Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar 5. júní 2026 08:32 Í umræðum um loftslagsmál hafa þingmenn nokkurra flokka haldið fram þremur fullyrðingum sem standast illa nánari skoðun. Sú fyrsta er að Íslendingar standi sig svo vel í loftslagsmálum að við séum fyrirmynd annarra þjóða. Önnur er að losunin sé svo lítil að hún skipti ekki máli. Sú þriðja er að loftslagsaðgerðir Evrópusambandsins séu tilgangslausar og ósanngjarnar. Þessar fullyrðingar þarf að leiðrétta. Ísland er ekki fyrirmynd í loftslagsmálum Ísland býr yfir einstökum náttúrulegum kostum. Við framleiðum nær alla raforku okkar með endurnýjanlegum orkugjöfum og hitum húsin að mestu með jarðvarma. Þetta eru mikilvægar og jákvæðar staðreyndir en segja aðeins hluta sögunnar. Á meðan Evrópusambandið hefur dregið úr losun sinni um rúm 30 prósent frá árinu 1990 hefur losun Íslands aukist. Losun á mann innan Evrópusambandsins er nú um 6-7 tonn af CO₂-ígildum á ári. Á Íslandi er sambærileg tala um 12 tonn á mann þegar landnotkun er undanskilin. Sé losun og binding vegna landnotkunar og skógræktar tekin með í reikninginn hefur losun Íslands verið metin á 30-35 tonn á mann, sem er meðal þess hæsta sem þekkist meðal þróaðra ríkja. Losun Íslands er hlutfallslega mjög mikil Til samanburðar nemur heildarlosun Íslands með landnotkun um fjórðungi af heildarlosun Danmerkur, þótt Danir séu um fimmtán sinnum fleiri en Íslendingar. Á sama tíma hefur Danmörk dregið verulega úr losun frá 1990 en losun Íslands aukist. Það er því erfitt að halda því fram að Ísland sé fyrirmynd annarra þjóða í loftslagsmálum. Evrópusambandið er ekki vandamálið Gagnrýni sumra þingmanna á ETS-kerfið, viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir, er ekki síður athyglisverð. Þar er talað um ósanngjörn gjöld, íþyngjandi reglur og atlögu að íslenskum heimilum og fyrirtækjum. ETS-kerfið er almennt talið ein árangursríkasta loftslagsaðgerðin sem innleidd hefur verið á heimsvísu. Grunnhugmyndin er svokölluð mengunarbótaregla: sá sem veldur mengun greiðir fyrir þann kostnað sem hún veldur samfélaginu. Sumir þingmenn hafa reynt að gera lítið úr ETS-kerfinu með því að kalla það „eyjaskatt“ eða „Atlantshafsálag“ og haldið því fram að það henti ekki Íslandi vegna þess að hér séu ekki lestarsamgöngur. Slíkur málflutningur missir marks og dregur athyglina frá raunverulegu hlutverki kerfisins, sem er að láta mengandi starfsemi bera stærri hluta af raunverulegum kostnaði vegna losunarinnar í stað þess að velta honum yfir á samfélagið í heild. En þannig verða vistvænir orkugjafar einnig samkeppnishæfari. Þegar fyrirtæki eða atvinnugreinar greiða ekki fyrir losun sína lendir reikningurinn annars staðar. Hann birtist í auknu tjóni vegna öfgaveðurs, flóða, þurrka, hækkandi sjávarstöðu, skemmda á vistkerfum og óöryggi í matvælaframleiðslu. Einhver borgar alltaf. Spurningin er aðeins hver. Gagnrýni á loftslagsaðgerðir er eðlileg og nauðsynleg. En hún verður að vera ábyrg. Ef ETS á ekki að vera hluti af lausninni, hvaða aðgerð á þá að koma í staðinn? Ef markmið um samdrátt í losun eru röng, hver eru þá réttu markmiðin? Þessum spurningum er sjaldan svarað. Vísindalegar niðurstöður eru oft hunsaðar Það vekur athygli hversu lítið vægi vísindalegum niðurstöðum virðist gefið í málflutningi sumra þingmanna. Loftslagsvísindamenn hafa lengi bent á að losun gróðurhúsalofttegunda valdi hlýnun jarðar og að kostnaðurinn við aðgerðaleysi aukist með hverju ári. Ísland hefur allar forsendur til að vera í fremstu röð í loftslagsmálum. Við höfum hreina orku, tæknilega þekkingu, sterkt samfélag og fjárhagslegt bolmagn. Samt höfum við ekki náð þeim árangri sem margar aðrar þjóðir hafa náð. Ekki vegna þess að við getum ekki gert betur, heldur vegna þess að við höfum ekki gert nóg. Reikningurinn lendir hjá börnunum okkar Loftslagsmálin snúast að lokum um siðferðilega ábyrgð. Kynslóð okkar ber að hluta ábyrgð á loftslagsvandanum og hefur bæði tækni, þekkingu og getu til að bregðast við honum. Ef við kjósum að fresta aðgerðum erum við að færa sívaxandi vanda yfir á börnin okkar, barnabörn og kynslóðir framtíðarinnar. Þingmenn verða að leggja sitt af mörkum Útlit er fyrir að árið í ár verði enn eitt metárið í hitamælingum. Ef losun heldur áfram að aukast verður hver áratugur hlýrri en sá fyrri. Því lengur sem við bíðum, þeim mun erfiðara verður að takmarka hlýnunina og afleiðingar hennar. Það er sá veruleiki sem stjórnmálamenn ættu að ræða af alvöru, í stað þess að gera lítið úr vandanum eða ráðast gegn þeim aðgerðum sem hafa reynst árangursríkar. Loftslagsumræðan á Alþingi þarf ekki fleiri undanbrögð. Hún þarf meiri ábyrgð, meiri heiðarleika og skýrari aðgerðir. Greinarhöfundur er í loftslagshópnum París 1,5 sem berst fyrir því að Ísland taki ábyrgð í baráttunni gegn loftslagsvánni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eyþór Eðvarðsson Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar