„Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. júní 2026 15:55 Heiða Björg verður nú óbreyttur borgarfulltrúi eftir að hafa verið borgarstjóri í 15 mánuði. Vísir/Vilhelm Þakklæti er efst í huga hjá Heiðu Björgu Hilmisdóttur sem lét af embætti borgarstjóra í dag. Hún stefnir á að gegna embætti borgarfulltrúa næstu fjögur árin enda sé enn margt sem hægt er að bæta. „
Það var heiður lífs míns að vera borgarstjóri, þetta er búið að vera ótrúlega gaman og ég er stolt af okkar verkum sem við náðum að gera á þessum fimmtán mánuðum,“ segir Heiða Björg Hilmisdóttir, fyrrverandi borgarstjóri. „Það er af nægu að taka og margt sem er hægt að bæta í borginni okkar áfram þannig að ég hlakka til að takast á við það.“ Hún segist hafa lært töluvert á því að vera borgarstjóri, sér í lagi hversu flókið kerfið er í raun. „Það má einfalda margt og gera margt betur, það kom mér svolítið á óvart. Við fórum í að styrkja sumt og annað ekki, það eru mörg verkefni sem enn bíða,“ segir hún. „Og hversu mikinn áhuga borgarbúar hafa á borgarstjóranum sínum kom mér smá á óvart, en það var gaman.“ Ekkert til í því að hún leiti annað Sá orðrómur hefur verið uppi um að Heiða Björg ætli ekki að taka sæti í borgarstjórninni. Hún segir ekkert til í því. „Að sjálfsögðu, ég tók ákvörðun um að bjóða mig fram sem borgarfulltrúi og er hér í dag og stolt af því að fá það umboð borgarbúa til að starfa hér,“ segir hún. Þá sé hún ekki búin að skoða ítarlega verkefnalista nýja meirihlutans en hún hafi trú á Hildi sem sé öflugur borgarfulltrúi með góða reynslu. „Hún á eftir að standa sig mjög vel í því hlutverki, hún er vandvirk og setur sig vel inn í hlutina. Við erum auðvitað ekki á sömu pólitísku línunni,“ segir Heiða. Sjálf segist hún ekki upplifa sorg heldur þakklæti. „Ég upplifi mest þakklæti, þakklæti fyrir að hafa gegnt þessu starfi og að hafa fengið að gegna öllum þessum verkefnum.“
Borgarstjórn Reykjavík Samfylkingin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira