Mogginn afþakkar framlag Dags B. Jakob Bjarnar skrifar 5. júní 2026 15:58 Ekki er hægt að skilja Dag öðruvísi en svo að skrif hans um Evrópusambandið hafi farið fyrir brjóst þeirra sem stjórna Mogganum. vísir Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar segir að honum hafi verið tilkynnt það að breyting yrði á því að reglulegir pistlar hans muni birtast á síðum Morgunblaðsins. „
Undanfarið ár hef ég skrifað þingmannapistla á miðopnu Morgunblaðsins. Fyrir skemmstu var mér tilkynnt að þar yrði breyting á. Í dag birtist því síðasta grein mín af þessu tagi - og ljóst að ég mun finna skrifum mínum nýjan vettvang,“ segir Dagur B. Eggertsson. Ljóst er, samkvæmt þessu, að umræðan um Evrópusambandið er að harðna. Mogginn, SFS og hlaðvarpstrúðar í gaslýsingum Morgunblaðið virðist ætla að sýna klærnar en Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, ritaði í nýlegum pistli að Morgunblaðið ásamt SFS og hlaðvarpstrúðum væru að afvegaleiða umræðuna. Þórður Snær telur einsýnt að Morgunblaðið sé, ásamt SFS og hlaðvarpstrúðum að afvegaleiða umræðuna um ESB.Vísir/Vilhelm „Nánast fyndið hefur verið að fylgjast með Morgunblaðinu, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og hlaðvarpstrúðunum sem hafa það hlutverk að gaslýsa fólk í þágu útgerða landsins reyna að afflytja innihald skýrslunnar. Greinilegt er að það stingur að verið sé að opinbera fáveldisáhrifin sem kvótakerfið hefur leitt af sér,“ skrifar Þórður Snær. Dagur segir grein sína, sem hann birtir á Facebook-síðu sína fjalla um svipuð atriði, sem er villandi umræða um Evrópusambandið og auðlindir. Hvernig dettur þér í hug að ganga svona fram? Skrif Dags í Morgunblaðið hafa reynst nokkuð umdeild. Þannig reiddust margir gegnheilir Sjálfstæðismenn þegar hann vogaði sér að rita minningarorð um Davíð Oddsson. Stefán Einar Stefánsson, gegnheill Sjálfstæðismaður, hlaðvarpsstjarna og starfsmaður Morgunblaðisins vandaði honum ekki kveðjurnar af því tilefni og taldi hann hafa fótum troðið minningu Davíðs. Nokkuð sem Dagur kannast ekki við. Ólíklegt má telja að Stefán Einar sakni Dags af síðum málgagnsins.Vísir/Vilhelm „Haltu áfram að reyna að draga úr trúverðugleika eina frjálsa fjölmiðilsins sem eftir er í landinu. Það er jafn smekklegt og þegar þú ákvaðst að nýta miðopnu Morgunblaðsins til að vega að minningu Davíðs Oddssonar um sólarhring eftir að tilkynnt var um andlát hans. Hvernig dettur þér í hug að ganga svona fram?“ spurði Stefán Einar forviða á Facebook-síðu Dags. Ljóst er að Stefán Einar verður ekki meðal þeirra sem sakna skrifa Dags í málgagnið. Fréttin hefur verið uppfærð.
Fjölmiðlar Alþingi Samfylkingin Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira