Furðulegum fiskum, hetjum hafsins og brunabangsa bregður fyrir um helgina Freyja Þórisdóttir skrifar 5. júní 2026 17:37 Aríel Pétursson er formaður sjómannadagsráðs en á dagskrá Sjómannadagsins í Reykjavík er meðal annars sýning björgunarsveitarinnar á björgun úr sjó. Vísir/Vilhelm Sjómannadagurinn er á sunnudaginn, þann 7. júní, en í tilefni hans hafa hátíðarhöld þegar hafist víða um land og er auglýst dagskrá bæjarfélaga afar fjölbreytt. Gestir geta spreytt sig á dorgveiði, brunaslöngubolta og fjölmörgu fleiru.
Á Skagaströnd verður viðburðurinn Hetjur Hafsins haldinn í fjórða sinn en í ár lofa skipuleggjendur „fjórum dögum af stemningu, gleði og alvöru sjávarþorpsanda“. Þá hafa íbúar bæjarins verið hvattir til þess að skreyta hús sín og eru verðlaun í boði fyrir flottustu skreytinguna. Brunaslöngubolti hefur notið ágætra vinsælda á bæjarhátíðum síðustu ára en yfirleitt eru sex leikmenn í hverju liði og þar af einn markmaður sem ver markið með brunaslöngu.Skjáskot/Hetjur hafsins Í kvöld verður svo brunaslönguboltamót og BlazRoca tónleikar en um helgina má sem dæmi nefna skemmtisiglingu á vegum Björgunarsveitarinnar Strandar, opin hús í dýragarðinum í Kerlingarholtinu og Sjómannadagshlaupið. „Við hjónin bjóðum í fiskisúpu á milli 18 og 20,“ segir fyrrverandi sveitarstjórinn Magnús B. Jónsson í samtali við blaðamann en hann og Guðbjörg Bryndís Viggósdóttir, eiginkona hans, eru að reikna með allt að sextíu manns í súpusmakk til sín á Skagaströnd á morgun. Þá er í fyrsta sinn svokallað fiskisúpurölt á Skagaströnd en Magnús segir undirbúninginn hafa gengið vel. „Það eru fjórir eða fimm sem ætla að bjóða heim. Við viljum auðvitað gera vel,“ segir Magnús og bætir við að það sé „aðeins öðruvísi að búast við sextíu manns í súpu“, og að þau hafi undirbúið tæpa tuttugu lítra af súpu. Sápurennibraut og sundlaugapartí Í Grindavík hefst dagskráin í kvöld, föstudaginn 5. júní, með árlegri gróðursetningu sumarblóma við minnisvarða Ingibjargar Jónsdóttur, fyrrverandi formanns Kvenfélags Grindavíkur. Bifhjólaklúbburinn Grindjánar mætir á svæðið á morgun og býður gestum að upplifa akstur á mótorhjólum. „Þá fá krakkar að taka smá rúnt á mótorhjóli með meðlimum Grindjána og hugsanlega fá mömmurnar rúnt líka þegar börnin erum búin,“ segir í færslu klúbbsins á Facebook. Á morgun býður Slökkvilið Grindavíkur svo upp á risa sápurennibraut í Bröttubrekku og verður aðgangur í sundlaug Grindavíkur ókeypis. Klukkan hálf fjögur býður Ungmennaráð Grindavíkur í partý í sundlauginni. Verðlaun fyrir furðulegasta fiskinn Íbúar á Eskifirði tóku forskot á sæluna en dagskráin þar hófst í gær. Siglingaklúbbur Austurlands leyfði gestum að prófa kajaka, seglbáta og fleira á meðan Björgunarsveitin Brimrún var með báta til að leyfa börnum að fara með í ferð um fjörðinn. Klukkan ellefu á morgun hefst dorgveiðikeppni á frystihúsbryggju bæjarins. Þá verða veitt verðlaun fyrir stærsta, ljótasta og furðulegasta fiskinn eða hlutinn sem lítur dagsins ljós á bryggjunni. Frítt verður inn á Sjóminjasafn Austurlands alla helgina og á sunnudaginn verður sjómaður heiðraður við hátíðlega athöfn við minnisvarðann um drukknaða sjómenn. Á sunnudaginn verður jafnframt opnuð listasýningin Kringum Gerpi í sýningarsalnum á efri hæð Randúlfssjóhúss. Á sýningunni má líta vel valdar myndir úr útvegslífi Gerpissvæðisins, í landi og úti á miðum, frá síðari hluta 20. aldar. Sýningin er samstarfsverkefni Menningarstofu Fjarðabyggðar, Skjala- og ljósmyndasafns Fjarðabyggðar, Sjóminjasafns Austurlands og Ferðaþjónustunnar Mjóeyri. Reykjavík: Brunabangsinn opnar dagskránna Í tilefni af sjómannadeginum verður hægt að stíga um borð í varðskipið Óðin á sunnudaginn milli klukkan eitt og fjögur og er gestum velkomið að mæta að Sjóminjasafninu í Reykjavík. Meðlimir í hollvinasamtökum skipsins munu standa vaktina og taka á móti gestum. Á Grandagarði „fá gestir að skyggnast inn í dularfullan heim sjávardýranna og kynnast skemmtilegum og skrítnum lífverum sem búa djúpt niðri í sjónum“.Sjómannadagurinn.is Þá verður Bjössi Brunabangsi fyrstur á svið og mun „með sinni einstöku blöndu af sprelli og fræðslu um eldvarnir bjóða börnum og fjölskyldum upp á skemmtilega stund sem enginn vill missa af“. Allan daginn verða fiskikör með furðufiskum og krabbadýrum til sýnis á Grandagarði. Klói kókómjólkurköttur verður á flakki um hátíðarsvæðið en söngkonan Sigga Ósk, harmonikkuleikarinn Margrét Arnadóttir, tónlistarparið Júlí Heiðar og Dísa og Kristmundur Axel eru meðal þeirra sem fram koma yfir daginn. Meðal skipuleggjenda hátíðarhaldanna í Reykjavík er Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs og stjórnandi Sjókastsins, en honum hefur síðustu daga brugðið fyrir í auglýsingum ásamt Guðrúnu Svövu Egilsdóttur, Guggu í gúmmíbát. Eina slíka má sjá í spilaranum hér að ofan. „Við erum búin að þylja allar maríubænirnar til að biðja fyrir góðu veðri, blessunarlega hefur það virkað,“ segir Aríel í samtali við blaðamann Vísis. Hann segir einnig frá því að allt sé að smella sem skyldi og að „undirbúningurinn hafi gengið fáránlega vel“ en ásamt Sjómannadagsráðinu standa Brim og Faxaflóahafnir bak hátíðarinnar.
Sjómannadagurinn Fjarðabyggð Skagaströnd Grindavík Reykjavík Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Fleiri fréttir Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Sjá meira