Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir og Jóhanna Kristjánsdóttir skrifa 31. maí 2026 07:00 Í áratugi hefur Ísland verið meðal þeirra þjóða sem státað hafa af góðum árangri í tóbaksvörnum. Reykingar hafa minnkað verulega, okkur þykir sjálfgefið að umhverfi okkar sé reyklaust og almennur skilningur ríkir á því að tóbak getur valdið alvarlegum sjúkdómum og ótímabærum dauðsföllum. En nú blasir við nýr veruleiki. Á meðan sígarettureykingar hafa dregist saman hefur nikótínneysla aukist á ljóshraða, sérstaklega meðal barna og ungmenna. Við erum að upplifa breytingu á neysluformi nikótíns, úr tóbaksvörum yfir í nikótínvörur: nikótínpúða, rafrettur (vape) og ýmsar aðrar nýjar vörur sem eru markaðssettar sem skaðminni, saklausari eða jafnvel gagnlegar. Þessi þróun ætti að valda okkur öllum áhyggjum. Nikótín er ekki skaðlaust, langt frá því. Upprunalegt hlutverk nikótíns er að trufla taugakerfi skordýra sem herja á plöntur af tóbaksætt og valda lömun eða dauða þeirra. Það er því í grunninn taugaeitur og hefur verið notað sem slíkt. Það er eitt mest ávanabindandi efni sem vitað er um og hefur skaðleg áhrif á heilaþroska ungs fólks, einbeitingu, svefn, kvíða og líðan. Nú er það markaðssett í litríkum umbúðum, með bragðefnum og í formi sem höfðar sérstaklega til yngri aldurshópa. Þannig hefur tekist að gera notkun nikótíns sjálfsagða á ný eftir mikla og langvarandi baráttu gegn tóbaksreykingum. Það sem gerir stöðuna enn alvarlegri er að sífellt fleiri rannsóknir sýna að nikótínvörur geta skapað leið (e. gateway) fyrir tóbaksnotkun. Ungmenni sem hefja notkun nikótíns, t.d. með rafrettum eða nikótínpúðum, eru mun líklegri til að byrja að nota tóbak. Með öðrum orðum: Sú kynslóð sem átti að vera reyklaus er nú aftur í áhættuhópi. Ekkert gerist þó af tilviljun. Alþjóðlegi tóbaks- og nikótíniðnaðurinn hefur ítrekað sýnt að þegar þrengt er að einni vöru, þróar hann aðra. Markmiðið er hið sama: að tryggja nýliðun í fíkn og viðhalda virkum markaði. Að halda því fram að um sé að ræða „skaðaminnkun“ án þess að horfa á þessa heildarmynd er einföldun og í versta falli blekking. Á sama tíma og þessi þróun á sér stað á Íslandi eru önnur lönd farin að hugsa miklu lengra. Þar er ekki lengur aðeins spurt hvernig megi draga úr reykingum og annarri notkun tóbaks og nikótíns, heldur einnig hvenær og hvernig eigi að binda endi á tóbaks- og nikótínsölu með öllu. Nýlegasta dæmið eru Bretar sem hafa þegar sett lög sem banna sölu tóbaks og rafretta til allra sem fæðast árið 2009 og síðar. Í Danmörku ræða forvarnasamtök og fagfólk opinberlega svokallað „tobacco end game“með það að markmiði að hætta sölu á öllum tóbaks- og nikótínvörum árið 2035. Það sama er upp á teningnum á Írlandi, en þar hafa heilbrigðissamtök kallað eftir tímasettri áætlun um tóbakslaust samfélag. Fleiri ríki eru að feta svipaða leið, Hollendingar hafa sett ströng lög sem fella nikótínvörur undir tóbaksvarnarlög, banna bragðefni í rafrettum og alla nikótínpúða og hafa hert eftirlit verulega með það að markmiði að verða komin með reyk- og nikótínlausa kynslóð árið 2040. Frakkar eru einnig að herða lög og hafa nú þegar nikótínpúða, einnota rafrettur og fjölgað stöðum utandyra þar sem reykingar eru með öllu bannaðar. Kjarninn í þessari nálgun er einfaldur:Tóbak er neysluvara sem, veldur stórum hluta notenda sinna ótímabærum dauða og nikótín er eitt mest ávanabindandi efni sem fyrirfinnst. Það er því hvorki eðlilegt né sjálfsagt að sala tóbaks- og nikótínvara sé varanlegur hluti af samfélaginu. Á Íslandi virðist þessi umræða hins vegar hafa setið á hakanum. Þótt drög að nýju frumvarpi um nikótín og tóbaksvörur hafi tvisvar verið birt í samráðsgátt stjórnvalda hefur frumvarpið enn ekki verið lagt fram á Alþingi. Í mars í ár hvatti aðalfundur Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins heilbrigðisráðherra eindregið til að leggja frumvarpið fram án tafar og taka tillit til þeirra breytinga sem fagfólk lagði til í umsagnarferli. Tafir í þessum málum eru ekki hlutlausar. Á meðan tíminn líður eru það fleiri börn og ungmenni sem hefja nikótínnotkun, fíkn festir rætur og samfélagið aðlagast á ný veruleika þar sem nikótín er alls staðar, uppi á borðum í fundarherbergjum, í munni skurðlæknis, á íþróttavellinum og sem þessi lokkandi jarðarberjalykt úr bílnum sem keyrir fram hjá þér. Spurningin sem við stöndum frammi fyrir er ekki hvort við eigum að „banna allt“. Spurningin er hvort við ætlum að setja okkur skýra framtíðarsýn? Hvort við ætlum að verja komandi kynslóðir gegn því að verða háðar efni sem þær hafa verið berskjaldaðar fyrir? Hvort við ætlum að láta lýðheilsu ráða för eða, enn og aftur, láta markaðsöflin njóta vafans? Munum að nikótín er fyrst og síðast taugaeitur. „End game“í tóbaksvörnum snýst ekki um að refsa fólki sem er háð nikótíni. Það snýst um að hætta að bjóða upp á, og vinna markvisst að því að gera vörurnar óaðgengilegar, svo þær verði ekki áfram sjálfsagður hlutur í daglegu lífi fólks. Við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að vernda ungmenni og stuðla að fræðslu, ásamt því að tryggja raunverulegan stuðning við þá sem vilja hætta tóbaks- og nikótínnotkun. Ísland hefur áður sýnt að það er hægt að taka stór skref í forvörnum. Nú er spurningin hvort við höfum pólitískt hugrekki til að stíga næsta skref áður en sagan endurtekur sig. 31. maí er alþjóðlegur dagur án tóbaks. Vala er framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins og Jóhanna Kristjánsdóttir formaður félagsins og tóbaksvarnarsérfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tóbak Mest lesið Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Íris Helga Gígju Baldursdóttir Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller Skoðun Skoðun Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun