Lægðadrag nálgast landið með rigningu og súld Lovísa Arnardóttir skrifar 21. maí 2026 07:19 Það er gott að njóta góða veðursins í dag því svo fer að rigna víðast hvar um land. Vísir/Vilhelm Í dag má búast við norðaustlægri eða breytilegri átt, líklega þremur til tíu metrum á sekúndu. Svo er spáð þokusúld eða lítilsháttar rigning norðaustanlands, annars þurrt að mestu, en líkur á stöku skúrum sunnantil. Bætir í vind og úrkomu syðst í kvöld. Hiti á bilinu fjögur til 15 stig, svalast norðaustanlands.
Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að lægðadrag suður í hafi nálgast landið í dag og að úrkomusvæði þess muni ganga inn á Suðurland seint í nótt og á morgun með rigningu, en súld þegar líða fer á kvöldið. Annars verði fremur hægar norðaustlægar eða breytilegar áttir í dag og á morgun. Á morgun er spáð víða austlægri eða breytilegri átt 5-13 á morgun og rigning eða skúrir, einkum sunnanlands, en súld norðanlands með kvöldinu. Hiti breytist lítið. Í hugleiðingum segir að á morgun, föstudag, verði áfram fremur vætusamt sunnanlands, en yfirleitt þurrt að mestu norðanlands. Snemma á laugardag gangi svo önnur skil inn á land frá lægð sem verður þá stödd suðvestur í hafi, og útlit er fyrir að lægðin muni valda vætusömu veðri og rigningu með köflum í öllum landshlutum fram yfir helgina á leið sinni norðaustureftir, en þessu fylgir þó yfirleitt fremur hægur vindur. Áfram verður fremur milt veður, en útlit er fyrir jafnari hitatölum um helgina þegar fer að hlýja norðaustanlands. Víða eru framkvæmdir um land og vegfarendur beðnir um að sýna gát. Annars er nokkuð greiðfært en þó umferðarstýring á ákveðnum stöðum við framkvæmdir. í dag verður umferðarstýring frá Villingaholtsvegi að Þingborg til vesturs á milli 9 og 21 og á Borgarfjarðarbrú. Nánar um veður á vef Veðurstofu og færð á vef Vegagerðar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Austlæg átt 5-13 m/s og súld eða rigning með köflum, en lengst af úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti 4 til 14 stig, mildast vestanlands. Á laugardag: Suðaustan og sunnan 5-13 og rigning með köflum, hiti 7 til 12 stig. Lengst af þurrt norðaustanlands með hita að 17 stigum. Á sunnudag (hvítasunnudagur): Suðvestan og sunnan 5-13 og skúrir, en bjart að mestu á Norðaustur- og Austurlandi. Heldur svalara. Á mánudag (annar í hvítasunnu): Vestlæg eða breytileg átt og rigning eða skúrir, en úrkomuminna fyrir norðan. Hiti víða 7 til 14 stig. Á þriðjudag: Útlit fyrir suðaustanátt og stöku skúrir, en rigningu sunnan- og vestantil með kvöldinu. Fremur milt í veðri. Á miðvikudag: Útlit fyrir suðlæga átt og vætu í flestum landshlutum, en úrkomuminna norðaustanlands. Áfram milt veður.
Veður Færð á vegum Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Sjá meira