Að kannast ekki við ábyrgð sína Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 28. maí 2026 09:00 „Munu börnin mín lifa þann dag að búa við fyrirsjáanleika til langtíma og stöðugt vaxtaumhverfi með sama hætti og norrænir jafnaldrar þeirra?“ spurði Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, í nýlegri grein á Vísi sem meint rök fyrir því að ganga í Evrópusambandið og taka upp evruna. Hins vegar minntist hún ekki á þá staðreynd að af Norðurlöndunum hefur einungis Finnland tekið hana upp. Þó Danmörk og Svíþjóð séu í sambandinu hafa bæði danskir og sænskir kjósendur hafnað evrunni í þjóðaratkvæði og Norðmenn með sama hætti inngöngu í það. Öll þrjú löndin eru með sínar krónur. Helzta ástæðan fyrir verðbólgunni, og þar með stýrivöxtunum, sem við Íslendingar höfum búið við undanfarin ár hefur verið mikill skortur á íbúðarhúsnæði sem orðið hefur til þess að húsnæðisverð hefur hækkað upp úr öllu valdi. Þar hefur Reykjavík vegið langþyngst vegna stærðar sinnar og þeirrar stefnu meirihlutans í borgarstjórn um árabil undir forystu Samfylkingarinnar, og lengi vel meðal annars í samstarfi við Viðreisn, að einungis mætti þétta byggð sem aldrei gat annað meiru en litlum hluta eftirspurnarinnar. Ofan á það bættist síðan að í mörgum tilfellum var byggt óhentugt húsnæði sem selst ekki. Fyrir vikið hefur verið mjög sérstakt, svo ekki sé meira sagt, að sjá hvern Samfylkingarmanninn á fætur öðrum undanfarna daga sparka í krónuna og kalla eftir inngöngu í Evrópusambandið með skírskotun til verðbólgunnar. Verðbólgunnar sem er að miklu leyti afleiðing af því með hvaða hætti haldið var á málum í Reykjavík undir forystu flokksins og Dags B. Eggertssonar, fyrrverandi borgarstjóra og nú þingmanns hans. Framganga Dags er síðan auðvitað enn ámælisverðari en hinna enda var hann öðrum fremur varðmaður þeirrar stefnu að úthluta helzt ekki byggingalóðum nema til þess að þétta byggð. Til að mynda hélt Dagur því fram nýverið að krónan kostaði heimilin í landinu 100 milljarða króna á ári vegna vaxtamunar á milli Íslands og evrusvæðisins. Það er að segja vextirnir hér á landi sem eru sem fyrr segir afleiðing verðbólgunnar sem aftur er að stóru leyti afleiðing þess hvernig haldið var á málum í stjórnartíð hans og Samfylkingarinnar í Reykjavík. Jafnvel Pétur Hafliði Marteinsson, nýr oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, og arftaki Dags vildi alls ekki verja það í kosningabaráttunni fyrir nýafstaðnar borgarstjórnarkosningar hvernig haldið var á spöðunum í þeim efnum af hálfu flokksins. Hundrað milljarðarnir hans Dags voru einnig tilefni greinar Ásu Berglindar Hjálmarsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, á Vísi um síðustu helgi þar sem hún ræddi um vaxtamuninn á milli Íslands og evrusvæðisins. Vextina hér á landi sem eru sem áður segir að miklu leyti afleiðing ákvarðana Samfylkingarinnar við stjórn Reykjavíkurborgar og lága stýrivexti Seðlabanka Evrópusambandsins árum saman sem verið hafa birtingarmynd efnahagslegrar stöðnunar á evrusvæðinu og einkum haft þann tilgang að reyna að koma stöðnuðum hjólum atvinnulífsins á svæðinu í gang sem þó hefur litlu sem engu skilað. Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, Þórður Snær Júlíusson, var síðan með grein á Vísi fyrr í vikunni þar sem hann bar verðlag á Íslandi saman við hin Norðurlöndin sem rök fyrir því að taka upp evruna. Hann minntist þó ekki frekar en Dagbjört á það að af Norðurlöndunum sé einungis Finnland með hana sem gjaldmiðil. Vitaskuld er miklu þægilegra að sparka í krónuna, sem er í raun ekki annað en mælikvarði á stöðu mála í hagkerfinu þar sem ákvarðanir eru teknar af stjórnmálamönnum, en að kannast við eigin ábyrgð í þessum efnum. Krónuna sem ólíkt þeim úthlutar til dæmis ekki byggingalóðum. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Mest lesið Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Helmingsafsláttur af mennskunni Arndís Þórarinsdóttir Skoðun Ábyrgðin er okkar allra Valdimar Víðisson Skoðun Að þora að spyrja og þola svarið Katrín Þrastardóttir Skoðun Stokkið á (barna)vagninn Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Fjölmiðlakreppan: Lýðræðishalli en ekki bara rekstrarvandi Stefán Jón Hafstein Skoðun Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga Njáll Trausti Friðbertsson Skoðun Opnum Skálafell Valdimar Breiðfjörð Birgisson Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Skoðun Skoðun Að virða niðurstöðu sem manni líkar ekki Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Börnin eru ekki þau sem hafa brugðist, það er námsumhverfið sem hefur breyst Inga Henriksen skrifar Skoðun Bætir tækni í kennslustofunni nám? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin alls staðar Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Helmingsafsláttur af mennskunni Arndís Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Hvað borga ferðamenn fyrir nýtingu náttúru og innviða? Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Fjölmiðlakreppan: Lýðræðishalli en ekki bara rekstrarvandi Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun The EU’s reduced attractiveness for prosperous countries Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Ábyrgðin er okkar allra Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Hvar á gervigreind að vinna fyrir hið opinbera? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Virðismiðuð velferðarþjónusta Finnur Pálmi Magnússon skrifar Skoðun Skuldadagar í Reykjavík Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Að þora að spyrja og þola svarið Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Stokkið á (barna)vagninn Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Opnum Skálafell Valdimar Breiðfjörð Birgisson skrifar Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Sjá meira
„
Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Börnin eru ekki þau sem hafa brugðist, það er námsumhverfið sem hefur breyst Inga Henriksen skrifar
Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar
Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun