Sport

Rúm­lega helmingur hlaupara þurfti að hætta

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Veðrið hafði skánað töluvert þegar 53 kílómetra hópurinn lagði af stað.
Veðrið hafði skánað töluvert þegar 53 kílómetra hópurinn lagði af stað. hengill ultra

Vont veðurfar gerði hlaupurum lífið leitt í Hengill Ultra hlaupinu sem hófst í gær og lauk í morgun. Rúmlega helmingur þurfti að hætta á miðri leið.

Hengill Ultra er 106 kílómetra hlaup, þar sem 53 kílómetra leið er hlaupin tvisvar. Leiðin liggur inn að Hengli, yfir fjallgarðinn, niður Sleggjubeinsskarð og þaðan til Hveragerðis þar sem hlaupið hófst og endaði.

Hlaupið var af stað klukkan átta í gærkvöld og síðustu keppendur skiluðu sér yfir marklínuna um hálf ellefu í morgun.

Metskráning var í 106 kílómetra hlaupið í ár. 25 skráðu sig til leiks. Engin alvarleg meiðsli komu upp en vegna veðurs þurftu 13 af 25 hlaupurum að hætta.

„Mikil bleyta er á leiðinni og áfram rigndi í nótt með tilheyrandi kulda og háum loftraka sem hefur reynt verulega á keppendur,“ var skrifað á Facebook síðu hlaupsins í morgun.

12 hlauparar náðu hins vegar að klára Hengil Ultra.

Tómas Aron Viggósson vann gullverðlaun er hann kom fyrstur í mark, langfyrstur reyndar. Hann kláraði hlaupið á 14:34:14 klukkutímum.

Tómas er af íþróttamönnum kominn. Faðir hans er Viggó Sigurðsson, einn besti handboltamaður í sögu Íslands og sá eini sem hefur spilað landsleik fyrir Spán.

Næstir á eftir honum voru Þorleifur Þorleifsson (15:48:14) og Hlynur Jóhannsson (15:59:52).

Samhliða Hengil Ultra eru hlaupnar styttri vegalengdir; 53 kílómetra, 26 kílómetra, 10 kílómetra og 5 kílómetra, þar sem hundruð manna taka þátt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×