Braut kynferðislega á stúlku sem lá með skerta meðvitund á bráðamóttökunni Jón Þór Stefánsson skrifar 7. júní 2026 16:01 Atvikið átti sér stað á Bráðamóttökunni í Fossvogi. Vísir/Vilhelm Karlmaður hlaut á dögunum skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir að áreita kynferðislega stúlku sem lá með skerta meðvitund í sjúkrarúmi á gangi bráðamóttökunnar Landspítalans í Fossvogi. Manninum var gefið að sök að kyssa stúlkuna á munninn og svo stinga fingrum sínum í munn hennar. Með því þótti hann sýna af sér ruddalegt og ósiðlegt athæfi.
Maðurinn hafði sjálfur verið í næsta rúmi við stúlkuna á ganginum. Hann hafði verið fluttur þangað með sjúkrabíl fyrr um kvöldið vegna ótilgreindra veikinda, en stúlkan var þar vegna mikillar ölvunar. Atvikin sem málið varða áttu sér stað seint á laugardagskvöldi í júní 2024. Svo virðist sem málið hafi komið upp þegar hjúkrunarfræðingur gekk fram hjá rúmi stúlkunnar og sá að maðurinn var í sleik við hana. Maðurinn var í kjölfarið færður inn í aðstandendaherbergi. Öryggisvörður á bráðamóttökunni sagðist einnig hafa séð manninn standa yfir stúlkunni og láta hana sleikja fingur sína, og sagðist einnig hafa séð hann kyssa hendur hennar, meðan stúlkan var með skerta meðvitund. Stúlkan hins vegar mundi ekkert eftir atvikum málsins. Sagðist vera að reyna að hjálpa henni Maðurinn neitaði bæði að hafa kysst stúlkuna á munninn eða setja fingur upp í hana. Hann lýsti atburðunum þannig að stúlkan hafi kallað á hjálp og beðið um vatn og hann reynt að hjálpa henni. Þá hafi hann haldið um hönd hennar og kysst hana á höndina og strokið um höfuð hennar. Það sagðist hann hafa gert til að róa hana. Dómnum þótti framburður mannsins ótrúverðugur, og taldi hann afskipti hans við stúlkuna hafa verið mjög óviðeigandi og óeðlileg, og var hann sakfelldur. Maðurinn hlaut þriggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára. Honum er gert að greiða stúlkunni 400 þúsund krónur, og rúmar tvær milljónir króna í sakarkostnað.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Landspítalinn Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Fleiri fréttir Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Sjá meira