Innlent

Vil­hjálmur verður bæjar­stjóri

Samúel Karl Ólason skrifar
Vilhjálmur Árnason, verðandi bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
Vilhjálmur Árnason, verðandi bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Vísir/Vilhelm

Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, verður bæjarstjóri en hann og Gunnlaugur Kárason, oddviti Miðflokksins, skrifuðu í dag undir málefnasáttmála nýs meirihluta. Gunnlaugur verður formaður bæjarráðs.

Þá verður Margrét Þórarinsdóttir úr Sjálfstæðisflokknum forseti bæjarstjórnar.

Greint var frá því í gær að samkomulag um meirihlutasamstarf flokkanna væri í höfn. Fyrir kosningarnar, þegar Vilhjálmur var kynntur sem bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins sagði hann að hann myndi einungis segja af sér sem þingmaður ef hann yrði pólitískt kjörinn bæjarstjóri.

Sjá einnig: Meirihlutasamstarf í höfn í Reykjanesbæ

Í málefnasáttmála Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins segir að leiðarstef bæjarfulltrúa flokkanna verði að íbúar njóti góðrar þjónustu, fjölbreyttra tækifæra og öflugra innviða.

Leggja á áherslu á að skapa umhverfi sem styður við atvinnulíf, nýsköpun og fjárfestingu og þá á einnig að styrkja rekstur bæjarins. það sé forsenda öflugra innviða og góðrar þjónustu.

Þá hyggst meirihlutinn ætla að setja skýr mörk í málefnum hælisleitenda og flóttamanna og segir í sáttmálanum að markmiðið verði að tryggja að „íbúar búi við góða öryggistilfinningu og að Reykjanesbær beri ekki meiri byrðar en önnur sveitarfélög í málaflokknum.“

Sáttmálann má finna hér að neðan.

Tengd skjöl




Fleiri fréttir

Sjá meira


×