Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Hólmfríður Gísladóttir skrifar 9. júní 2026 06:30 Lögregla hafði í ýmsu að snúast í nótt. Vísir/Vilhelm Lögregla á höfuðborgarsvæðinu greip til rafvarnarvopns í gærkvöldi eða nótt en þurfti á endanum ekki að nota það. Tilkynning barst um yfirstandandi innbrot en sá sem tilkynnti var handtekinn.
Frá þessu er greint í yfirliti lögreglu yfir verkefni næturinnar. Atvik voru þannig að tilkynning barst lögreglu um yfirstandandi innbrot, þar sem fólk var sagt vera að reyna að komast inn til þess sem tilkynnti. Lögregla mætti á vettvang og fann fyrir meinta innbrotsþjófa. Lögregla dró upp rafvarnarvopn og beindi að einum einstakling á vettvangi, segir í yfirlitinu, en þurfti á endanum ekki að beita vopninu. Vettvangur var tryggður og reyndist ekki um innbrot að ræða. Sá sem tilkynnti reyndist hins vegar eftirlýstur og var færður til skýrslutöku. Lögreglu barst einnig tilkynning um umferðarslys þar sem ökumaður yfirgaf bifreiðina og fór af vettvangi. Hann kom hins vegar í leitirnar og virtist mjög ölvaður. Neitaði hann að blása í áfengismæli og var því handtekinn. Ýmis önnur verkefni komu inn á borð lögreglu en tilkynningar bárust meðal annars um þjófnað á fartölvu í miðbænum og grunsamlegar mannaferðir í Vesturbæ. Þá var ölvaður maður vakinn úti á götu, öðrum ekið heim og einstakling með óviðeigandi hegðun í spilavíti vísað út.
Lögreglumál Lögreglan Rafbyssur Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Sjá meira