Conor McGregor með varnaðarorð fyrir endurkomuna Aron Guðmundsson skrifar 22. maí 2026 14:45 Það styttist í endurkomu Conor McGregor í bardagabúrið Conor McGregor, fyrrverandi UFC meistari, segist betri en nokkru sinni áður nú þegar dregur nær endurkomu hans í bardagabúrið. Íranum hlakkar til að sýna heimsbyggðinni meistaratakta sína í íþróttinni.
McGregor mun snúa aftur í bardagabúrið þann 11.júlí næstkomandi í Las Vegas og berjast þar við Max Holloway í veltivigt í UFC. McGregor, sem er þekktasta andlit UFC frá upphafi og fyrrverandi tvöfaldur meistari, mun ekki hafa barist í fimm ár þegar kemur að bardaga hans við Holloway. Írinn, sem hefur verið duglegur við aðkoma sér í vandræði utan bardagabúrsins, barðist síðast gegn Dustin Poirier í júlí árið 2021 og fótbrotnaði í bardaganum. „Ég er fullur af orku nú þegar að ég held inn í krefjandi æfingabúðir,“ sagði McGregor í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem að hann þakkaði fyrir stuðninginn undanfarna daga eftir að greint hafði verið frá endurkomu hans í bardagabúrið. View this post on Instagram A post shared by Conor McGregor Official (@thenotoriousmma) Teymið í kringum Írann fyrir bardagann mikilvæga gegn Max Holloway í júlí er klárt, þjálfarar og æfingafélagar. „Ég er þakklátur fyrir þetta lið sem er í kringum mig. Við erum rétt stilltir inn á áskorunina framundan. Það er dýrðarinnar tími framundan í æfingasalnum hjá okkur.“ McGregor hefur fyrir löngu síðan orðið vel ríkur af þessari iðju sinni og eftir að hafa orðið meistari í tveimur þyngdarflokkum á sama tíma í UFC furða sig margir á því hvers vegna Írinn sækist enn og aftur eftir því að berjast í bardagabúrinu. „Ég er betri en nokkru sinni áður. Tek því tækifæri fagnandi að geta enn á ný sýnt heimsbyggðinni meistaratakta mína í blönduðum bardagaíþróttum.“
MMA Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Fleiri fréttir FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sindri áfram í sextán liða úrslit „Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“ „Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í“ Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Elvar öflugur í spennutrylli Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Ísland missti af verðlaunum með minnsta mögulega mun Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sjá meira