Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Árni Sæberg skrifar 3. júní 2026 11:21 Þórunn þakkaði Áslaugu fyrir störf hennar. Vísir/Vilhelm Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, klökknaði þegar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir flutti kveðjuræðu á Alþingi í dag. Það gerði hún líka þegar Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir kvaddi Alþingi fyrir örfáum vikum.
Áslaug Arna flutti kveðjuræðu undir liðnum störf þingsins á þingfundi dagsins en hún tók einmitt sæti í upphafi þingfundar, að loknu námsleyfi. „Ég hef ákveðið að láta af þingmennsku. Ég geri það með þakklæti í hjarta og trú á framtíðina. Ég kveð Alþingi, en ég kveð ekki hugsjónirnar. Ég kveð þingmennsku, en ekki viljann til að leggja mitt af mörkum. Ég óska þingheimi góðs gengis í ykkar mikilvægu störfum og frá mínum dýpstu hjartarótum þakka ég ykkur öllum, samstarfsfólki og starfsfólki Alþingis fyrir samfylgdina,“ sagði hún meðal annars. Önnur þingkonan í vor Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, kvaddi sér hljóðs að lokinni ræðu Áslaugar Örnu til þess að þakka henni fyrir hennar störf. „Nú ætlar forseti að vona að hún þurfi ekki aftur á þessu vori að kveðja aðra þingkonu í þessum sal,“ sagði hún og vísaði til Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, sem kvaddi Alþingi á dögunum til þess að taka við stöðu sendiherra í Bretlandi. „Hér er einfaldlega um of mikið tilfinningalegt álag að ræða. En Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur fylgja góðar óskir um velfarnað og ég veit að hvar sem hún beitir sér mun hún starfa öllum til góða.“ Þá gerði hún fimm mínútna hlé á þingfundi.
Alþingi Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Lögregla klippti á plöturnar Innlent Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Innlent Bílvelta austan við Hvalnes Innlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Erlent Fleiri fréttir Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Sjá meira