnihlutinn á þinginu mætti til leiks eftir hlé í miklum vígahug. Áður en kom að fyrirspurnartíma var dagskrárliðurinn Fundarstjórn forseta og þar mættu þingmenn hver af öðrum og töluðu mikinn um trúnaðargögn sem væru í leyniherbergi. Pawel Bartozsek formaður utanríkismálanefndar átti í vök að verjast. Í fyrirspurnartíma vildu svo þau Guðrún og Sigurður Örn þjarma að Kristrúnu vegna efnahagsmála. vísir/samsett Sjálfstæðismenn mættu í vígahug í fyrirspurnartíma eftir hlé sem gert var á þingstörfum meðan sveitarstjórnarkosningarnar fóru fram, fullir sjálfstrausts eftir kosningaúrslitin. Þeir vildu þjarma að Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og spurðu hana út í efnahagsstjórnina. Kristrún varðist fimlega.
Sigurður Örn Hilmarsson þingmaður Sjálfstæðisflokks var þeirra á meðal og vitnaði í Kristrúnu, sem 9. október 2023 sagði, þá í stjórnarandstöðu: „Við höfum bent á að þegar ríkisstjórnin gerir minna til að taka á verðbólgunni þá þarf Seðlabankinn að gera meira. […] Ríkisstjórnin hefur valið hærri vexti.“ Veit hvað mér finnst en hvað segir Kristrún? Sigurður Örn benti á að Seðlabanki Íslands hafi í morgun hækkað stýrivexti sína um 0,25 prósentur, í annað sinn í tíð þessarar ríkisstjórnar, og standa þeir nú í 7,75 prósentum. „Segja má að bankinn hafi verið nauðbeygður til þess að hækka vextina nú enda hafa verðbólguvæntingar til skamms tíma hækkað og langtímavæntingar lítið breyst. Samhliða þessu er þó spáð minni hagvexti, atvinnuleysi hefur aukist, störfum á einkamarkaði er hætt að fjölga og horfur í ferðaþjónustu hafa versnað.“ Sigurður Örn var ekki ánægður með svör Kristrúnar og gaf henni gult í einkunn.vísir/lýður valberg Sigurður Örn sagði stöðuna í efnahagsmálum nú orðna mjög alvarlega og hún hefði versnað frá því núverandi ríkisstjórn komst til valda og áhrifa hagstjórnar hennar fór að gæta. „Ég veit alveg hvað mér finnst sjálfum um frammistöðu ríkisstjórnarinnar í þessum efnum. Þjóðin finnur fyrir þessu aðgerðarleysi á eigin skinni – á bankareikninginum – um hver mánaðamót. En ég vil nota tækifærið og spyrja hv. forsætisráðherra. Hvernig finnst þér hafa gengið? Er hv. forsætisráðherra ánægð með hagstjórnina og afrakstur hennar?“ Munum bregðast við stöðunni Kristrún svaraði því til að vissulega hefði hún viljað sjá stöðunaöðruvísi. Þau hafi nú verið ár í þessari ríkisstjórn, þau hafi vitað tölurnar ganga niður en vegna stöðu á alþjóðavettvangi hafi róðurinn þyngst. „Hækkanir sem hafa komið sjálfkrafa í kerfið.“ Hún sagði ríkisstjórnina vera að leggjast yfir þetta mikla launaskrið sem gert hefur verið og nefndi til dæmis að læknasamningur sem síðasta ríkisstjórn gerði hafi reynst erfiður. „Allt eru þetta þættir sem við erfðum. En við tökum ábyrgð á stöðunni. Það er of stórt skref að taka að ætla að snúa því við á einu ári. Við höfum verið að kortleggja þett svo við getum til skemmri tíma hægt á þessari þróun. Þetta er staðan og við þurfum að hafa úthald til að bregðast við henni. Og munum gera það.“ Kristrún fær gult í einkunn frá Sigurði Sigurður Örn taldi Kristrúnu ekki hafa svarað spurningunni sem var hvernig henni þætti til hafa tekis. Sjálfur væri hann þriggja barna faðir, hann hefði þurft að leggjast yfir moðukenndar umsagnir og þetta svar Kristrúnar væri gult: „Þarfnast þjálfunar.“ Og Sigurður Örn teygði sig yfir í umræðuna um aðildarviðræður við Evrópusambandið, en önnur umræða er á dagskrá þingsins á eftir: Að ríkisstjórnin virðist telja að þangað sé hægt að sækja lægri vexti og lægra matvælaverð?! Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra átti í vök að verjast á þinginu nú áðan. En hún sagðist hafa fengið slæmt efnahagsástand í arf frá fyrri ríkisstjórn.vísir/anton brink En lausnin verður ekki flutt inn frá meginlandi Evrópu, fyrst þurfi að taka til heima fyrir. Og hann spurði áfram: „Seðlabankinn spáir nú að verðbólga nái ekki markmiði fyrr en í byrjun árs 2028 — það er heilt ár til viðbótar af aðhaldi. Hvað er ríkisstjórnin að gera til að flýta því að markmiðinu verði náð? Augljóst að markaðir trúa því ekki að það sem ríkisstjórnin er að bjóða upp á dugi til.