Mun dæma meirihlutann af verkunum Birgir Olgeirsson skrifar 27. maí 2026 12:59 Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir að eðlilega hafi fólk skoðanir á meirihlutamyndunum. Hún segir öllu máli skipta að Sjálfstæðisflokkurinn leiði nú meirihluta í borginni og það verði nýtt til að fara í nauðsynlegar breytingar. Vísir//Vilhem „Ég fagna góðu gengi Sjálfstæðisflokksins í borginni. Kjósendur voru að kjósa um breytingar og Sjálfstæðismenn eru komnir til valda í borginni og munu leiða þær breytingar,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Vísi. Þar tjáir hún sig um nýjan meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks í borginni.
Einhverrar óánægju hefur gætt meðal nafntogaðra Sjálfstæðismanna með að borgarstjórnarflokkurinn hafi valið að mynda meirihluta með Viðreisn. Flokkarnir tveir sem bættu mestu við sig í sveitarstjórnarkosningunum voru Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur og hefðu getað myndað meirihluta í borgarstjórn. Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur segir að nú sé búið að mynda meirihluta við Viðreisn og Framsóknarflokk, sem hann kallar vinstri flokka. „Kjósendur Sjálfstæðisflokksins hljóta að mótmæla þessu framferði hástöfum,“ skrifar Jón Steinar. Hann segir Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokks og verðandi borgarstjóra, misbjóða kjósendum Sjálfstæðisflokksins. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, stjórnmálafræðiprófessor og Sjálfstæðismaður, segir það ótrúlega niðurstöðu að Sjálfstæðisflokkur hafi myndað meirihluta með Viðreisn og Framsóknarflokki þegar kjósendur hafi kallað eftir breytingum. Guðrún Hafsteinsdóttir segir í samtali við Vísi að það sé eðlilegt að fólk hafi sterkar skoðanir á myndun meirihluta. Það sem skipti þó mestu sé að Sjálfstæðisflokkurinn hafi sigrað í kosningunum og fengið sterkt umboð til að leiða þarfar breytingar í Reykjavíkurborg. „Ég mun dæma þennan meirihluta af þeirra verkum,“ segir Guðrún. Hún segir að allir kostir séu metnir og skoðaðir eftir kosningar og það þurfi að finna hvaða meirihluti tryggir besta og mesta árangurinn á grundvelli stefnu Sjálfstæðisflokksins, sem verði kjölfestan í meirihlutasamstarfinu. „Ég trúi því að Sjálfstæðisflokkurinn muni leiða breytingar á grundvelli Sjálfstæðisflokksins. Það er sú leið sem ég tel að muni leiða fram mestu breytingarnar fyrir borgarbúa,“ segir Guðrún. Meirihlutinn hafi kynnt verkefnalista sem borgarbúar geti fylgst með á kjörtímabilinu og veitt meirihlutanum gott aðhald til góðra verka.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira