Viðskipti innlent

Fljúga dag­lega til Washington D.C. í sumar

Árni Sæberg skrifar
United airlines mun fljúga daglega til og frá Keflavík í sumar.
United airlines mun fljúga daglega til og frá Keflavík í sumar. Anadolu/Getty

United Airlines hóf í dag beint flug til Keflavíkurflugvallar frá Washington D.C. og var af því tilefni tekið vel á móti farþegum við komuna til Keflavíkurflugvallar. Í sumar mun United Airlines fljúga daglega á milli KEF og Dulles flugvallar. sem fjölgar valkostum ferðalanga, bæði hvað varðar þægindi og flugtengingar.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að daglegar ferðir til Washington muni fjölga valkostum ferðalanga, bæði hvað varðar þægindi og flugtengingar.

„Það er mjög ánægjulegt að taka á móti fyrstu farþegum United Airlines frá Washington. United Airlines er mikilvægur samstarfsaðili og við hlökkum til að sjá áframhaldandi samstarf okkar styrkjast og vaxa á komandi árum. Sú ákvörðun að bæta Washington við sem nýjum áfangastað, samhliða Newark/New York og Chicago, endurspeglar traust United Airlines á Íslandi sem eftirsóttum áfangastað og undirstrikar vaxandi eftirspurn eftir ferðum til og frá landinu,“ er haft eftir Bjarna Páli Tryggvasyni, framkvæmdastjóra þjónustu og rekstrar á Keflavíkurflugvelli. 

United Airlines hafi flogið til Keflavíkurflugvallar frá árinu 2018 og muni í sumar einnig fljúga daglega frá tveimur öðrum flugvöllum, Newark/New York og Chicago O'Hare.

„Við erum afar spennt að hefja okkar fyrstu flug milli Keflavíkur og Washington D.C., sem undirstrikar enn frekar mikilvægi Íslands innan alþjóðlegs leiðakerfis United. Sumarið 2026 munu viðskiptavinir okkar á Íslandi njóta enn fjölbreyttari ferðamöguleika og greiðra tenginga til yfir 50 áfangastaða í Ameríku í gegnum tengistöð okkar í Washington D.C. Þá munu bandarískir ferðalangar einnig fá fleiri möguleika til að ferðast til Íslands og upplifa náttúrufegurð landsins, þar á meðal Bláa lónið, miðnætursólina, svartar sandstrendur og fleira,“ er haft eftir Amit Badiani, yfirmanni sölu fyrir Afríku og Evrópu utan leiðakerfis hjá United Airlines.

United Airlines muni fljúga daglega til og frá Keflavíkurflugvelli til Washington Dulles International Airport fram til 23. september. Komutími samkvæmt flugáætlun sé 8:30 og brottfarartími 11:30.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×