“ Mótsagnir í vilja minnihlutans varðandi upplýsingar Kristrún sagðist verða að nota tækifærið í seinna svari sín, því þrátt fyrir þá ást sem minnihlutinn hefði á upplýsingum hefði minnihlutinn óbeit á því að fá svör við því hvað geti falist í aðild? Þar vísaði Kristrún til heitra umræðna sem fram fóru á þinginu áður en að óundirbúnum fyrirspurnum kom, í lið um fundarstjórn forseta, þar sem þingmenn stjórnarandstöðunnar fóru mikinn og sökuðu ríkisstjórnina um að halda trúnaðargögnum í leyniherbergi í þinghúsinu. „Af því að hann vissi betur?“ Kristrún sagðist ekki vita betur og því vildi hún vita hvað væri hægt að fá út úr viðræðum við ESB. Guðrún Hafsteinsdótti formaður Sjálfstæðisflokksi setur sig sjaldnast úr færi að spyrja Kristrúnu og á því varð engin breyting nú. Guðrún beindi spurningu sinni að Kristrúnu og var á sömu nótum og Sigurður Örn. Hún sagði nú heilt ár liðið án árangurs, vextir komnir upp úr öllu valdi, hagvaxtahorfur hafi versnað og horfur á meira atvinnuleysi en áður var spáð. „Þetta er staðan sem blasir við ungu fólki sem vill eignast eigið húsnæði. Þetta er staðan hjá fyrirtækjum sem vilja ráða fólk, fjárfesta og skapa verðmæti í síversnandi samkeppnisumhverfi í boði ríkisstjórnar Íslands.“ Hvað þarf að til að koma? Guðrún sagði Kristrúnu hafa talað um aga, ábyrgð og plan. „Hún hefur talað um að gefast ekki upp þótt á móti blási. En niðurstaðan er sú að verðbólgan haggast ekki, vextir hækka, atvinnuleysi eykst og ríkisstjórnin heldur áfram að boða skattahækkanir á fólk og fyrirtæki.“ Guðrún Hafsteinsdóttir stóð í ströngu í ræðupúlti þingsins í dag. Hún tók þátt í umræðu um Fundarstjórn forseta og fékk glósu frá Guðmundi Ara Sigurjónssyni þingflokksformanni Samfylkingarinnar sem hvatti hana til að fara með rétt mál. Þá tók hún til óspilltra málanna og spurði Kristrúnu spjörunum úr.vísir/vilhelm Sjálfstæðisflokkurinn hafi hins vegar bent á aðra leið sem sé að lækka skatta og gjöl, sem þýði raunverulegan sparnað í ríkisútgjöldum. „Við viljum minni opinber umsvif og betri skilyrði fyrir atvinnulífið og heimilin í landinu sem ríkisstjórnin heldur að geti alltaf borgað aðeins meira.“ Og Guðrún spurði: „Sér hún ekki að efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar hefur brugðist stórkostleg? Og hvað þarf eiginlega að gerast svo að ríkisstjórnin hverfi frá braut skattahækkana og aukinna ríkisumsvifa?“ Ríkisstjórnin erft erfitt árstand Kristrún Frostadóttir svaraði Guðrúnu að því er virtist pollróleg. Hún sagði að þetta væri ekki ný staða í íslensku efnahagslífi. Hún taldi að fólk sæi í gegnum slíkan málflutning, vextir væru enn töluvert lægri en þeir voru í tíð síðustu ríkisstjórna sem og verðbólga. „Ég er auðvitað ekkert sátt við þessa stöðu,“ sagði Kristrún og benti meðal annars á hækkun olíuverðs. Þá nefndi Kristrún, eins og hún gerði nokkrum sinnum í þessari umræðu, þríhliða samtal sem ríkisstjórnin hefur efnt til með verkalýðshreyfingunni og atvinnurekendum. Kristrún sagði ríkisstjórnina hafa starfað í rúmt ár og þau hefðu erft samninga sem gerðir voru í tíð síðustu ríkisstjórnar: Launaskrið væri alltof útbrei og þar hlyti fráfarandi ríkisstjórn að líta í eigin barm. „Þetta er vegferð en það eru næg verkefni og við munum klára þau.“ Guðrúnu hitnar í hamsi Guðrúnu var greinilega heitt í hamsi þegar hún mætti seinna sinni í pontu, í fyrirspurn sinni til Kristrúnar. Hún sagði þetta gamalkunnugt, Kristrún vildi kenna öllum öðrum en sjálfri sér en það breytti ekki þeirri einföldu staðreynd að innantómar yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar gagnast ekki heimilunum. Það verður ekki meira eftir í veskinu í lok mánaðar þótt ríkisstjórnin lofi öllu fögru. Og hvort Kristrúnu væri virkilega ekki kunnugt um að ríkisstjórnin geri ekki samninga við launafólk? Kristrún sagði það rétt, ríkisstjórnin gerði ekki kjarasamninga en ríkið gerði hins vegar samninga við opinbera starfsmenn og það skipti máli.
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Efnahagsmál Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Innlent Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Innlent Fleiri fréttir Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir sjö daga aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni „Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Í gæsluvarðhaldi en segist einungis hafa verið bílstjóri Billy Long kominn á klakann Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Pysjutímabilið formlega hafið Bílstjóri ákærður fyrir að nauðga fatlaðri konu Bein útsending: Umdeildur fundur Baudenbacher Sjá meira