Viðskipti innlent

Fundi frestað til morguns

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Rétt fyrir upphaf fundar í Borgartúni í morgun.
Rétt fyrir upphaf fundar í Borgartúni í morgun. Vísir/Vilhelm

Fundi hjá Ríkissáttasemjara í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna hefur verið frestað til klukkan tíu í fyrramálið. Deilan virðist í nokkrum hnút og viðræður þokast lítið áfram að sögn sáttasemjara.

Deiluaðilar voru boðaðir í húsakynni Ríkissáttasemjara klukkan tíu í morgun til fundar. Aðilar málsins hafa verið settir í fjölmiðlabann en sáttasemjari vill halda samtalinu lifandi á milli þeirra og funda. 

Framkvæmdastjóri Íslandssjóða segir flugmenn hafa tekið Icelandair í gíslingu og það stefni í óefni ef fram fer sem horfir eftir tugmilljarða tap.


Tengdar fréttir

Fram­kvæmda­stjóri Ís­lands­sjóða segir flug­menn taka Icelandair „í gíslingu“

Framkvæmdastjóri Íslandssjóða segir flugmenn Icelandair hafa tekið félagið í „gíslingu“ og að það stefni að óbreyttu „aftur í gjaldþrot“ eftir tugmilljarða tap á undanförnum árum. Hann segir að engir fjárfestar muni leggja fyrirtæki til fjármuni sem er ósamkeppnishæft út af „legacy“ samningum við flugstéttir sem séu að eyðileggjar rekstur félagsins.

Icelandair og flug­menn komnir í fjölmiðla­bann

Boðað hefur verið til fundar í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) hjá ríkissáttasemjara klukkan tíu á morgun. Ríkissáttasemjari segir enn langt í land og hefur beint því til samningsaðila að þeir tjái sig ekki um efni viðræðnanna við fjölmiðla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×