Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Samúel Karl Ólason skrifar 2. júní 2026 12:16 Anthropic er eitthvað verðmætasta sprotafyrirtæki heimsins. AP/Patrick Sison Forsvarsmenn gervigreindarfyrirtækisins Anthropic hófu í gær formlega undirbúning fyrir hlutafjárútboð. Fyrirtækið gæti verið komið á hlutabréfamarkað fyrir haustið en eigendur þess og eigendur OpenAI eru í keppni um hverjir verða fyrstir.
Fyrirtækið, sem er hvað þekktast fyrir mállíkanið Claude, var nýlega metið á nærri því billjón dala (Tólf núll). Lauslega reiknað samsvarar það tæpum 123 billjónum króna (123.000.000.000.000). Anthropic er þess vegna eitthvað verðmætasta sprotafyrirtæki heims. Forsvarsmenn þess sögðu nýverið að árstekjur Anthropic væru 47 milljarðar dala, sem þýðir að það er bæði tekjuhærra og verðmætara en OpenAI, sem er hvað þekktast fyrir ChatGPT. Í frétt Wall Street Journal segir að forsvarsmenn bæði Anthropic og OpenAI hafi fengið þau skilaboð frá stærstu bönkum Bandaríkjanna að þeir sem verða fyrstir til að skrá sig á hlutabréfamarkaði muni geta haft gífurleg áhrif á framvindu mála hvað varðar gervigreindarfyrirtæki á mörkuðum vestanhafs. Þeir munu fyrstir hafa aðgang að aragrúa fjárfesta sem vilji ólmir fjárfesta í geiranum. Sam Altman, forstjóri OpenAI, sagði þó í nýlegu viðtali við CNBC að þar yrði farið í hlutafjárútboð þegar það „meikaði sens“. Í tilkynningu á síðu Anthropic segir að þegar fjármálaeftirlit Bandaríkjanna ljúki skoðun sinni á fyrirtækinu geti það verið sett á markað. Hvenær það stendur til liggur ekki fyrir en í tilkynningunni segir að farið verði í hlutafjárútboð með tilliti til markaðsaðstæðna og annarra skilyrða. Ekki er búið að ákveða fjölda hluta eða verð þeirra. Tóku framúr OpenAI Anthropic var stofnað árið 2021 af hópi fyrrverandi starfsmanna OpenAI. Þar á meðal var Dario Amodei, forstjóri þess. Fyrirtækið var lengi á eftir OpenAI þegar kemur að þróun gervigreindar en þykir nú af mörgum hafa tekið fram úr í kapphlaupi þeirra, sérstaklega þegar kemur að Claude Code-gervigreindartólinu. Í framhaldi af því gaf Anthropic út aðrar útgáfur af Claude sem hafa vakið mikla lukku víða um heim. Fyrirtækið stendur þó frammi fyrir ýmsum vandræðum. Meðal annars má nefna skort á reiknigetu sem hefur leitt til þess að fjöldi notenda hefur verið takmarkaður og umfangsmiklar deilur við ríkisstjórn Bandaríkjanna sem leiddu til þess að opinberum stofnunum og fyrirtækjum var meinað að nota vörur þess. Anthropic hefur höfðað mál gegn ríkisstjórninni vegna þessa.
Gervigreind Bandaríkin Mest lesið Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira