Albanir mótmæla harðlega fyrirhugaðri milljarðamæringaparadís Hólmfríður Gísladóttir skrifar 4. júní 2026 08:04 Kushner og Trump eru ekki vinsæl í Albaníu um þessar mundir. Getty/Arturo Holmes Mótmæli gegn fyrirhuguðum stórframkvæmdum félags Jared Kushner og Ivönku Trump eru að verða daglegt brauð í Albaníu. Mótmælendur og náttúruverndarsamtök segja framkvæmdir hafnar án þess að málið hafi farið í ferli og fengið tilhlýðilega umfjöllun.
Affinity Partners hefur í hyggja að byggja upp ferðamannaparadís fyrir milljarðamæringa á Sazan, stærstu eyju Albaníu, og þá munu framkvæmdirnar einnig ná til votlendis og strandsvæða sem eru innan skilgreinds þjóðgarðs. Á svæðinu er meðal annars að finna ein af síðustu heimkynnum munksels í Miðjarðarhafinu, auk þess sem þar er að finna um 200 fuglategundir sem margar eru í útrýmingarhættu. Stór hluti svæðisins er innan verndarsvæðis. Þrátt fyrir þetta segja náttúruverndarsamtök málið hvorki hafa farið í nokkurs konar kynningu né liggi fyrir hvort það hafi farið rétta leið í kerfinu hvað varðar öflun leyfa. Forsætisráðherrann Edi Rama, sem hlaut endurkjör í fyrra meðal annars með loforðum um að koma Albaníu inn í Evrópusambandið fyrir árið 2030, hefur varið framkvæmdina og segist staðráðinn í því að sjá til þess að hún nái fram að ganga. Rama hefur talað mjög fyrir aukinni fjárfestingu í landinu. Íbúar á nærliggjandi svæðum og víðar eru hins vegar ævareiðir eftir að vegum var skyndilega lokað, framkvæmdasvæði afgirt og vinnuvélar færðar á staðinn. „Við höfum aldrei séð annað eins á vernduðum svæðum Albaníu,“ segir Aleksandr Trajce, framkvæmdastjóri Protection and Preservation of the Natural Environment in Albania (PPNEA). „Þetta er ekki bara fordæmalaust heldur virðast lög og regla ekki gilda lengur; það er ekkert tillit tekið til samfélagsins, til umhverfisins, engin leyfi... bara jarðýtur.“
Albanía Donald Trump Bandaríkin Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira