Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Oddur Ævar Gunnarsson og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 27. maí 2026 12:14 Oddvitarnir þrír í faðmlögum að loknum blaðamannafundinum í Viðey. Vísir/Vilhelm Hildur Björnsdóttir verðandi borgarstjóri segist hafa gert atlögu að því að mynda fjögurra flokka meirihluta með Miðflokki. Það hafi ekki gengið eftir og segist hún telja meirihluta Viðreisnar og Framsóknar líklegri til að skapa sátt heldur en meirihluta með Miðflokki. Hún segir boð til Ara Edwalds um að taka við stjórnarformennsku í Orkuveitu Reykjavíkur enga friðþægingu. „
Það var reyndar mjög mikill málefnasamhljómur milli þessara flokka hér og við sjáum öll fram á að geta komið okkar áherslumálum til framkvæmda í þessum meirihluta. Svo skiptir auðvitað eins og ég nefndi áðan gríðarlegu máli að það ríki traust og trúnaður, inni í meirihluta. Við erum að koma út úr þessu óstöðugleika kjörtímabili þar sem meirihlutar sprungu og menn voru mikið að hafa vistaskipti, þannig við ætlum að reyna að koma á meiri stöðugleika og vinnufrið og fara að vinna fyrir borgarbúana,“ sagði Hildur við fréttastofu að loknum blaðamannafundi í Viðey. Óttaðistu að það yrði meiri órói í kringum meirihluta með Miðflokki? „Ja, þetta er allavega sá meirihluti sem ég taldi bestan fyrir Reykjavík. Við viljum auðvitað og ég hef talað um það í gegnum árin að mér hefur þótt ríkja menningarstríð í Reykjavík, fólk mikið að deila um framtíð borgarinnar. Ég held það sé tækifæri til að ná meiri sátt og ég held að það verði best gert í þessum meirihluta.“ Of langt á milli Viðreisnar og Miðflokks Það kom upp í spekúlasjónum að mögulega væri fjögurra flokka meirihluti að myndast, hvað var að gerast, kom til greina að það yrðu fjórir flokkar? „Það er allavega alveg ljóst að það var mikið slúðrað á seinustu dögum og það er bara gaman af því og manni bárust margar skemmtilegar sögur sem voru ósannar en það er bara eðlilegt. En jú það lá alveg ljóst fyrir og fjölmiðlar fylgdust með því að ég freistaði þess að ná saman þessum fjórum flokkum og ná saman þessari borgaralegu breidd. Það gekk ekki eftir. En við sem hér stöndum erum öll sammála um það að við viljum breyta vinnubrögðunum í borgarstjórn, við viljum nýta krafta fólks hvort sem það er í meirihluta eða minnihluta, við erum með fólk með reynslu víða að úr samfélaginu sem getur nýst í verkefnunum framundan í borginni og við munum gera það.“ Fjögurra flokka meirihluti með Miðflokki var einnig borinn undir Björgu Magnúsdóttur, oddvita Viðreisnar, að loknum blaðamannafundinum. Oddvitarnir þrír voru eðli málsins samkvæmt himinlifandi í Viðey. Vísir/Vilhelm „Við vorum bara mjög skýr fyrir kosningar að við teljum of langt á milli Viðreisnar og Miðflokksins í meirihlutasamstarfi, sögðum það fyrir kosningar og stöndum að sjálfsögðu við það. En við áttum mjög gott samtal í síðustu viku og það er rosalega mikið af flottu fólki að koma inn í borgarstjórn í öllum flokkum þannig mér finnst mjög eðlilegt að hafa tekið það samtal og þann fund en þetta er niðurstaðan og ég tek undir með félögum mínum að hér ríkir trúnaður og traust, við erum á svipaðri bylgjulengd og langar að fara að líta til framtíðar,“ sagði hún. Engin friðþæging Fram kom á blaðamannafundinum að Ara Edwald oddvita Miðflokks yrði boðið að vera stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. Hann sagði í samtali við Vísi í morgun að hann kannist ekki við að hafa fengið boðið, í hið minnsta í morgun. Er það til þess að friða hann af því hann er ekki í þessum meirihluta og hvað þýðir það því það eru mögulega meiri hægri áherslur hjá Miðflokki heldur en mögulega Sjálfstæðisflokki? „Það verður mín tillaga að hann verði stjórnarformaður Orkuveitunnar. Það er ekki nein friðþæging, það er bara vegna þess að þarna erum við með reynslumikinn mann í fyrirtækjarekstri, inni í Orkuveitunni bíða stór og mikil verkefni. Það þarf að taka til í Orkuveitunni, við viljum ráðast í ákveðna eignasölu, við höfum talað um að selja Ljósleiðarann og Carbfix, standa vörð um grunnþjónustuna, kjarnaþjónustuna, rafmagnsveituna og vatnsveituna og við treystum honum vel til að sinna þessum verkefnum. Hann hefur þessa reynslu sem til þarf og það þarf reynslumikla manneskju inn í þetta verkefni, þannig þó hann sé í minnihluta þá ber ég fullt traust til hans, að hann klári þessi verkefni ef hann tekur það að sér.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Viðreisn Framsóknarflokkurinn Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira